Fréttatíminn - 12.12.2014, Qupperneq 4
Fjölskylduband
Verð frá 34.000 kr.
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Birtir upp með hægum vindi,
en nokkru frosti.
höfuðBorgarsvæðið: Vetrarsól,
en él um kVöldið.
víða um land él eða snjómugga
í fremur hægum vindi.
höfuðBorgarsvæðið: snjóar
um miðjan daginn.
gengur í hvassa n-átt með snjókomu
og líklegri ófærð n- og nv-til.
höfuðBorgarsvæðið: HVassir
með skafrenningi og éljum.
snjóinn er ekki að taka upp
Áfram vetur svo um munar á landinu.
stund milli stríða í dag, en él úr vestri
í kvöld og nótt. lægð myndast fyrir
vestan land og fer yfir á laugardag með
snjómuggu eða éljum víða, síst þó a-til.
ekki vindur að ráði fyrr en lægðin hefur
náð að dýpka fyrir austan land
aðra nótt, og á sunnudags-
morgun gengur í n-storm
með hríðarbyl, fyrst á
Vestfjörðum. skafrenn-
ingur einnig sunnan- og
suðvestantil. Horfur eru á
freða og enn meira fann-
fergi eftir helgi.
-7
-6 -10
-5
-10
-1
-3 -8 -13
-4
-2
-3 -4
-7
-3
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
vikan sem var
linda lokar
Baðhúsinu
linda Pétursdóttir hefur lokað
líkamsræktarstöðinni Bað-
húsinu. Baðhúsið flutti úr
Brautarholti í smáralind fyrir ári
síðan. segir linda að rekstrar-
grundvellinum hafi verið kippt
undan því sökum þess að ekki
var staðið við fyrirheit um
frágang húsnæðisins.
Bauð Malölu í heimsókn
sig mund ur davíð gunn laugs son
for sæt is ráðherra kveðst hafa boðið
friðarverðlaunahafa nóbels, malölu
Yousafzai, í heimsókn til Íslands. „ég
var rétt ný bú inn að bjóða henni í
heim sókn til Íslands þegar til kynnt var
um að hún fengi verðlaun in,“ segir
sigmundur á facebook-síðu sinni.
10,8
milljörðum króna veltu stóru korta-
fyrirtækin þrjú á síðasta ári.
Nóatúni vestur í bæ lokað
Versl un nóa túns í jl-hús inu við
Hring braut verður lokað eft ir ára mót.
eig end ur hús næðis ins hafa uppi áform
um að breyta hús næðinu í hót el eða
gisti heim ili.
114.594
krónur fékk dr. gunni í stefgjöld fyrir
lagið glaðasti hundur í heimi sem var
eitt vinsælasta lag ársins í fyrra. „ég
er löngu hættur að skilja stefið,“ segir
tónlistarmaðurinn.
70 milljónir í Karolina Fund
alls hafa 89 verkefni verið fjármögnuð
á þeim tveim ur árum sem hóp fjár-
mögn un ar vefsíðan karol ina fund
hef ur verið starf rækt. Yfir níu þúsund
einstaklingar hafa lagt sitt af mörkum.
Þess ir ein stak ling ar hafa heitið hátt í
hálfri millj ón evra eða um 70 millj ón-
um króna til þess ara verk efna.
É g trúi því ekki að það komi til þess að læknar muni segja upp. Ég trúi ekki að til þess komi að við
Íslendingar stöndum uppi án nægra sér-
fræðilækna,“ segir Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra.
