Fréttatíminn - 11.07.2014, Qupperneq 4
STÍGVÉLABÚÐIN
STÍGVÉLABÚÐIN
STÍGVÉLABÚÐIN
STÍGVÉLABÚÐINSTÍGVÉLABÚÐIN
STÍGVÉLABÚÐIN
Stígvél á alla fjölskylduna
fyrir útileguna í sumar
Álfabakka 14a í Mjódd · 109 Reykjavík · Sími: 527 1519
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Skil ganga yfir landið með rigningu
og Strekkingi.
HöfuðborgarSvæðið: RigniR fRaman af
degi, en að mestu þuRRt síðdegis.
Áfram Strekkingur og Skúrir Syðra,
en að meStu þurrt n- og na-til .
HöfuðborgarSvæðið: skúRiR einkum
fRaman af degi.
enn Skúraleiðingar víða um land,
SíSt þó nv-til. fremur Svalt.
HöfuðborgarSvæðið: sólaRlítið,
en síðdegisskúRiR.
væta syðra
en skárra norðantil
enn eina helgina verða lægðir á sveimi við
landið og væta með köflum. Í dag fara skil
með rigningu norður yfir landið og einnig
strekkings SA-átt. Sjálf lægðin verður síðan
skammt undan S-landi á laugar-
dag. Enn nokkuð ákveðin A-átt og
víða skúrir, en þurrt þó að mestu
N- og NV-til. Á sunnudag verður
vindur orðinn NA-lægari, þá
hægari og þá heldur svalara í
veðri. Víða verður smá væta,
en lengst af þurrt á Vest-
fjörðum og Norðurlandi.
12
9 11
14
12
14
13 13 12
12
13
10 10 10
13
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Sótt hefur verið um leyfi til að fanga 200 hreindýr og hefja eldi á Austurlandi. Samtökin Velbú
hafa ályktað að tímaskekkja sé að fanga villt dýr og færa í eldi og óttast stjórnarmaður að með
tímanum verði hagkvæmni í rekstri látin ráða á kostnað dýranna. Hreindýrin verða mörkuð en
annað ekki gert við þau, segir annar leyfisumsækjandi.
Sigur Rós
ritskoðuð
Plötuumslag hljómsveitar-
innar Sigur Rósar, Með suð í
eyrum við spilum endalaust,
þykir of dóna legt fyrir nýja
stefnu Google-leitarsíð-
unnar. Á umslagi plötunnar
er mynd af nöktu fólki á
hlaupum úti í sveit.
Hannes rann-
sakar hrunið
„Ég er ánægður með,
hversu vel því er almennt
tekið, að Félagsvísinda-
stofnun Háskóla Íslands
skuli hafa fengið mig til að
sjá um rannsóknarverkefni,
sem stofnunin annast
fyrir fjármálaráðuneytið,“
segir Hannes Hólmsteinn
Gissurarson prófessor.
Hann mun meta á erlenda
áhrifaþætti í bankahruninu
á Íslandi haustið 2008.
357
hlaupa Laugavegshlaupið
á morgun, laugardag. 105
konur hlaupa og 252 karlar.
Íslenskir hlauparar eru 216
talsins en 141 kemur frá 29
öðrum löndum. 29 Banda-
ríkjamenn hlaupa, 17 Þjóð-
verjar og 16 Kanadamenn.
Hlaupin er 55 kílómetra
leið frá Landmannalaugum
og yfir í Húsadal í Þórs-
mörk.
Lést í skemmti-
garði á Spáni
Átján ára piltur, Arnar Freyr
Sveinsson, lést af slys-
förum í skemmtigarðinum
Terra Mítica við Benidorm
á Spáni. Hann kastaðist
úr rússíbana á mikilli ferð.
Aðstandendur piltsins ætla
að krefjast skaðabóta af
eigendum garðsins, verði
þeir fundnir sekir um
vanrækslu.
Viðræður um
samruna
MP banki og Straum ur
fjár fest inga banki hafa átt
í óform leg um viðræðum
um hugs an leg an samruna
bank anna. Sigurður Atli
Jónsson, forstjóri MP
banka, segir að ekkert sé
ákveðið í þessum efnum.
Rauða hárið í
hættu
Erfðaefnið sem stýrir
rauðum háralit gæti horfið
úr erfðamengi mannsins í
framtíðinni. Vísindamenn í
Skotlandi hafa rannsakað
þetta og rekja ástæðuna
til loftslagsbreytinga og
hlýnunar jarðar.
