Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.07.2014, Blaðsíða 60

Fréttatíminn - 11.07.2014, Blaðsíða 60
 Í takt við tÍmann mÍmir nordquist Massaður músíkant á mögnuðu mótorhjóli Mímir Nordquist er 24 ára fjórfaldur Íslandsmeistari í fitness. Hann er líka einn meðlima í hljómsveitinni Lily Of The Valley sem hefur vakið athygli með sínu fyrsta lagi og stefnir á að gefa út plötu innan tíðar. Mímir er sonur hins kunna veitingamanns Guffa sem kenndur er við Gaukinn en finnst hundleiðinlegt að elda. Staðalbúnaður Fatastíllinn minn er frekar frjálslegur. Ég er mikið í „streatwear“-tískunni; þrengri buxum, hlýrabol- um og háum Nike-skóm. Ég fíla líka Volcom mjög vel. Ég elska strigaskó og sumir hafa líkt íbúðinni minni við skóbúð. Ég rek tvö fyrirtæki, sel íþrótta- fatnað og er svo að fara að opna heimasíðu í kringum einkaþjálfun og fleira heilbrigðistengt. Það er miklu skemmtilegra að gera hlut- ina sjálfur en að vinna fyrir aðra. Hugbún- aður Ég reyni að fara mikið til útlanda, ætli ég fari ekki minnst sex sinnum á ári. Mér finnst líka gaman að fara út á land. Ég kíki reglulega út á lífið en þessi bær er alltaf eins. Það er þó í miklu uppáhaldi hjá mér að fara á tónleika. Þegar ég fer á bar panta ég mér vodka í sódavatni með lime. Ég æfi alltaf fimm til sex sinnum í viku en und- anfarið hefur það verið minna því ég hef reynt að nýta tímann í að vinna í tónlist. Ég er harður Friends-aðdáandi og get alltaf horft á þá þætti. Vélbúnaður Ég er pínu græjufíkill. Ég vann við að setja saman tölvur og á yfirleitt allt það nýjasta. Síminn er samt númer eitt, tvö og þrjú. Ég er ekki mikill Apple-gaur en er samt með iPhone. Einu öppin sem ég nota eru Facebook, Snapchat og Instag- ram. Ég er meira í að kaupa mér raftæki en að fikta í öppum. Aukabúnaður Ég er alinn upp við góðan mat því pabbi minn er veitingamaður en mér finnst sjálfum hundleiðinlegt að elda. Eins og aðrir vaxtarræktargaurar finnst mér bæði mikilvægt að fá góðan mat og að fá mikið af honum. Ég keyri um á þvílíkt krútt- legum bíl, BMW M5. Svo á ég tvö mótorhjól sem ég nota reglulega, GSXR 600, 2008 árgerð- ina, og Ya- maha R1. Ég elska Ameríku en mér finnst líka gott að kíkja til Amsterdam því litli stóri bróðir minn býr þar. Þar er alltaf fjör. Strigaskórnir. Ég er með smá „passion“ fyrir þeim. Derhúfuhillan. Það er stíll yfir þessu. Fallega píanóið mitt. Lj ós m yn d/ H ar i Hið feikivinsæla harmonikkuball Ungmennaráðs Seltjarnarness verður haldið í fjórða sinn þann 24. júlí næstkomandi. Nikkuballið hefur verið haldið hjá björgunar- sveitarhúsinu niður við smábáta- höfnina á Seltjarnarnesi við mikinn fögnuð bæði eldri og yngri borgara Nessins í fjögur ár. „Okkur fannst bara tilvalið að tengja okkar starf starfi eldri borgara. Skemmta okk- ur saman og brúa kynslóðabilið. En það eru auðvitað allir velkomn- ir. Þetta er frábær vettvangur fyrir fólk til að hittast á og hafa það gam- an saman. Þetta hefur alltaf verið ótrúlega vel heppnað og við bara lofum brjáluðu stuði. Vonandi verð- ur jafn gott veður og síðasta sumar en þá mættu um 100 manns,“ segir Friðrik Árni Halldórsson, meðlim- ur í Ungmennaráðinu. Hann segir samstarf yngri og eldri borgara á Nesiun ganga vonum framar. „Síðastliðinn vetur hefur Ung- mennaráðið staðið mánaðarlega fyrir viðburðum fyrir eldri borgara, eins og til dæmis Pub-Quizi sem var mjög vinsælt og nú í sumar skipu- leggjum við alfarið félagslíf þeirra og stöndum fyrir viðburðum, svo sem boccia-móti, félagsvist, bingói auk tölvukennslu. Þetta er bara ekk- ert smá gefandi og skemmtilegt starf, það kom mér eiginlega bara á óvart hvað þetta er skemmtilegt.“ Ungmennaráðið hvetur alla, unga jafnt sem aldna, til að mæta og njóta ballsins. Veitingar verða í boði og mun Gunnar Kvaran harmonikku- leikari leika undir dansi og auk þess sem boðið verður upp á hópsöng. Nikkuball á Nesinu 60 dægurmál Helgin 11.–13. júlí 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.