Fréttatíminn - 11.07.2014, Síða 36
Ó þessar Keflavíkurrætur
A
Auðvitað á maður ekki að skipta sér af
því sem manni kemur ekki við. Samt
ætla ég að gera það. Mér varð nefnilega
hugsað til Keflavíkur síðastliðið sunnu-
dagskvöld þegar ég horfði á prýðilegan
þátt um rokkarann og erkitöffarann
Rúnar Júlíusson, einn dáðasta son
Keflavíkur. Sá mæti maður féll frá síðla
árs 2008, fyrir aldur fram, aðeins 63 ára.
Ævistarf hans var magnað, söngurinn,
bassaleikurinn, lagasmíðarnar, plötuút-
gáfan og hljómsveitirnar. Ótalinn er þá
knattspyrnuferillinn en Rúnar var í hópi
Íslandsmeistara Keflavíkur árið 1964.
Knattspyrnan varð þó að víkja fyrir tón-
listinni. Hún varð ævistarf Rúnars.
Keflavík ungaði út poppurum í fram-
haldi af því fári sem hertók ungmenni og
kallað var bítlaæði, þegar hljómsveitin
The Beatles tók heiminn með trompi.
Keflavík varð bítlabærinn. Kanaútvarpið
og Kanasjónvarpið höfðu sín áhrif enda
fölnuðu menningarvitar þjóðarinnar og
vildu loka fyrir ómenninguna. Hljómar
frá Keflavík voru hinir íslensku bítlar.
Þar fór annar Keflvíkingur fyrir, Gunnar
Þórðarson, með rætur þó í annarri vík á
Ströndum. Rúnar var æsilegastur þeirra
Hljómapilta, æddi um sviðið í Glaumbæ,
stökk upp á hátalaraboxin og lét öll-
um illum látum. „Þessi dagfarsprúði
drengur varð sem sagt háskalegur útlits
og breyttist í algera ótemju þegar hann
spilaði opinberlega,“ sagði textahöfund-
urinn Þorsteinn Eggertsson um Rúnar
sextugan. Fjandinn varð sem sagt laus
þegar hann komst í ham á sviðinu, sagði
Þorsteinn og líkti honum að því leyti við
Mick Jagger, söngvara The Rolling Sto-
nes – en líkt og John Lennon, var Rúnar
„alltaf maður fjöldans; töffari, andhetja
og frægur fyrir hnyttin tilsvör og sér-
kennilegan orðaforða.“
Rúnar Júlíusson var stjarna sinnar tíðar
en alltaf trúr sínum uppruna og söng um
Keflavík, Keflavíkurnætur og bæjarsins
yndislegu dætur. „Manstu Ungó? Manstu
Krossinn? Manstu það sem
okkur dreymdi, flottu
lögin, fyrsta kossinn,
fiðringinn sem hjartað
geymdi?... ...Ó,
þessar Keflavík-
urnætur og þínar
yndislegu dætur, á
meðan minningin
grætur. Ó þessar
Keflavíkurrætur, um
nætur.“
Sá ágæti bær sem fékk þessa ástar-
játningu er nálægt höfuðborgarsvæðinu,
hefur verið í örum vexti og nýtur bæði
nálægðarinnar við það þéttbýla svæði
og Keflavíkurflugvöll – en þangað eiga
flestir Íslendingar reglulegt erindi, ýmist
vegna eigin utanferða eða til að koma ætt-
ingjum í flug eða sækja þá við heimkomu.
Þar sem ég sat makindalega í sófanum
og horfði á Rúnar og Jóhann Helgason
flytja lagið Ó Keflavík í fyrrnefndum
minningarþætti rifjaðist það upp fyrir
mér að Keflavík er eiginlega ekki til
lengur, nema kannski sem hverfi. Þegar
smærri byggðarlög voru sameinuð Kefla-
vík fyrir 20 árum, eða svo, var fylgt þeirri
undarlegu reglu að fella niður frægustu
bæjarnöfnin. Til varð Reykjanesbær.
