Læknablaðið - 15.09.2003, Page 76
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VIÐBÚNAÐUR VIÐ BÓLUSÓTT
stungustað, svæðisbundinni eitlabólgu og hita sem er
tákn virkrar fjölgunar veirunnar sem leiðir til bráðrar
veirusýkingar. Enda þótt þessar aukaverkanir séu
ekki alvarlegar í flestum tilvikum valda þær þó því að
meir en 30% hinna bólusettu missa úr vinnu, skóla,
svefn eða frístundastarf um einhvern tíma (3).
I eftirfarandi töflu eru sýnd miðlungs til slæm
staðbundin og almenn óþægindi hjá 665 einstakling-
um í rannsóknarþýði á 7.-12. degi eftir bólusetningu:
Munnhiti > 38.3 °C 3,8 %
Höfuðverkur 13,9%
Vöðvaverkir 20,6%
Hrollur 6,6%
Ógleði 4,1%
Þreyta 19,7%
Sársauki á bólusetningarstað 33,9%
3.3 Fylgikvillar bólusetningar gegn bólusótt
Alvarlegir fylgikvillar sem tengjast bólusetningu eru
umtalsverðui og eru þeir algengari eftir frumbólu-
setningu. Tíðni fylgikvilla getur verið breytilegur
eftir gerð bóluefnisins. Eftirfarandi tvær töflur sýna
tíðni fylgikvilla miðað við aldur og eftir því hvort um
frum- eða endurbólusetningu er að ræða (4).
Fylgikvillar frumbólusetningar gegn bólusótt (á hverjar ÍOO 000 bólusetningar).
Aldur (ár) Sýking af slysni Útbreidd vaccinia Eczema vaccinatum Vaxandi vaccinia Heilabólga eftir bólu- setningu Annaö*
<i 50,7 39,4 1,4 0 4,2 155
1-4 57,7 23,3 4,4 3,2 1,0 126
5-19 37,1 14,0 3,5 0 0,9 86
>20 60,6 12,2 3,0 0 0 152
Samtals 52,9 24,2 3,9 1,5 1,2 125
Fylgikvillar endurbólusetningar gegn bólusótt (á hverjar 100 000 bólusetningar).
Aldur (ár) Sýking af slysni Útbreidd vaccinia Eczema vaccinatum Vaxandi vaccinia Heilabólga eftir bólu- setningu Annaö*
<i 0 0 0 0 0 0
1-4 10,9 0 0 0 0 20,0
5-19 4,8 1,0 0,2 0 0 8,6
> 20 2,5 0,9 0,5 0,7 0,5 11,4
Samtals 4,2 0,9 0,3 0,3 0,2 10,8
* Annaö merkir mismunandi atburöi, svo sem erythema multiforme, ofsabjúgur, and maculopapular erythe- matous útbrot, sem venjulega hverfa af sjálfu sér án meöferöar.
3.4 Vaccinia mótefni (Vaccinia
Immunoglobulin - VIG)
3.4.1 Birgðasöfnun
Birgðir af vaccinia immunoglobulini (VIG) þarf að
tryggja. Gert er ráð fyrir að beita þurfi meðferð með
VIG hjá einum af hverjum 4000 sem eru bólusettir
vegna fylgikvilla. Hinar takmörkuðu birgðir af VIG
um þessar mundir leyfa ekki að lyfið sé gefið samtím-
is og bólusett er til að koma í veg fyrir hugsanlega
fylgikvilla (5). Mikilvægt er að VIG sé haldið til haga
til að meðhöndla alvarlega og lífshættulega fylgikvilla.
3.4.2 Ábendingar fyrir notkun VIG
Skammturinn sem mæll er með að notaður sé við
VIG meðferð vegna fylgikvilla vaccinia bólusetning-
ar er 0,6 mL/kg líkamsþyngdar. Gefa þarf VIG í
vöðva og skal gefa það eins fljótt og hægt er eftir
upphaf einkenna. Þar sem meðferðarskammtur er
stór (þ.e. 42 ml fyrir 70 kg mann) ætti að skipta
skammtinum í smærri skammta sem gefnir eru á 24-
36 klst tímabili. Hægt er að endurtaka meðferðina á
tveggja til þriggja daga fresti þar til engin merki eru
um frekari útbreiðslu einkenna.
Þeir fylgikvillar sem komið geta í kjölfar bólusetn-
ingar og þar sem VIG kann að koma að gagni eru:
1. Eczema vaccinatum.
2. Vaxandi vaccinia (vaccinia necrosum).
3. Alvarleg útbreidd vaccinia þar sem sjúklingur er
mjög meðtekinn eða er með alvarlegan undirliggj-
andi sjúkdóm.
4. Sýking af slysni í auga eða augnlok en án keratítis.
3.4.3 Frábendingar fyrir notkun VIG
Ekki er mælt með notkun VIG til meðferðar á:
1. Heilabólgu í kjölfar bólusetningar.
2. Vaccinia keratitis.
Heimlldlr
1. Fenner F, Henderson DA, Arita, Ijezek Z, Ladnyi ID. Small-
pox and its eradication. Geneva: WHO 1988.
2. Fylgt er skilgreiningu Evrópusambandsins “Decision 2002/
253/EC with amendment of Commission Decision of 17/07/
03”.
3. Frey SE, et al. N Engl J Med 2002; 346:1265-74.
4. Lane JM, et al. J Infect Dis 1970; 122; 303-9.
5. Henderson DA, et al. JAMA 1999; 281:2127-37.
720 Læknablaðið 2003/89