Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.12.2014, Síða 52

Fréttatíminn - 12.12.2014, Síða 52
Þ að verður hér nær óbætan- leg ástand í mjög langan tíma ef ekki verður samið við lækna f ljótlega, því læknar munu segja upp,“ segir Tómas Guðbjarts- son, prófessor og hjarta- og lungnaskurð- læknir á Landspítalanum. „Ástandið verður erfiðast í sérgreinunum eins og nýrnalækningum, meltingarlækningum og myndgreiningu, svo ég tali nú ekki um krabbameinslækningar þar sem skortur hefur verið á sérfræðingum í nokkur ár,“ segir hann. Tómas vakti athygli á dögunum vegna aðgerðar sem gerð var á manni sem fékk hnífstungu í hjartað. Aðgerðin þótti mikið afrek og er fáheyrt að það takist að bjarga lífi einstaklings með jafn alvarlega áverka á hjarta og í þessu tilfelli. Tómas stýrði einnig teymi lækna og hjúkrunarfræðinga sem björguðu lífi manns sem ráðist var á á lögmannsstofu fyrir tæpum tveimur árum. Sú björgun þótti einnig mikið afrek. Þá var Tómas hluti af alþjóðlegu teymi sem vakti heimsathygli fyrir að græða fyrsta plast- barkann í sjúkling árið 2011. Það sem færri gera sér hins vegar grein fyrir að fyrir réttum tveimur árum gekkst Tómas sjálfur undir aðgerð á ennisholum vegna síendurtekinna sýkinga sem hann hafði glímt við í næstum tvö ár. Hann var ekki eini sérfræðilæknirinn sem var með skrifstofu í gömlu Landspítalabygging- unni á Hringbraut sem hafði átt við svipuð veikindi að stríða heldur höfðu tveir aðrir sérfræðilæknar gengist undir sams kon- ar aðgerð. Um svipað leyti kom upp leki á gjörgæsludeildinni á Hringbraut eftir miklar rigningar. Rannsókn leiddi í ljós að byggingin var sýkt af myglu og voru ein- kenni læknanna rakin til þess. Tómas er nú, tveimur árum eftir að skrifstofu hans var lokað, loks að ná sér af veikindum sem drógu úr honum þrótt. Það er ömurleg staðreynd að Landspítalinn sé í bókstaf- lega heilsuspillandi vinnustaður, eins og hann orðar það sjálfur. Þegar upp komst um mygluna var afráð- ið að koma upp skrifstofugámum á lóðinni við Hringbraut. Ekkert bólar á þeim enn, nær tveimur árum síðar. „Ég hef ekki val að færa mig til í starfi. Hér við Hringbraut eru hjartaskurðstofurnar og ég get ekki hugsað mér að hætta í hjarta- og lungna- skurðlækningum og fara að gera eitthvað annað. Það er hins vegar ekki spennandi að starfa á vinnustað sem gerir mann veik- an,“ segir Tómas. „Þetta er auðvitað allt mjög tragískt og endurspeglar úrræðaleysið á Landspítal- anum. Ástandið má ekki rekja til stjórn- unarvanda á spítalanum sem einfaldlega er skammtað alltof lítið fé. Það er auð- veld ákvörðun að velja á milli þess að nota rekstrarfé í að þétta glugga eða halda uppi krabbameinsmeðferð. Ég óttast hinsvegar að viðhald húsnæðis verði enn eitt árið lát- ið sitja á hakanum því fjárlög næsta árs eru mikil vonbrigði,“ segir hann. Vantar 1,8 milljarð í rekstur spítal- ans Tómas á sæti í prófessoraráði Landspít- alans en ráðið hefur mörg undanfarin ár barist fyrir auknum fjárframlögum til Landspítalans. „Að mati okkar í prófess- oraráðinu vantar 1,8 milljarð inn í rekstur Landspítalans, bara til að halda sjó. Pers- ónulega finnst mér því fjárlögin núna eins og köld vatnsgusa í andlitið. Fyrir ári síðan barðist prófessoraráðið fyrir almennilegri viðspyrnu sem ekki varð af þótt framlög til spítalans væru aukin. Fjárlög næsta árs er heldur ekki hægt að kalla viðspyrnu, þar sem féð nægir ekki einu sinni til að sinna grunnrekstri. Því er ljóst að frekari hag- ræðingu þarf til,“ segir Tómas. „Pólitík- usar segja að aldrei hafi verið varið meira fé til spítalans. Við sem störfum á gólfinu á Landspítalanum erum því ekki sammála,“ segir Tómas og bendir á að spítalinn sé rekinn án aukinna fjárframlaga og niður- skurði ár frá ári. Í löndunum í kring um okkur séu fjárframlög til heilbrigðiskerf- isins aukin um 1 prósent að jafnaði