Hreindýr-
in verða
mörkuð
eins og fé
og hrein-
dýr annars
staðar í
eldi en
ekkert
gert við
þau að
öðru leyti.
landbúnaður umsókn um hreindýraeldi á austurlandi
Telja hreindýra-
eldi tímaskekkju
Á Grænlandi hafa verið gerðar tilraunir með að láta kýr bera innandyra svo kálfar fái skjól frá krapahríð og bleytuslagvirði.
Annars eru dýrin alin utandyra. Ljósmynd/Hari
s tefán Hrafn Magnússon, hreindýrabóndi á Græn-landi og Björn Magnús-
son, fyrrum bóndi og áhuga-
maður um hreindýraeldi, hafa
sótt um leyfi til fanga 200 hrein-
dýr úr stofninum og hefja eldi á
Austurlandi, að því er fram kom
í frétt RÚV í vikunni.
Íris Ólafsdóttir, stjórnar-
maður í Velbú, samtökum um
velferð í búskap, telur það
tímaskekkju að ætla að fanga
villt dýr og færa undir manna-
hendur. „Það vekur jafnframt
hjá okkur óhug að dýrin verði
vistuð í hólfum yfir vetrartím-
ann og innan girðingar á sumrin
því eðli hreindýranna er að lifa á
víðfeðmu svæði og hafa aðgang
að fjölbreyttri fæðu,“ segir hún.
Þá óttast Íris að með tímanum
verði hagkvæmni í rekstri látin
ráða á kostnað dýranna, eins
og raunin hafi orðið í mörgum
tilfellum í öðru dýraeldi hér á
landi. „Ekki eru nema nokkrir
áratugir síðan íslensk svín
fengu að vera úti við, innan girð-
ingar, en í dag eru þau lokuð
inni í gluggalausum húsum.“
Að sögn Björns Magnússon-
ar er ekki fyrirhugað að laga
dýrin að eldi með geldingum
eða öðru. „Hreindýrin verða
mörkuð eins og fé og hreindýr
annars staðar í eldi en ekkert
gert við þau að öðru leyti,“ segir
hann. Þeir Björn og Stefán Hrafn
sendu inn beiðni um hreindýra-
eldi til umhverfis- og auðlindar-
áðuneytisins í janúar árið 2013
og á Björn von á svari um miðjan
desember næstkomandi.
Aðspurður um hvernig hrein-
dýr séu fóðruð innan girðingar
segir Björn að sérstaklega þurfi
að vanda til verka þegar verið sé
að heyja fyrir hreindýr því þau
geti ekki melt mikið sprottið né
trénað hey. Á haustin er hrein-
dýrunum einnig gefið græn-
fóður, svo sem kál. Yfir sumar-
tímann er áætlað að hreindýrin
komist á beit á stóru svæði. Þá
segir Björn þá þróun að hreindýr
séu alin innandyra ekki hafa orð-
ið, með þeim undantekningum
þó að kýr hafi borið innandyra.
„Það hafa verið gerðar tilraunir á
Grænlandi með að láta kýr bera
inni og hefur það gefist vel. Þá fá
kálfarnir skjól frá bleytuveðri því
annars gætu þeir drepist eins og
lömb. Meðan kálfarnir eru litlir
þola þeir frost vel en ekki krapa-
hríð og bleytuslagveður.“
dagný Hulda erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Sumarstofn hreindýra
á Íslandi hefur verið
áætlaður um
6000
dýr.
Þriðjungur er á Fljóts-
dals- og Brúaröræf-
um. Sótt hefur verið
um leyfi til að taka
200
dýr úr stofninum og
hefja eldi.
Tæplega 250 ár eru
síðan fyrstu hrein-
dýrin komu til Íslands.
markmiðið með
innflutningnum var að
efla íslenskan land-
búnað. Eftir að dýrin
komu til landsins var
talið að skilyrði til
hjarðmennsku væru
ekki fyrir hendi og
því hafa hreindýrin
gengið villt hér á
landi.
Heimild:
Náttúrustofa Austurlands.
7-1
sigur Þjóðverja á
Brasilíumönnum
var ótrúlegur en þó
ekki meira en svo
að Englendingur
frá Essex veðjaði
5 pundum á þau
úrslit – og marg-
faldaði upphæðina
500 sinnum.
vikan sem var
4 fréttir Helgin 11.-13. júlí 2014