Læknablaðið - 15.09.2003, Page 73
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VIÐBÚNAÐUR VI
bólusótt þarf að meta áhættuna. Fræðilega er hægt
að greina fjögur mismunandi hættustig af bólusótt
sem steðjar að íslandi:
Hættustig 1: Möguleg ógn af völdum bólusóttar.
Möguleg ógn merkir að bólusóttar-
veira sé til í heiminum en engin merki
eru um að verið sé að undirbúa árás.
Hættustig 2: Líkleg ógn af völdum bólusóttar.
Líkleg ógn merkir að áreiðanlegar vís-
bendingar séu um að bólusóttarveiran
sé í höndum óábyrgra aðila og að haft
sé í hótunum um að hefja árás með
bólusóttarveiru eða að slys hafi orðið á
varðveislustöðum veirunnar.
Hættustig3: Staðfest tilfelli af bólusótt utan ná-
grannalanda.
Hættustig 4: Staðfest tilfelli af bólusótt í að minnsta
kosti einu nágrannalandi.
Ákvörðun um hverja skuli bólusetja er háð áhættu-
stiginu. Eftirtaldir kostir eru fyrir hendi:
• Bólusetning ákveðinna valinna heilbrigðis-
starfsmanna.
• Bólusetning heilbrigðisstarfsfólks, hjálparsveit-
ar- og löggæslumanna.
• Bólusetning þeirra sem haft hafa samband við
bólusóttarsjúklinga.
• Bólusetning allra á tilteknu svæði.
• Bólusetning allra þegna þjóðfélagsins.
1.2.2 Frumáœtlun bólusetningar
1) Bólusetning starfsmanna sem ætla má að komi að
viðbúnaði og viðbrögðum gegn bólusótt og gætu
staðið augliti til auglitis við bólusóttarsjúklinga
eða sýkt efni.
2) Allir sem hafa staðið augliti til auglitis við sjúkling
með bólusótt skulu fundnir og bólusettir. Fylgjast
þarf með svörun bólusetningar og einkennum sem
bent geta til bólusóttar.
3) Fylgjast þarf með hvort útsettir einstaklingar sem
ekki eru bólusettir fái hita. Fái þeir hita skulu þeir
einangraðir.
4) Ef mögulegt er skulu þeir heilbrigðisstarfsmenn
sem bólusettir voru á þeim tíma þegar bólusótt
var enn við lýði á 20. öld vera í fremstu víglínu í
upphafi bólusóttarfaraldurs.
Hættustig Bólusetningaráætlun Aðrar aðgerðir
Hættustig 1 • Almenningur ekki bólusettur • Viðbúnaður undirbúinn og
Möguleg ógnun • honum viðhaldið Alþjóölegum samböndum viðhaldiö
• Heilbrigðisþjónustu og almenningi veittar upplýsingar
Hættustig Bólusetningaráætlun Aðrar aðgerðir
Hættustig 2 • Almenningur ekki bólusettur • Viöbúnaður aukinn
Líkleg ógnun • Bólusetning valinna • Alþjóöleg sambönd aukin
heilbrigöisstarfsmanna íhuguö • Heilbrigöisstarfsfólki-, sjúkra-
• Bólusetning valinna flutnings- og löggæslumönnum,
sjúkraflutningsmanna og þ.m.t. tollvöröum veittar
löggæslumanna íhuguö • upplýsingar Almenningi veittar upplýsingar.
Hættustig Bólusetningaráætlun Aðrar aðgerðir
Hættustig 3 • Almenningur ekki bólusettur • Viöbúnaöur aukinn
Bólusóttartilfelli greind • Valinn hópur heilbrigðis- • Áætlanir um einangrun
utan nágrannalanda starfsmanna bólusettur. og afkvíun endurskoöaðar
• Valinn hópur sjúkraflutnings- • Alþjóöleg sambönd aukin
manna og löggæslumanna • Heilbrigöisstarfsfólk -, sjúkra-
bólusettur • flutnings- og löggæslumönnum, þ.m.t tollvöröum veittar upplýsingar Almenningi veittar upplýsingar
Hættustig Bólusetningaráætlun Aðrar aðgerðir
Hættustig 4 • Allir bólusettir sem veriö hafa í • Viðbúnaöur aukinn
Bólusóttartilfelli greind sambandi viö bólusóttarsjúkling • Áætlanir um einangrun
innan nágrannalanda starfsmanna bólusettur. og afkvíun framkvæmdar
• Allir sjúkraflutningsmenn, • Alþjóðleg sambönd aukin
tollverðir og löggæslumenn • Heilbrigöisstarfsfólki, sjúkra-
bólusettir flutnings- og löggæslumönnum
• Bólusetning allra þegnanna veittar upplýsingar
íhuguö • Almenningi veittar upplýsingar
Ð BÓLUSÓTT ■
Læknablaðið 2003/89 717