Fréttatíminn - 11.07.2014, Blaðsíða 24
24 viðtal Helgin 11.-13. júlí 2014
Með Ítalíu
á heilanum
Kjartan Sturluson þekkja margir sem fylgst
hafa með knattspyrnu á Íslandi. Hann stóð milli
stanganna hjá bæði Val og Fylki ásamt því að
leika með íslenska landsliðinu. Kjartan er við-
skiptafræðingur að mennt með gríðarlega mikinn
áhuga á Ítalíu. Áhuginn er það mikill að hann
hefur opnað heimasíðu, minitalia.is, sem fjallar
eingöngu um landið, þjóðina og menningu hennar.
É g hef búið þrisvar sinnum í Mílanó á Ítalíu. Í fyrsta skiptið fór ég sem skiptistúdent í Bocconi-
University. Í annað sinn þóttist ég
vera að skrifa lokaritgerðina mína
en gerði í rauninni ekki neitt nema
að njóta lífsins og í þriðja sinn fór
ég í meistaranám í viðskiptafræði
við Bocconi-University. Þegar ég
eignaðist svo börnin mín tvö með
stuttu millibili, fór ég að leika mér
að skrifa um Ítalíu á milli þess
sem ég skipti um bleyjur,“ segir
Kjartan Sturluson.
„Ég byrjaði á því að fara að
skrifa að gamni mínum um hvert
hérað fyrir sig, einkenni þess,
matargerð, víngerð og menningu.
Áður en ég vissi af var ég búinn að
skrifa um 20 héruð og þá hugsaði
ég að ég þyrfti að gera eitthvað
við þetta svo þetta endaði ekki í
ruslakörfunni í tölvunni.“
Undir lok síðasta árs opnaði
Kjartan svo bloggið sem ber
nafnið www.minitalia.is. Þar má
finna margskonar fróðleik um allt
sem viðkemur landinu. Bæði fyrir
þá sem hafa áhuga á því að ferðast
þangað sem og bara almenns
eðlis. Hvað er það samt sem gerir
menn ástfangna af þessu landi?
„Það er bara allt. Veðurfarið er
frábært. Menningin er stórkostleg.
Matargerðin er ótrúleg, svo ekki
sé talað um vínin. Það er bara
einhver galdur í gangi. Það er
ótrúlegt að geta verið á ströndinni
fyrir hádegi og skroppið á skíði
í ölpunum eftir hádegi,“ segir
Kjartan sem hefur heimsótt þjóð-
ina margoft.
„Hér á árum áður var vinsælt að
fara til Rimini og Lignano en síðan
datt það upp fyrir og íslenskar
ferðaskrifstofur buðu ekki upp á
skipulagðar ferðir til Ítalíu í mörg
ár. Í dag er þetta aðeins að aukast
aftur og nokkrar skrifstofur farnar
að bjóða upp á ferðir á ný. Það var
auðveldara að fara til Spánar. Bæði
vegna þess að maður þarf ekki að
millilenda á leiðinni og svo er verð-
lagið aðeins betra þar. En miðað
við hvað Íslendingar eru hrifnir
af ítölskum mat þá ættu þeir ekki
að setja það fyrir sig að skipta um
eina flugvél. Svo er verðlagið gott
á Ítalíu. Sérstaklega í því sem mér
finnst skipta máli, mat, drykk og
samgöngum.“
Maður kemst ekki hjá því að
spyrja fyrrverandi knattspyrnu-
mann um ítalskan knattspyrnu-
áhuga. „Þegar ég var að alast upp
þá var ítalska deildin sú besta í
heimi. Bestu lið heims voru frá
Ítalíu og mitt lið var og er Juven-
tus. Ítalir hafa þó orðið aðeins
undir í þróuninni enda íhaldssamir
mjög. Vellirnir eru eins og gömul
skrímsli og ekki sérstaklega
heillandi. Juventus hefur þó verið
að stíga út úr þessum fasa og von-
andi að hin liðin fylgi á eftir. Þó
þeir séu íhaldssamir á neikvæðan
hátt stundum þá er það líka já-
kvætt. Sérstaklega þegar það
kemur að menningu, matargerð og
byggingalist.“
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
www.minitalia.is
er fullkomin síða
fyrir allskonar
fróðleik. Hvort
sem það á að elda
pasta í kvöldmat-
inn, fræðast
um héruð
landsins
eða skipu-
leggja
næsta
sumarfrí.
Kynntu þér borgirnar á uu.is
Borgarferðir
Dublin og Bratislava
Dublin 23.–26. okt., 20.–23. nóv.
Bratislava 11.–15. september
Úrval Útsýn er í Hlíðasmára 19, Kópavogi.
Sími 585 4000 www.uu.is
2 0 1 4
00000
w w w . v e i d i k o r t i d . i s
Eitt kort
36 vötn
6.900 kr
FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ
2 0 1 4