Fréttatíminn - 11.07.2014, Qupperneq 34
Alla þjálfara
dreymir um að
hafa leikmann
eins og Müller.
Það er ekki
hægt að stjórna
Messi, hann
dáleiðir þig.
Heimsmeistarakeppninni í Brasilíu lýkur núna um
helgina. Á laugardag er leika Brasilía og Holland um
bronsverðlaunin og á sunnudaginn er úrslitaleikurinn
sjálfur. Þjóðverjar og Argentínumenn spila þá um hinn
langþráða Gazzaniga bikar á Maracana vellinum í Rio
de Janeiro. Þessar þjóðir léku til úrslita í keppninni
1990 á Ítalíu og lauk þeim leik með sigri Þjóðverja 1-0,
þar sem Andreas Brehme skoraði sigurmarkið í annars
bragðdaufum leik.
Úrslitaleikurinn á HM í knattspyrnu
Messi gegn Müller
lionel
messi
Fæddur: 24. júní 1987, 27 ára
Landsleikir: 92
Mörk: 42
Fyrsti landsleikur: Gegn
Ungverjalandi í ágúst 2005
Félagslið: Barcelona 277/243
Lionel Messi er skær-asta stjarna knatt-
spyrnuheimsins í dag. Hann
hefur unnið allt sem hægt
er að vinna með Barcelona,
Spænska titilinn, konungs-
bikarinn og meistaradeildina.
Heimsbyggðin bíður eftir
því að hann leiði Argentínu
til metorða í heimsmeist-
arakeppninni líkt og Diego
Maradona gerði 1986. Ef
Messi tekur við bikarnum
á sunnudaginn léttir hann
ákveðinni pressu af sjálfum
sér og getur með sanni verið
kallaður besti leikmaður allra
tíma.
thomas
müller
Fæddur : 13. september 1989,
25 ára
Landsleikir: 55
Mörk: 22
Fyrsti landsleikur: Gegn
Argentínu í janúar 2010
Félagslið: FC Bayern 165/58
Thomas Müller er einn besti ungi sóknarmaður
heimsins í dag. Fyrrum þjálfari
hans hjá FC Bayern segir hann
með fádæma andlegan styrk
og Joachim Löw, þjálfari þýska
landsliðsins, segir hann vera
ónæman fyrir álagi.
Müller þarf aðeins að skora eitt
mark í úrslitaleiknum til þess að
verða markahæstur á mótinu
ásamt James Rodriguez frá
Kólumbíu. Hann var marka-
hæstur á mótinu fyrir 4 árum.
Þetta verður að kallast frábær
árangur hjá leikmanni sem ekki
er nema 25 ára gamall.
á sunnudaginn munu augu heimsbyggðarinnar vera á markaskorurum liðanna.
Þjóðverjanum Thomas Müller sem
hefur skorað 5 mörk í keppninni og
Argentínumanninum Lionel Messi
sem hefur skorað 4 mörk.
Bestu markmenn heimsmeistarakeppninnar
Það eru margir leikmenn búnir að láta ljós sitt skína á heims-
meistaramótinu í knattspyrnu og margir leikmenn hafa ekki
staðið undir væntingum. Hér ætlum við að beina athygli að
nokkrum sem hafa slegið í gegn og fara yfir bestu markverði
mótsins. Undirstaða velgengi knattspyrnuliða veltur oft á
frammistöðu markvarðanna og þessir hafa oft á tíðum borið lið
sín til hærri metorða.
- Jurgen Klins-
mann þjálfari
Bandaríkjanna.
- Sir Alex
Ferguson
fyrrum
þjálfari
Manchester
United
VARSTU
BÚIN AÐ
FRÉTTA
AÐ Á
FISKISLÓÐ
39 ER ...
landsins m
esta úrval b
óka,
á Forlagsve
rði?
stærsta kor
tadeild land
sins?
www.forlagid.is
Guillermo Ochoa
Mexíkó
Ochoa sem verður 29 ára daginn
sem úrslitaleikurinn er spilaður,
er búinn að eiga ótrúlegt mót og
frammistaða hans í keppninni
grunnurinn að góðu gengi Mexíkó.
Í leik Mexíkóa gegn Hollendingum
í 16 liða úrslitum hélt hann liði
sínu á floti með frammistöðu sinni
en var svo sigraður í vítaspyrnu í
uppbótartíma. Fyrir keppnina var
Ochoa ekki með samning við neitt
félag og með frammistöðu sinni er
hann einn eftirsóttasti markvörður
heims í dag.
Tim Howard
Bandaríkin
Það bjuggust ekki margir við miklu
frá Bandaríkjamönnum á HM í ár.
Verandi í riðli með Þjóðverjum,
Portúgal og spræku liði Gana. En
með sigri á Gana og jafntefli við
Portúgal þá komust þeir í 16 liða
úrslit, þvert á allar spár. Í 16 liða
úrslitum þurftu Belgar framleng-
ingu til þess að knýja fram sigur og
var það góður leikur Tim Howard
sem lagði grunninn að frábærum
varnarleik Bandaríkjamanna. Þessi
35 ára litríki markmaður sýndi að
lengi lifir í gömlum glæðum.
Keylor Navas
Kostaríka
Þessi 28 ára gamli markvörður
Kostaríka og Levante á Spáni
var ekki kunnugur mörgum fyrir
þetta mót. Ekki frekar en flestir
leikmenn Kostaríka. Navas átti
hvern stórleikinn á fætur öðrum
og gerði sér og lítið fyrir og varði
snilldarlega í vítaspyrnukeppninni
gegn Grikkjum í 16 liða úrslitum og
kom þjóð sinni í 8 liða úrslit í fyrsta
sinn í sögunni.
Manuel Neuer
Þýskaland
Án efa besti markvörður og jafn-
vel besti leikmaður keppninnar í
heild sinni. Neuer er búinn að eiga
hreint út sagt ótrúlegt mót. Leik
eftir leik sýnir hann styrk sinn sem
markvörður og stundum jafnvel
sem aftasti varnarmaður, eins og
hann gerði gegn Frökkum í 8 liða
úrslitunum.
Þessi 28 ára gamli, tæplega
2ja metra langi markvörður frá
Gelsenkirchen gæti orðið sá sem
skiptir sköpum í úrslitaleiknum á
sunnudaginn.
34 fótbolti Helgin 11.-13. júlí 2014