Hann segist ekki bera ábyrgð á samn-
ingum ríkisins við lækna, heldur fjármála-
ráðherra, sem fer með alla kjarasamninga
ríkisins. Ábyrgð heilbrigðisráðherra sé
á veitingu þjónustunnar. „Það er ekki á
mínu verksviði að semja um kaup og kjör
en ég kem mínum sjónarmiðum á fram-
færi,“ segir Kristján. „Ég hef verulegar
áhyggjur af stöðunni og tel brýnt að við
fáum botn í þessar kjaradeilu. Það er
ljóst að hún hefur áhrif á heilbrigðis-
þjónustuna. Ég tel hins vegar ekki að um
pattstöðu sé að ræða þar sem ég veit það
fyrir víst að verið er að ræða launakröfur
og á meðan viðræður eru í gangi er ekki
pattstaða,“ segir Kristján. „Mér finnst
viðræðurnar hins vegar ekki þokast nógu
hratt og vildi ég fá botn í þessa deilu sem
allra fyrst,“ segir hann.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra,
segir að launahækkanir lækna upp á
marga tugi prósenta ógni stöðugleik-
anum. „Er það sanngjörn krafa að hækka
laun lækna sem nemur einum meðal-
launum fólksins í landinu, þar sem læknar
hafa á bilinu 1.100 til 1.350 þúsund krónur
í mánaðarlaun?” spyr hann.Bjarni sagði
afar brýnt að leysa deiluna sem fyrst, hún
snúist bæði um launatöflu og vinnufyrir-
komulag. Hann bendir á að yfir 30 samn-
ingafundir hafi engum árangri skilað.
Enginn nýr fundur hefur verið boðaður í
kjaradeilu lækna og ríkisins eftir að fundi
hjá ríkissáttasemjara lauk á þriðjudag, án
árangurs. Að sögn Helga Kjartans Sig-
urðssonar, formanns Skurðlæknafélags Ís-
lands, voru engar nýjar tillögur á borðinu.
„Ríkissáttasemjari mat stöðuna þannig að
á meðan ekki væri meira umboð til samn-
inga þá væri ekki ástæða til að boða til nýs
fundar. Það hafa engin raunveruleg tilboð
borist frá ríkinu. Þeir buðu 2,8% frá byrjun
og hafa lítið hvikað frá því,“ segir hann.
Læknar munu herða verkfallsaðgerðir
sínar eftir áramót. Verkfall þá hefur þau
áhrif, að engar skipulagðar aðgerðir verða
framkvæmdar nema á föstudögum og hafa
margir læknar boðað að þeir muni segja
upp störfum leysist launadeilan ekki fyrir
áramót.
Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir
segir að samningsaðilar hafi hámark tvær
vikur til að semja, annars muni læknar
segja upp og nær óbætanlegt tjón verði.
„Þó svo að læknar hafi samþykkt að halda
verkfallsaðgerðum áfram eftir áramót hef
ég heyrt marga kollega lýsa því yfir að
þeir muni frekar flytja úr landi en að bjóða
skjólstæðingum sínum upp á áframhald-
andi verkfallsaðgerðir. Það er erfitt fyrir
lækna að horfa upp á ástandið sem nú er
uppi og sjá hvernig það bitnar á sjúkling-
um okkar,“ segir Tómas.
sjá umfjallanir um ástandið í
heilbrigðiskerfinu á síðum 22 og 52.
sigríður dögg auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
eva magnúsdóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
læknadeilan kristján Þór segir viðræður ekki Þokast nógu hratt
Heilbrigðisráðherra trúir
ekki að læknar segi upp
kristján Þór júlíusson heilbrigðisráðherra trúir því ekki að til þess komi að læknar muni segja
upp. Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir segir að samningsaðilar hafi hámark tvær vikur að
semja, annars muni læknar segja upp og nær óbætanlegt tjón verði. Helgi sigurðsson, formaður
skurðlæknafélags Íslands, segir ekkert þokast í viðræðum.
Enginn nýr fundur hefur verið
boðaður í kjaradeilu lækna og
ríkisins eftir að fundi hjá ríkis-
sáttasemjara lauk á þriðjudag,
án árangurs.
kristján Þór júlíusson
heilbrigðisráðherra
segist ekki trúa að
til þess komi að
læknar segi upp og
Íslendingar standi
uppi án nægilegs
fjölda sérfræðilækna.
Ljósmynd/Hari
4 fréttir Helgin 12.-14. desember 2014