Fréttatíminn - 11.07.2014, Blaðsíða 30
Lóa er
söngkona
í hljóm-
sveitinni FM
Belfast og
lærði mynd-
skreytingar
í Parsons í
New York.
GOLD PLATED
SPECIALIZED BICYCLES & COMPONENTS
KRÍA HJÓL GRANDAÐGARÐUR 7 101 REYKJAVÍK s.5349164
THE FSR EPIC - THE ONLY FULL-SUSPENSION
XC BIKE TO WIN OLYMPIC GOLD
AND MULTIPLE WORLD CHAMPIONSHIP GOLD MEDALS
GOLD STANDARD REDEFINED. SPECIALIZED.COM
É g er ekki með neinn lager af hugmyndum. Sumar myndasögurnar mínar eru
um eitthvað merkilegt og sumar
eru um eitthvað fáránlega ómerki-
legt,“ segir Lóa Hlín Hjálmtýs-
dóttir.
Fréttatíminn birtir í dag fyrstu
myndasögu Lóu sem hér eftir mun
teikna vikulega í blaðið. Mynda-
söguna er að finna á blaðsíðu 12.
Fyrsta myndasaga Lóu í blaðinu
mótast af máli málanna síðasta
mánuðinn; HM í knattspyrnu.
„Þessi saga spratt upp úr því að
systir mín var að furða sig á því að
ég væri að horfa á HM,“ segir Lóa.
Lóa er söngkona í hljómsveit-
inni FM Belfast og lærði mynd-
skreytingar í Parsons í New
York. Hún sendi árið 2009 frá
sér bókina Alhæft um þjóðir. Lóa
hefur birt myndasögur í ýmsum
miðlum og teiknaði hluta teikni-
myndaseríunnar Hulli, sem sýnd
var á RÚV síðasta haust. „Ég er
búin að teikna mánaðarlega fyrir
Grapevine í sjö ár og svo hef ég
dottið inn í Stúdentablaðið og fleiri
miðla,“ segir Lóa sem hefur auk
þess teiknað í bækur sem Hug-
leikur Dagsson gefur út á Alþjóð-
lega myndasögudeginum.
„Mér finnst ég vera geðveikt löt
en Hugleikur, systir hans og Hauk-
ur hjá Grapevine hafa hvatt mig
áfram í að gera myndasögur. Mig
langar að safna sögum í sarpinn
en ég þarf að hafa svona föst verk-
efni því ég hef greinilega engan
innri drifkraft,“ segir Lóa í léttum
dúr. „Það er gott að einhver hafi
áhuga á sögunum en fólk má samt
ekki senda mér „passive aggres-
sive“-tölvupósta þegar það er ekki
sammála mér.“
Myndasögur Lóu má skoða á
Facebook síðu hennar, Lóabora-
toríum.
Sjá Síðu 12
Vill ekki fá
reiðipósta
út af sögunum
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir teiknar hér eftir vikulega myndasögu í
Fréttatímann. Hún segist vera löt við að teikna en finnst gaman
að fólk hafi áhuga á sögunum hennar.
30 teiknimyndasögur Helgin 11.-13. júlí 2014