Læknablaðið - 15.09.2003, Page 77
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VIÐBÚNAÐUR VIÐ BÓLUSÓTT
Ríkisstjórnir Danmerkur, Finnlands, íslands, Noregs og
Svíþjóðar,
sem eru sannfærðar um nauðsyn þess að stofnað verði
til samvinnu milli heilbrigðisyfirvalda aðildarlandanna í
þeint tilgangi að efla sameiginlega getu Norðurlandanna
til að bregðast við hættuástandi og hamförum, að með-
töldum náttúruhamförum og atvikum (slysum og hryðju-
verkaárásum) þar sem m. a. geislavirk efni, sýkla- og efna-
vopn koma við sögu,
sem óska eftir að skipuleggja skilvirka aðstoð vegna
hættuástands eða hamfara í einu Norðurlandanna þar sem
aðstoðin fellur ekki undir aðra norræna fjölhliða eða tví-
Itliða samninga, þar á meðal samninginn milli Danmerkur,
Finnlands, íslands, Noregs og Svíþjóðar frá 20. janúar
1989 um samvinnu landanna til að koma í veg fyrir eða
takmarka þann skaða á mönnum, eignum og umhverfi
sem kann að verða, ef slys eða hættuástand ber að hönd-
um (Norræni björgunarþjónustusamningurinn),
sem vilja gera samning er myndað getur ramma um
samvinnu undirbúningsframkvæmda vegna viðbúnaðar,
sem vilja enn frekar bæta samvinnu á þessu sviði,
eru ásáttar um að gera norrænan samning um heil-
brigðisviðbúnað sem hljóðar svo:
1. grcin
Skilgrciningar
I þessum samningi merkja hugtökin
a) „eitt Norðurlanda"
sérhvert aðildarland auk heimastjómarsvæðanna Fær-
eyja, Grænlands og Álandseyja að svo miklu leyti sem
svæðin hafi gefið samþykki sitt fyrir aðild að samningnum;
b) „þar til bær aðili“
í Danmörku:
Indenrigs- og sundhedsministeriet
í Finnlandi:
Social- och hálsovárdsministeriet
á íslandi:
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
í Noregi:
Helsedepartementet
í Svíþjóð: Ríkisstjórnin (Socialministeriet), eða sá aðili
sem ráðuneytið hefur veitt umboð.
2. grein
Tilgangur
Samningur þessi á að stuðla að samvinnu milli Norður-
landanna vegna undirbúnings og þróunar á heilbrigðisvið-
búnaði með tilliti til viðbragða við hættuástandi og ham-
förum, að meðtöldum náttúruhamförum og atvikum
(slysum og hryðjuverkaárásum) þar sem m.a. geislavirk
efni, sýkla- og efnavopn koma við sögu.
3. grein
Gildissvið
Samningur þessi varðar samvinnu milli þar til bærra nor-
rænna aðila á sviði heilbrigðis- og félagsmála. Samvinnan
nær yfir:
a. undirbúning að viðbúnaði og
b. aðstoð ef hamfara- eða hættuástand skapast hjá að-
ildarríki.
Samningur þessi er viðbót við Norrænan björgunar-
þjónustusamning frá 20. janúar 1989 og kemur því ekki til
framkvæmdar ef þörfin fyrir aðstoð fellur undir fyrr-
nefndan samning.
Dreifing á stjórnsýslu- og fjárhagslegum afleiðingum í
tengslum við samstarf um framkvæmdir vegna viðbúnað-
ar sem nefnt er í 1. lið a þessarar greinar, verður ákveðin í
hverju tilviki. Undir kringumstæðum sem falla undir 1. lið
b þessarar greinar verður ákvæðum í „Norrænum björg-
unarþjónustusamningi" beitt eins langt og þau ná.
Samningur þessi má ekki verða Norðurlöndunum
hindrun við efnd skuldbindinga sinna vegna þátttöku í
fjölþjóðlegri eða þjóðréttarlegri samvinnu, eða taka þátt í
alþjóðlegu samstarfi.
Norðurlöndin geta gert með sér samninga á sérsviðum
innan ramma þessa samnings.
4. grcin.
Skuldbindingar ríkjanna
Norðurlandaþjóðirnar skuldbinda sig
1) sé þess beðið, til að aðstoða hverjar aðra af fremsta
megni innan ákvæða þessa samnings,
2) til að upplýsa hverjar aðra eins fljótt og auðið er um
framkvæmdir sem eru fyrirhugaðar eða eru þegar
hafnar sem munu hafa, eða ætla má að muni hafa, þýð-
ingu annars staðar á Norðurlöndum,
3) til að efla samvinnu í landslögum, reglugerðum og öðr-
um reglum samkvæmt þessum samningi og ryðja úr
vegi hvaðeina sem hindrað getur samvinnu þessa að
eins miklu leyti og hægt er,
4) til að stuðla að samvinnu um hæfnisþróun og að aðilar
geti skipst á reynslu,
5) til að stefna að þróun samvinnu á þessu sviði,
6) til að upplýsa hver aðra um breytingar sem viðkoma
fyrirkomulagi á viðbúnaði, einnig lagabreytingar.
5. grcin
Framkvæmd sanmingsins
Heilbrigðisráðherrar aðildarríkjanna funda reglulega til
að ræða stöðu mála innan verksviðs samningsins. Sú þjóð
sem fer með formennsku Norrænu ráðherranefndarinnar
ber ábyrgð á framkvæmd funda.
Forsenda fyrir framkvæmd þessa samnings er að hlut-
aðeigandi yfirvöld verði í beinu sambandi sín á milli.
Hlutaðeigandi yfirvöld skulu meta sameiginlega þróun
og framkvæmd samningsins árlega. Petta skal, þar sem því
verður við komið, fara fram innan þess fundarfyrirkomu-
lags sem þegar er til staðar.
6. grcin
Gildistaka
Samningurinn öðlast gildi þrjátíu dögum eftir þann dag er
öll aðildarlöndin hafa tilkynnt norska utanríkisráðuneyt-
inu skriflega um staðfestingu samningsins.
Norska utanríkisráðuneytið tilkynnir skriflega öðrum
samningsaðilum og Norrænu ráðherranefndinni dagsetn-
ingu fyrir móttöku slíkra tilkynninga og dagsetningu gild-
istöku samningsins.
7. grcin
Uppsögn samnings
Samningsaðili getur sagt upp samningnum með skriflegri
tilkynningu þess efnis til norska utanríkisráðuneytisins
sem upplýsir hina samningsaðilana um dagsetningu fyrir
móttöku slíkrar tilkynningar og um efni hennar. Uppsögn-
in öðlast gildi sex mánuðum eftir móttöku tilkynningar-
innar.
8. grcin
Varsla samnings
Frumeintak þessa samings verður í vörslu hjá norska
utanríkisráðuneytinu sem lætur hinum samningsaðilunum
í té staðfest afrit. Pessu til staðfestu hafa undirritaðir, sem
til þess hafa fullt umboð, undirritað samning þennan.
Viðauki 1.
Norrænn
samningur um
heilbrigðis-
viðbúnað
Læknablaðið 2003/89 721