Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2003, Page 55

Læknablaðið - 15.09.2003, Page 55
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÖG UM SJÚKLINGATRYGGINGU brigðisþjónustuna er greiddur af sjúkratryggingum almannatrygginga, beinum fjárframlögum úr ríkis- sjóði eða af sjúklingi sjálfum (6). Sjúklingar eru tryggðir þegar þeir eru til rannsóknar eða sjúkdóms- meðferðar á sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum og stofnunum þar sem veitt er heilbrigðisþjónusta, til dæmis á hjúkrunarheimilum. Sjúklingar eru einnig tryggðir í sjúkraflutningum á vegum ríkisins, það er að segja ef veitt er heilbrigðisþjónusta í sjúkraflutn- ingnum, hjá sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfs- mönnum og í sjúkdómsmeðferð erlendis á vegum TR. Með sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmönn- um er ekki eingöngu átt við lækna, heldur alla heil- brigðisstarfsmenn sem starfa sjálfstætt og hafa hlotið löggildingu heilbrigðisráðherra til starfans. Petta er talsverð útvíkkun frá eldri sjúklingatryggingu sem náði eingöngu til sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva. Hverjir sjá um trygginguna? TR annast sjúklingatryggingu fyrir heilsugæslustöðv- ar, sjúkrahús og aðrar heilbrigðisstofnanir sem ríkið á í heild eða að hluta og einnig vegna sjúkraflutninga og sjúklinga erlendis á vegum TR og „siglinganefnd- ar“ (7). Aðrir, sem eru fyrst og fremst heilbrigðis- stofnanir sem eru ekki í eigu ríkisins og sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn, kaupa sjúklinga- tryggingu hjá vátryggingafélögum (8). Sjúklingar geta því ýmist þurft að beina bótakröfum sínum til TR eða vátryggingafélags eftir því hvar sjúkdóms- meðferð fór fram. Tjónsatvik Sjúklingatryggingin nær til fleiri tjónsatvika en þeirra sem leiða til bótaskyldu eftir almennum reglum skaðabótaréttar. Hún nær hins vegar ekki til tjóns sem er óhjákvæmileg afleiðing sjúkdómsins sem átti að lækna og meðferðar við honum (9). Samkvæml 1. gr. STL er skilyrði að tjónið tengist rannsókn eða sjúkdómsmeðferð. I 2. gr. STL eru afmörkuð nánar þau tjónsatvik sem lögin taka til. Þau eru talin upp í fjórum liðum og ítarlega skýrð í greinargerð með lögunum. 1., 2. og 3. töluliður taka til tjóns sem komast hefði mátt hjá ef meðferð eða rannsókn hefði verið hagað á annan hátt en gert var. 4. töluliður tekur hins vegar til tjóns sem ekki hefði verið unnt að komast hjá en ósann- gjarnt þykir að sjúklingur beri bótalaust. Tjón er aðeins bótaskylt ef að öllum líkindum má rekja það til einhverra þessara tilteknu atvika. Með orðalaginu „að öllum líkindum" er átt við að það verði að vera talsvert miklar líkur á að tjónið megi rekja til einhverra þessara atvika. Ef eins er líklegt að tjónið sé óháð meðferðinni er bótaréttur ekki fyrir hendi. Sama gildir ef ekkert verður sagt um hver sé líklegasta orsök tjónsins (10). 2. gr. STL hljóðar svo: Bœturskalgreiða án tillits tilþess hvort einhver ber skaðabótaábyrgð samkvœmt reglum skaðabóta- réttarins, enda megi að öllum líkindum rekja tjónið til einhvers eftirtalinna atvika: 1. Ætla má að komast hefði mátt hjá tjóni efrann- sókn eða meðferð við þœr aðstæður sem um rœðir hefði verið hagað eins vel og unnt hefði verið og í samrœmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði. 2. Tjón hlýst afbilun eða galla í tœki, áhöldum eða öðrum búnaði sem notaður er við rannsókn eða sjúkdómsmeðferð. 3. Mat sem síðar er gert leiðir í Ijós að komast hefði mátt hjá tjóni með því að beita annarri meðferðaraðferð eða -tœkni sem völ var á og hefði frá lœknisfrœðilegu sjónarmiði gert sama gagn við meðferð sjúklings. 4. Tjón hlýst afmeðferð eða rannsókn, þ.m.t. að- gerð, sem œtlað er að greina sjúkdóm og tjónið er afsýkingu eða öðrum fylgikvilla sem er meiri en svo að sanngjarnt sé að sjúklingur þoli það bótalaust. Annars vegarskal líta tilþess hve tjón er mikið og hins vegar til sjúkdóms og heilsu- fars sjúklings að öðru leyti. Þá skal taka mið af því hvort algengt er að tjón verði af meðferð eins og þeirri sem sjúklingur gekkst undir og hvort eða að hve miklu leyti gera mátti ráð fyrir að hœtta vœri á slíku tjóni. 1. töluliður lýtur þannig að því hvort rétt hafi verið staðið að meðferð, 2. töluliður fjallar um bilun eða galla í tækjum eða áhöldum, 3. töluliður um hvort beita hefði mátt annarri meðferðaraðferð eða -tækni og 4. töluliður fjallar um heilsutjón sem hlýst af sýk- ingu eða öðrum fylgikvilla meðferðar sem ósann- gjarnt þykir að sjúklingur beri bótalaust. Þegar mál er skoðað með tilliti til bótaskyldu á fyrst að athuga hvort það fellur undir 1. tölulið, ef svo er ekki þá 2. tölulið, og svo framvegis (11). Ef ekki er hægt að fella tjónsatvik undir neinn af þessum töluliðum er tjónið ekki bótaskylt. Undantekning frá þessu er þó ef um er að ræða læknisfræðilegar tilraunir, líffæra- og blóð- gjafir og þess háttar. Bætur vegna Ijóns sem hlýst af rangri sjúkdómsgreiningu greiðast aðeins ef tilvik fellur undir 1. eða 2. tölulið 2. gr. (12). 1. töluliður 1. töluliðurinn tekur til mistaka í víðtækri merkingu, í þeim skilningi að ekki þarf að sýna fram á sök. Bótaréttur stofnast ef komast hefði mátt hjá tjóni með því að haga rannsókn eða meðferð eins vel og unnt hefði verið og í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði. Hér er meðal annars átt við hvers konar ranga meðferð, bæði ef beitt er með- ferð sem ekki átti læknisfræðilega rétt á sér og eins ef ekki er gripið til meðferðar sem við á. Sama á við ef notaðar eru rangar aðferðir eða gáleysi sýnt við með- Læknablaðið 2003/89 699

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.