Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 67

Læknablaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 67
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐAPISTILL 158 Hnútarós Jórunn Frímannsdóttir, hjúkrunarfræðingur, hafði fengið fyrirspurn frá móður ungs barns sem allt í einu fékk upphleyptar, harðar, rauðar bólur á fótleggi, handleggi og kinnar. Næsta dag var útlitið breytt og sáust þá aðeins fjólurauðir flekkir, sem ekki voru eins upphleyptir. Móðurinni var sagt að þetta væri hnúta- rós og vildi hún lesa sér til um sjúkdóminn á Netinu, en fann ekki hið erlenda heiti. Jórunn framsendi síðan fyrirspurnina í tölvupósti. Eftir nokkra leit kom í ljós að hnútarós er gamalt heiti á erythema nodosum. Niels Dungal, prófessor í meinafræði, lýsti einkennum og ferli sjúkdómsins mjög skilmerkilega í bókinni Heilsurækt og manna- mein, útg. 1943. Þar segir meðal annars: Hnútarós er út affyrir sig ekki alvarlegur sjúkdómur, en hún er oftast aðvörun um að berklasmitun hafi nýlega átt sér stað; þó getur hnútarós komið löngu eftir smitun. Berklar eru nú síður í sviðsljósinu sem orsakaþáttur og nýjar læknisfræðiorðabækur tilgreina fremur of- næmisviðbrögð gegn ýmsum öðrum sýkingum eða gegn lyfjum. Erythema nodosum Undirritaður minntist heitisins rósahnútar, sem honum gekk þó illa að finna í sínum venjulegu heim- iidaritum. Hin nýja íslenska orðabók Eddu birtir þó fleirtöiuheitið með skýringunni: hnútrós, sjúkdómur sem lýsir sér í rauðum þrymlum á útlimum og oft gigtarverkjum, einkum hjá ungum konum (erythema nodosum). Bókin íslensk læknisfræðiheiti frá 1954 eftir Guðmund Hannesson tilgreinir einungis íslenska heitið þrimlaroði. Iðorðasafn lækna gefur heitin þrindaroði og þrimlasótt en Alþjóðleg tölfræðiflokk- un sjúkdóma (ICD 10) tilgreinir einungis þrimla- roðaþot. Undirrituðum er ekki ljóst hvert af þessurn íslensku heitum er mest notað. Gaman væri að fá um það upplýsingar frá lesendum. Erythema er þýtt sem roði í húð, húðroði, hör- undsroði eða rauð húðútbrot. Latneska lýsingar- orðið nodosus gefur til kynna að fyrirbæri sé hnútótt eða þrimlótt. Þrimill (eða þrymill) er svo hnútur eða þykkildi í eða undir húð. Orðið þot táknar útbrot, útþot, litarbreytingar sem birtast skyndilega í húð. Eftir á að hyggja er sjálfsagt óþarfi að lengja sjúk- dómsheitið með þessari viðbót. Þrimlaroði er án efa nógu lýsandi. Opsonin Már Kristjánsson, yfirlæknir, sendi fyrirspurn vegna læknisfræðiheitisins opsonin, sem er af grískum upp- runa. Gríska sagnorðið opsonein er sagt hafa haft ýmsar merkingar: kaupa vistir, taka vistii; éta (einkum notað um dýr). Nafnorðið opson var sömuleiðis notað urn vistir en einnig soðið kjöt og smárétti. I sýkla- og ónæmisfræði er heitið opsonin notað um efni sem bindast mótefnavökum og auðvelda frumuát þeirra (phagocytosis). Einkum vísar heitið í tiltekin mótefni (IgM og IgG) og hjástoðarþætti (complement factors) sem einnig bindast viðtökum á yfirborði átfrumna. Með því verður auðveldara fyrir átfrumurnar að inn- lima bakteríur í átbólur (phagosome) og ráðast gegn þeim með leysikornum sínum (lysosome). Iðorðasafn lækna birtir heitið hljóðritað á íslensku sem opsónín, þannig að ekki hefur verið gerð tilraun lil þýðingar. Þessi aðferð er í samræmi við þá stefnu að þýða ekki heiti efna eða lyfja yfir á íslensku heldur hljóðrita. Hljóðritunin felst í því að heitin eru umrituð og stafsett á íslenskan hátt þannig að þau fái yfir- bragð og útlit íslenskra orða og geti tekið íslenskri beygingu (sjá 12. pistil í Fréttabréfi lækna 1990; 8:7). I drögum að Iðorðasafni ónæmisfræðifélagsins er þó gefið íslenskt heiti, þannig að opsonin verði áthúðun- arþáttur. Treadmill Inga Sif Olafsdóttir, ungiæknir, vildi bæta við um- ræðuna urn trcudmill í síðasta pistli. Hún benti á að fyrirbærið væri oft nefnt göngubretti. Þá rifjaðist upp að líkamsræktarstöðvarnar nefna þelta mikilvæga tæki gjarnan hlaupabrctti. Undirritaður hafði áður sett fram heitið þrekband til samræmis við hið vel viðurkennda heiti þrcklijól. Ensk-íslensk orðabók Arnar og Örlygs lilgreinir einnig heitið stigniylla. Nóg er því af góðum íslenskum heilum og engin ástæða til að líkja eftir hinu erlenda heiti með orð- skrípinu traðkniylla. „Bandið“ er nú oftast rafknúið færiband sem menn ganga á eða hlaupa til að fá líkamshreyfingu og auka „þrek“ sitt. Breyta má hraða bandsins og halla, þannig að álag eða áreynsla geti verið mismunandi. í heilbrigðisrannsóknum er tilgangurinn með notkun þrekbandsins sá að kanna og mæla vissa þætli í líkamsstarfsemi manna, svo sem í starfsemi hjarta og lungna við áreynslu. Líklega er ástæða til að benda á að heitið tread- niill var upprunalega notað um sérsmíðað mylluhjól en ekki færiband. Hin mikla orðabók Websters lýsir því þannig: tœki til að framkalla snúningshreyfingu með því að virkja þunga manna eða dýra sem stíga stöðugt á hreyfanleg þrep, sem taka við hvert aföðru. Jóhann Heiðar Jóhannsson johannhj@landspitali.is Læknablaðið 2003/89 711
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.