Enn þann dag í dag þekki ég engan sem
fer til Reykjanesbæjar. Það fara allir til
Keflavíkur. Sá sem harðast barðist gegn
þessari nafnabreytingu á sínum tíma
var einmitt hinn rótgróni Keflvíkingur,
Rúnar Júlíusson. Þorsteinn Eggertsson
minnist þessarar baráttu tónlistarmanns-
ins í sextugsafmælisgreininni með þess-
um orðum: „En þótt Rúnar sé einstaklega
skapgóður að eðlisfari og ótrúlega þolin-
móður við uppvöðslusama aðdáendur
(eða öfundarmenn) þá getur hann verið
fjandanum ákveðnari og fastur fyrir
er svo ber undir. Hann hefur til dæmis
alltaf átt heima í Keflavík og hefur aðeins
einu sinni á ævinni flutt á milli húsa. Þó
lýsti hann því yfir á sínum tíma, þegar
breyta átti opinberu nafni Keflavíkur,
að hann flytti burt úr plássinu ef nafn-
inu yrði breytt – ef einhver vildi kaupa
húsið hans. Bara verst að hann býr í höll
sem er svo dýr að enginn hefur ennþá
treyst sér til að kaupa af honum. Svo að
úr varð að hann varð að sætta sig við að
búa í Reykjanesbæ (sem Keflavík heitir
núorðið á opinberum pappírum)...“
Keflavíkurnafninu var fórnað í ein-
hverjum hrepparíg, sem er alræmt fyrir-
brigði hérlendis. Sama gerðist í ýmsum
öðrum sameiningarmálum sveitarfélaga.
Selfoss varð Árborg. Þangað fer enginn
sem ég þekki, allir fara austur á Selfoss –
og geta svo sem komið við á Eyrarbakka
og Stokkseyri í leiðinni. Þegar ég fer
með konu minni að heimsækja ættingja
úr föðurætt hennar förum við rakleiðis
í Borgarnes en ekki Borgarbyggð, þótt
ein- hverjir sveitahreppar (með
fullri virðingu fyrir þeim)
hafi sameinast kaupstaðn-
um.
Hver veit til dæmis hvert
hin þekkta útvarpskona,
Gunna Dís, er að fara þegar sagt
er að hún sé orðin bæjarstjórafrú
í Norðurþingi? Ég fullyrði að þeir
eru fáir. Allir vita hins vegar hvert leið
hennar liggur þegar sagt er að hún sé að
flytja til Húsavíkur – en sá ágæti kaup-
staður tapaði opinberu heiti sínu við
hreppainnlimun fyrir nokkrum árum.
Sama gildir um þekkta staði á Suður-
landi. Maður er ekki lengi að skreppa á
Hellu, ef þannig stendur á en opinber-
lega heitir sá staður víst Rangárþing
ytra. Það væri gaman að sjá hvar menn
enduðu ef Hellunafninu væri ekki bætt
við í leiðarlýsingu. Vilji menn keyra að-
eins lengra, það er til nágrannabæjarsins
Hvolsvallar, dugar víst ekkert annað en
að leita að Rangárþingi eystra á kortinu.
Svo er hreppasameiningum fyrir að
þakka.
Við förum við ekki lengur vestur í
Ólafsvík heldur í Snæfellsbæ og enn
lengra í vesturátt til Vesturbyggðar, þeg-
ar við ætlum raunverulega á Patreksfjörð.
Fari menn hringveginn er betra að kíkja
eftir skilti sem á stendur Fljótsdalshérað
vilji menn koma við á Egilsstöðum.
Auðvitað koma mér þessar nafnabreyt-
ingar ekkert við. Menn kusu um þetta í
héraði og völdu nöfn, sumir kannski til-
neyddir eins og Rúnar Júlíusson. Samt
leyfi ég mér að leggja það til að menn
bakki með eina nafngift í allri þessari
skrýtnu sameiningarsúpu, sem sagt
að Keflavík öðlist sinn fyrri sess – og
Reykjanesbæjarnafninu verði lagt, þó
ekki væri nema í virðingarskyni við
Rúnar Júlíusson.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
36 viðhorf Helgin 11.-13. júlí 2014
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 02.07.14 - 08.07.14
1 2
5 6
7 8
109
43 Iceland Small World - lítil Sigurgeir Sigurjónsson
Piparkökuhúsið
Carin Gerhardsen
Niceland
Kristján Ingi Einarsson
Dægradvöl
Benedikt Gröndal
Vegahandbókin 2014
Steindór Steindórsson
Amma biður að heilsa
Fredrik Backman
Skrifað í stjörnurnar
John Green
Bragð af ást
Dorothy Koomson
Frosinn - Þrautir
Walt Disney
Frosinn - Anna og Elsa
eignast vin
Walt Disney