Fréttatíminn - 12.12.2014, Síða 8
Samband íslenskra sveitarfélaga
hefur sent hvatningu til sveitarfé-
laga um að gera átak í að hækka
menntunarstig starfsmanna leik-
skóla. Aðeins þriðjungur starfsfólks
á leikskólum hefur leikskólakenn-
aramenntun og miðað við aðsókn
í leikskólakennaranám undanfarin
ár mun ekki takast að uppfylla laga-
skyldur stjórnvalda um að tveir
þriðju hlutar starfsmanna leikskóla
séu með leikskólamenntun.
Karl Björnsson, framkvæmda-
stjóri SÍS, segir í bréfi til sveitar-
félaganna þann 4. desember að
kostnaður við nám geti hindrað fólk
við að afla sér menntunar en úrræði
sem beina athyglinni að launaíviln-
un eða sveigjanleika í starfi væri
til þess fallin að auka líkur á því
að starfsfólk leikskóla sjái sér fært
að sækja leikskólakennaranám. Þá
bendir hann á að einhver sveitarfé-
lög bjóða þegar upp á svigrúm til
að stunda fagtengt nám án launa-
skerðingar. „Sum sveitarfélög hafa
boðið upp á ferðastyrki og styrki til
námsefniskaupa. Þá hafa einhver
farið þá leið að bjóða upp á náms-
styrki til nema á lokaári. Þessar að-
gerðir hafa í flestum tilfellum skilað
sveitarfélögum auknum fjölda leik-
skólakennara,“ segir Karl. -eh
Menntun Aðeins þriðjungur hefur leikskólAkennArAMenntun
Hækka þarf menntunarstigið
MArkAðsherferð festi jeppA í reynsluAkstri við kleifArvAtn
David Sneath, yfirmaður alþjóðlegrar markaðsdeildar Land Rover, segir umhverfisspjöll við
Kleifarvatn hafa verið mannleg mistök sem fyrirtækið harmi. Hann segir ábyrgðina vera farar-
stjórans, sem hafi leyft blaðamanni að keyra niður að vatni.
v ið erum algjörlega miður okkar og hörmum það sem gerðist,“ segir David
Sneath, yfirmaður alþjóðlegrar
markaðsdeildar Land Rover, en
hann er einn þeirra aðila sem sjá um
skipulagningu Land Rover mark-
aðsherferðarinnar sem nú stendur
yfir á Íslandi.
„Þetta er að sjálfsögðu alls ekki
það sem við viljum að okkar bílstjór-
ar geri og við erum gjörsamlega nið-
urbrotin yfir þessu máli. Þessi slóði
var alls ekki inn á okkar plönum og
við vitum að það er stranglega bann-
að að keyra utan vega á Íslandi. Allir
sem reynsluaka okkar bílum vita að
Land Rover samþykkir ekki utan-
vegaakstur.“
Mannleg mistök
Nýjasti jeppinn frá Land Rover,
Discovery Sport, er ekki enn kom-
inn á markað en fjöldi eintaka er á
landinu sem nýtast til prufukeyrslu
fyrir erlenda blaðamenn. Í mynd-
bandi á vef Sunday Times var hægt
að sjá blaðamann festa einn jepp-
ann í sandi við Kleifarvatn og valda
þar spjöllum á landinu. Umhverfis-
stofnun mat út frá myndbandinu að
blaðamaður hefði stundað ólögleg-
an utanvegaakstur en það er brot
sem varðar allt að tveggja ára fang-
elsisvist. Myndbandið hefur nú ver-
ið fjarlægt að vef blaðsins.
David Sneath segir utanvega-
aksturinn hafa verið slys sem
reiknist á fararstjóra hópsins. „Því
miður þá leyfði einn fararstjórinn,
sem er breskur og vinnur fyrir
Land Rover, einum blaðamanni að
keyra niður að vatni. Sandurinn var
hvítur svo blaðamaðurinn sá ekki
hvert hann var að fara. Þetta um-
hverfisslys reiknast algjörlega á
fararstjórann fyrir að leyfa blaða-
manninum að keyra í sandinn, en
við ítrekum að þetta voru mannleg
mistök.“
Vinna alltaf með Vegagerðinni
David segir alla vera mjög vel upp-
lýsta áður en haldið er af stað í
reynsluakstur út á land og að skipu-
leggjendur slíkra ferða vinni alltaf í
samstafi við Vegagerðina. Sé keyrt
á einkalandi er alltaf séð til þess að
öll leyfi séu til staðar.
„Allir okkar bílstjórar fá plan yfir
hvert má keyra og hvert má ekki
keyra en ég held að þessi blaðamað-
ur hafi bara ekki skilið almennilega
hvar vegurinn endaði og hvar hann
byrjaði. Hann er algjörlega miður
sín yfir því að hafa komið fólki í
uppnám, líkt og við hjá Land Rover
erum líka.“
Aðspurður þá telur David það ráð-
legt að það sé alltaf reyndur íslensk-
ur leiðsögumaður með í för. „Við
erum alltaf með íslenska leiðsögu-
menn með okkur og þennan dag
voru fimm slíkir til staðar. Vanda-
málið var að það voru sex tímarit
á staðnum að mynda og eitthvað
fór úrskeiðis. Við ítrekum hversu
leiðinlegt okkur finnst þetta vera og
biðjum innilegrar afsökunar. Okkar
stefna er að skilja alltaf við landið
eins og við komum að því.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Land Rover biðst afsök-
unar á utanvegaakstri
Blaðamaður Sunday Times festi Land Rover-jeppa í utanvegaakstri hér á landi. Myndband af utanvegaakstrinum var birt á vef
blaðsins en hefur nú verið fjarlægt. Yfirmaður alþjóðlegrar markaðsdeildar Land Rover biðst afsökunar á utanvegaakstrinum.
PI
PA
R
\T
BW
A
•
S
ÍA
•
1
44
33
Sími: 4115555 og 5303002
Desembertilboð
á vetrarkortum
Fullkomin jólagjöf fyrir fjölskylduna,
vini og vandamenn!
Vetrarkort í Bláfjöll og Skálafell
eru komin í sölu og fást í Hinu húsinu,
Pósthússtræti 3–5 og Mohawks, Kringlunni.
Pantaðu og fáðu sent í síma 5303002
eða á midar@skidasvaedi.is.
Opið alla virka daga kl. 9–13 og 13:30–17.
Vetrarkort í Bláfjöll og Skálafell
Draumahöllin
FULL BÚÐ AF NÝRRI OG SPENNANDI SMÁVÖRU
IT’S ABOUT
ROMI kertastjaki
snjókorn 1.190 kr.
IT’S ABOUT
ROMI kertastjakar
(nokkrar gerðir) tilboðsverð
2.390 / 4.790 kr.
20% kynningar-
afsláttur alla
helgina!
IT’S ABOUT
ROMI stór pera
tilboðsverð
3.190 kr.
IT’S ABOUT
ROMI kerti könglar
tilboðsverð 2.390 /
3.190 kr.
R E Y K J AV Í K | A K U R E Y R I
IT’S ABOUT
ROMI vasi
(einnig til
í brons)
tilboðsverð
7.990 kr.
IT’S ABOUT ROMI
Prague ljós, 24 cm.
tilboðsverð 23.990 kr.
IT’S ABOUT
ROMI smádýr, sett
tilboðsverð 3.990 kr.
8 fréttir Helgin 12.-14. desember 2014