Fréttatíminn - 12.12.2014, Blaðsíða 10
Jólaíspinnar
frá Emmessís
S læm tannheilsa fanga er gríðarlegur vandi. Margir þeirra sem eru árum saman í
fangelsi eru jafnvel með gjörónýtar
tennur og sumir jafnvel að verða
tannlausir,“ segir Guðmundur Ingi
Þóroddsson, formaður Afstöðu –
félags fanga. Fram til ársins 2008
fengu fangar styrk frá Fangelsis-
málastofnun til tannlæknaþjónustu
en hann var afnuminn með þeim
rökum að tannlæknaþjónusta væri
hluti af almennri heilbrigðisþjón-
ustu. Velferðarráðuneytið er með
samninga við heilbrigðisstofnanir
vegna slíkrar þjónustu en tannheil-
brigði hefur borið upp á sker.
„Þetta er viðurkennt vandamál.
Vegna þess hvernig fangahópurinn
er samsettur er almennt heilsu-
far þeirra verra en annarra og
tannheilsa er jafnvel sérstaklega
slæm,“ segir Anna Björg Aradóttir,
sviðsstjóri hjá embætti landlæknis.
Anna hefur verið í sambandi við
Guðmund vegna ábendinga hans
um hversu slæmt ástandið er og
þekkir vandann. Bæði hafa þau
síðan haft samband við velferðar-
ráðuneytið en einu svörin sem þau
fá eru þau að fangar sem ekki hafa
efni á að borga sjálfir fyrir tann-
læknaþjónstu geti sótt um styrk til
síns sveitarfélags til að greiða fyrir
tannlæknaþjónustu. Það virðist því
sem engar úrbætur séu væntan-
legar.
Fjárhagur fanga er afar mis-
jafn og bendir Guðmundur Ingi
á að þó fangar geti unnið innan
fangelsanna sé það ekki nægjan-
legt. Launin séu það lág að þetta
dugi ekki fyrir tannlæknakostnaði
en hann segir algengt að fangi
geti unnið sér inn 3 þúsund krónur
á viku sem eigi þá að duga fyrir
nauðsynjum. „Það er dýrt að fara
til tannlæknis og fangar gerðu þá
ekkert við þá peninga sem þeir
vinna sér inn nema fara til tann-
læknis,“ segir Guðmundur og seg-
ir það ekki ríma við að fangavist
eigi að vera betrun þar sem vinnan
er hluti af betruninni. „Það hefur
líka áhrif á sjálfsmynda að vera
með ónýtar tennur og sumir fang-
anna eru með virkilega illa farnar
tennur,“ segir hann. Guðmundi
finnst staðan ólíðandi og ætlar
ekki að láta hér við sitja heldur
halda áfram að þrýsta á ráðuneytið
um úrbætur.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
HeilbrigðiSmál TannHeilSa fanga á ÍSlandi óviðunandi
Fangar með ónýtar tennur
– sumir að verða tannlausir
Slæm tannheilsa fanga er viðurkennt vandamál en þrátt fyrir það er tannlæknaþjónusta fyrir
þá ekki niðurgreidd á neinn hátt. Fangelsismálastofnun styrkti fanga um tíma en sá styrkur var
afnuminn með þeim rökum að tannheilsa falli undir almenna heilsugæslu sem velferðarráðu-
neytið tryggir föngum. Formaður félags fanga segir ástandi ólíðandi.
Tannheilsa fanga, sérstaklega þeirra sem eru komnir á aldur og hafa verið jafnvel árum saman í fangelsi, er oft afar slæm.
Guðmundur Ingi fékk leyfi fanga til að birta þessa mynd.
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður
Afstöðu – félags fanga, segir ólíðandi að
fangar fái ekki tannlæknaþjónustu líkt
og aðra heilbrigðisþjónustu sem vel-
ferðarráðuneytið semur um fyrir þá.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gjafakort
Borgarleikhússins
Gefðu töfrandi stundir í jólapakkann. Kortið
er í fallegum umbúðum, gildir á sýningu
að eigin vali og rennur aldrei út.
www.icewear.is
ÞINGHOLTSSTRÆTI, REYKJAVÍK - HAFNARSTRÆTI, AKUREYRI
LOÐSKINN
STÓRLÆKKAÐ VERÐ TIL JÓLA!
ÆSA Kragi úr kanínuskinni
kr. 12.700
VÉDÍS Kragi úr kanínuskinni
kr. 10.300
6.480Tilboð 7.980Tilboð
10 fréttir Helgin 12.-14. desember 2014