Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.07.2014, Síða 62

Fréttatíminn - 11.07.2014, Síða 62
Mummi ásamt Leoncie sem er gestur í þætti sem fjallar ekki um matargerð. Ljósmynd/istv  Fjölmiðlar Ný sjóNvarpsstöð Fer í loFtið í Næstu viku Við eigum eftir að gera öll mistökin Mummi í Mótorsmiðjunni er dagskrárstjóri nýrrar sjónvarpsstöðvar, iSTV, sem fer í loftið í næstu viku. Á stöðinni verður eingöngu send út íslenskt efni í opinni dagskrá. Söngkonan Leoncie verður meðal fyrstu gesta á stöðinni. i STV er hugafóstur nokkura manna sem síðla árs 2013 fannst íslenska sjónvarpsflóran eitthvað dapurleg og létu vaða á hugmyndina að hóa saman flottu fólki og opna nýja sjónvarpsstöð. „Okkur langaði að búa til sjónvarps- efni fyrir Íslendinga, um Íslendinga. Ætlum að tækla landið og miðin. Allt frá álfum yfir í jaðarsport,“ segir Týr Thorarensen, eða Mummi eins og hann er kallaður og hefur oft verið kenndur við Mótorsmiðjuna. Mummi er dagskrár- stjóri þessarar nýju stöðvar sem mun fara í loftið fimmtudaginn 17. júlí. Ásamt Mumma eru þeir Jón E. Árnason, sem er framkvæmdarstjóri og Björn Hauksson, eða Bonni ljósmyndari sem sér um mark- aðsmál, sem standa að þessari nýju stöð. „Við ætluðum að opna 17. júní en það tókst ekki vegna tækniörðugleika. Við erum í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg og húsið var bara ekki tilbúið nægilega fljótt fyrir þessa starfsemi. Í næstu viku byrjum við og erum öll alveg ótrúlega spennt.“ iSTV mun eingöngu senda út íslenska dagskrárgerð í opinni dagskrá sem er framleidd af stöðinni en í samstarfi við fjölda innlendra dagskrárgerðarmanna. Til að byrja með verður framleiddur 21 þáttur sem verður að kallast mikill metn- aður af svona lítilli grasrótarstöð. „Við munum frumsýna 3-4 þætti öll virk kvöld og vera með endursýningar um helgar. Það er kvikmynda- og dag- skrárgerðarfólk á hlaupum um allt land að búa til efni og þetta er gaman. Við ætlum ekki að nota fólk sem er þekkt á skjánum heldur langar okkur að smíða okkar eigin stjörnur. Það er svo mikið til af flottu fólki á Íslandi. Þetta er gríðar- lega erfitt en alveg svakalega gaman. Við eigum eftir að gera öll mistökin í bókinni, en öðruvísi lærir maður ekki og öðruvísi er þetta bara leiðinlegt.“ „Við lítum til stöðva eins og N4 og ÍNN sem hafa náð góðu flugi en okkur langar til þess að vera aðeins hraðari, og lítum til stöðvar eins og History Channel sem gerir skemmtilegt efni um allt milli him- ins og jarðar, á óvenjulegan og nýtísku- legan hátt.“ iSTV mun senda út í gegnum dreifi- kerfi Vodafone og á sama tíma inn á síðunni www.istv.is. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Við mun- um frum- sýna 3-4 þætti öll virk kvöld og vera með end- ursýningar um helgar. LaugaLandi í hoLtum Alvöru fjölskylduhátíð um verslunArmAnnAhelginA 1. -4 . ágúst. edrúhátíðin lifAndi tónlist og AllskonAr skemmtun og næring fyrir AllA fjölskyldunA nánAri upplýsingAr á saa. is Ragnheiður Gröndal í Vatnsmýrinni Ragnheiður Gröndal heldur tónleika við gróðurhús Norræna hússins laugardaginn 12. júlí klukkan 14. Þetta er þriðja sumarið í röð sem Norræna húsið býður upp á PIKKNIKK tónleika, sem er röð tónleika við gróðurhús Norræna hússins. Ef að veðrið er gott fara tónleikar fram utandyra en ef rignir fara þeir fram í sjálfu gróðurhúsinu. Hægt verður að kaupa veitingar af AALTO bistro. Norræna húsið hvetur alla til að koma og upp- lifa ljúfa tóna í fallegu umhverfi.  veitiNgar berNhöFtstorFaN Kaffihúsið Gæs opnar á ný á við Bernhöftstorfu, Lækjar- götu á næstu dögum. Síðasta sumar var kaffihúsið við Tjarnargötu og naut mikilla vinsælda. Fimm nemendur í starfstengdu diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun við Háskóla Íslands stóðu að kaffihúsinu í fyrra og ætla þau að endurtaka leikinn í ár og vinna nú hörðum höndum að undirbúningi opnunarinnar. Gangi allt að óskum verður kaffihúsið Gæs opnað á nýja staðnum núna um helgina. Kaffi Gæs verður í litlu, fallegu húsi sem Bauhaus lánaði til rekstrarins. Að sögn Steinunnar Ásu Þorvaldsdóttur verður kaffihúsið starfrækt út sumarið. Opið verður alla daga vikunnar frá klukkan 13 til 17. Aldrei er að vita nema óvæntar uppákomur og skemmtiatriði verði á dagskránni og verður það auglýst nánar þegar þar að kemur. Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðunni GÆS. -dhe Lára Steinars- dóttir og Steinunn Ása Þorvalds- dóttir eru nú í óðaönn að undir- búa opnun á kaffihúsinu Gæs við Bern- höftstorfu, Lækjargötu. Ljósmynd/Hari. Kaffi Gæs opnar á ný Kaleo í gull Fyrsta plata hljómsveitarinnar Kaleo, samnefnd sveitinni, hefur selst í fimm þúsund eintökum. Af þessu tilefni fengu meðlimir sveitarinnar afhenta gullplötu á fimmtudag. Til að fagna þessum merka áfanga býður sveitin aðdáendum sínum á tónleika á Gauknum á laugardagskvöld. Ný plata er í vinnslu og fyrsta lag af henni fer í spilun í lok þessa mánaðar. Ari Bragi á Jómfrúnni Kvintett trompet- leikarans Ara Braga Kárasonar kemur fram á næstu tón- leikum sumardjas- stónleikaraðar veitingahússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu á morgun, laugardag. Tveir góðir gestir frá Frakklandi eru með í för; söng- konan Cyrille Aimeé og gítarleikarinn Michael Valenau. Þórður Högnason leikur á kontrabassa og Einar Scheving á trommur. Leiknir verða valdir djassstandardar. Tónleikarnir fara fram utandyra á Jómfrúartorginu og hefjast klukkan 15. Aðgangur er ókeypis. 62 dægurmál Helgin 11.–13. júlí 2014

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.