Fréttatíminn - 12.12.2014, Blaðsíða 30
A
nna Þóra Björnsdóttir er alin
upp í vesturbænum í Reykjavík,
dóttir Björns Guðjónssonar,
tónlistarmanns og stofnanda
Skólahljómsveitar Kópavogs
og Ingibjargar Jónasdóttur. „Ég er alin upp
af föður sem var erfiður. Hann var ekki til
staðar, ekki fyrir mig. Hann tengdi meira
við músíkina og djammið og réð ekkert við
að eiga dóttur,“ segir Anna Þóra. „Við vorum
samt alveg rosalega nánir vinir. Maðurinn
minn skildi ekkert þetta samband okkar
systkinanna við föður okkar, þegar við
vorum að kynnast. Mér fannst ekkert tiltöku-
mál að sækja bróður minn um miðjar nætur
þegar hann var kannski að spila á böllum,
eða pabba sem hafði þá verið á barnum,“
segir Anna Þóra.
„Bróðir Önnu, Jónas Björnsson, var
trommari um árabil en lést af slysförum fyrir
17 árum. „Foreldrar mínir voru bæði miklir
húmoristar, bæði mjög fyndin og mamma
enn fyndnari en pabbi. Hún fór bara svo
fínt með það, en hún var stríðin. Mitt upp-
eldi var ekki eins og hjá venjulegu fólki. Það
var mikið um fíflagang, það var alltaf stutt
í grínið. Við vorum öll með ADHD, það er
alveg á hreinu,“ segir Anna. „Frænka mín,
sem stofnaði ADHD samtökin, sagði mér
mörgum árum seinna að ég, Jónas bróðir og
pabbi höfum öll verið með ADHD. Það hefur
pottþétt verið mjög erfitt fyrir mömmu að
búa með þessum vitleysingum.“
Uppistandsögrun
Anna Þóra tók þá ákvörðun á dögunum að
fara á uppistandsnámskeið. Hún segir það
eingöngu hafa gerst því henni leiddist. „Við
hjónin erum orðin svo mikið tvö ein á kvöld-
in. Strákarnir okkar eru á aldrinum 18 ára
til næstum þrítugs og ég hugsaði bara hvað
ég á að gera við þennan tíma. Á ég að tala við
manninn minn?“ segir Anna Þóra og hlær.
„Við vinnum saman alla daga og erum búin
að tala um allt allan daginn, við erum saman
allan sólarhringinn. Við ákváðum að fara
bæði á einhver námskeið. Gylfi fór í HR að
læra að reka fyrirtæki, sem við höfum gert í
19 ár. Ég nennti því alls ekki, svo ég byrjaði
að skrá mig á námskeið í smásagnagerð,“
segir Anna. „Það var fullt af fólki sem hafði
sagt mér að skrifa einhverjar sögur. Mér
fannst rosalega leiðinlegt á þessu námskeiði
Þarf ekki að
vera innan um
leiðinlegt fólk
Anna Þóra Björnsdóttir er 52 ára gömul, þriggja barna móðir
sem rekið hefur gleraugnaverslunina Sjáðu við Hverfisgötu
ásamt manni sínum, Gylfa Björnssyni, í 19 ár. Hún fór út
fyrir þægindarammann á dögunum og
skráði sig á uppistandsnámskeið
hjá leikaranum Þorsteini Guð-
mundssyni. Hún hefur gaman
af því að tala og enn meira
af því að hlæja. Hún segir
að húmorinn hjálpi öllum
og nýtti hann í sjálfshjálp
þegar á reyndi.
Framhald á næstu opnu
30 viðtal Helgin 12.-14. desember 2014