frá ári til árs vegna aukins kostnaðar sem hlýst af auknum fjölda aldraðra og hækkandi meðalaldri. Raunverulegur niðurskurður til Landspítalans sé því meiri en tölurnar gefi til kynna. Heilbrigðisstarfsfólk of duglegt að spara Tómas segir að sumu leyti óheppilegt að læknaverkfallið beri upp á sama tíma og þegar fjárlögin voru sett fram því þessu tvennu eigi ekki að blanda saman, baráttu lækna fyrir leiðréttingu á kjörum sínum og auknum fjárveitingum til heilbrigðis- kerfisins. „Við læknar verðum að líta í eig- in barm og getum svolítið sjálfum okkur um kennt hvernig komið er, við höfum dregist aftur úr öðrum viðmiðunarstéttum í dagvinnulaunum og börðumst ekki nægi- lega fyrir kjörum okkar frá hruni vegna ástandsins í þjóðfélaginu. Við hefðum fyr- ir löngu átt að vera búnir að spyrna við fótum,“ segir Tómas og vísar til þess að á árunum fyrir hrun hafi verið komin upp umræða meðal lækna um nauðsyn þess að leiðrétta launin, sérstaklega dagvinnu- laun yngri lækna. Síðan hafi komið hrun og læknar hafi kosið að halda sig til hlés meðan efnahagskreppan gengi yfir. „Að mínu mati var heilbrigðisstarfsfólk á Íslandi of duglegt við að spara eftir hrun- ið. Spítalinn tók á sig miklu þyngri byrð- ar en hann hefði átt að gera. Þetta varð því eins konar rússneskur bónus, okkur var gert að spara og það gerðum við, og í verðlaun var okkur fyrirlagt að spara enn meir. Það er hægt að keyra svona að- haldsaðgerðir í 2-3 ár, en nú eru komin sex ár frá hruni og það er rosaleg þreyta komin í mannskapinn, ekki bara lækna heldur líka hjúkrunarfræðinga og annað heilbrigðisstarfsfólk. Þegar það vantar 2-3 ræðara í tíu manna báti gefst fólk einfald- lega upp, og það er það sem er að gerast núna,“ segir hann. „Það hefur orðið ákveðinn trúnaðar- brestur milli stjórnvalda og starfsfólks. Það sést vel á því hve mikill stuðningur er við verkfallsaðgerðir okkar meðal ann- ara heilbrigðisstarfsmanna en einnig hjá almenningi. Fram að þessu hafa læknar varla íhugað að fara í verkfall, það stríðir einfaldlega gegn öllu því sem starf okkar stendur fyrir. Við verðum hins vegar leið- rétta kjör lækna svo ungir sérfræðingar fáist til að vinna hér á landi,“ segir Tómas. Hámark tvær vikur til að semja „Ég met stöðuna þannig að samningsað- ilar hafi að hámarki tvær vikur til þess að ná saman – annars geti orðið nær óbætan- legt tjón. Þó svo að læknar hafi samþykkt að halda verkfallsaðgerðum áfram eftir áramót hef ég heyrt marga kollega lýsa því yfir að þeir muni frekar flytja úr landi en að bjóða skjólstæðingum sínum upp á áframhaldandi verkfallsaðgerðir. Það er erfitt fyrir lækna að horfa upp á ástandið sem nú er uppi og sjá hvernig það bitnar á sjúklingum okkar. Síðar í dag þarf ég að Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir á Land- spítalanum vakti athygli á dögunum vegna aðgerðar á manni sem fékk hnífstungu í hjartað. Þetta er ekki eina afrek Tómasar sem þykir á heimsmælikvarða. Færri vita hins vegar að hann er rétt um þessar mundir að ná sér af veikindum sem hann hefur glímt við í fjögur ár sem or- sökuðust af myglu í gömlu Landpítalabyggingunni við Hringbraut. Hann er harðorður um stöðu heilbrigðiskerfisins og segir trúnaðarbrest milli stjórnvalda og heilbrigðisstarfsfólks. Tómas segir að semjist ekki í læknadeilu innan tveggja vikna verði hér nær óbætanlegt ástand því læknar muni flytja úr landi. Ég vil ekki hætta hjartaskurð- lækningum „Ég held að stjórnvöld ofmeti þolinmæði lækna. Ég finn mikla beiskju og pirring hér á göngunum, en um leið mikla sam- stöðu um að lengra verði ekki gengið á rétt sjúkra og heilbrigðisstarfs- manna,“ segir Tómas Guðbjartsson, prófessor og hjarta- og lungna- skurðlæknir á Land- spítalanum. Ljósmynd/Hari Framhald á næstu opnu 52 viðtal Helgin 12.-14. desember 2014
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.