Fréttatíminn - 12.12.2014, Qupperneq 60
Hreindís Ylva
heitir nú Ilva
Holmes
A kkúrat núna býst ég við að vera áfram hér í London. Hér finnst mér æðislegt að
vera og hér er fullt af tækifærum,“
segir Hreindís Ylva Garðarsdótt-
ir Holm, 25 ára íslensk leikkona í
London.
Hreindís Ylva er fasta-
gestur á sjónvarpsskjám
landsmanna um þessar
mundir því hún leikur
aðalhlutverkið í nýrri
ímyndarherferð Ice -
landair - um íslensku
stúlkuna sem er föst
úti yfir jólin en fær svo
óvænt fjölskylduna til
sín.
Skólinn mælti með
því að skipta um nafn
Hreindís útskrifaðist úr
Guildford-leiklistarskól-
anum í fyrravor og hefur
síðan verið að koma sér
á framfæri. „Ég er búin
að vera að gera hitt og
þetta. Ég hef leikið í
stuttmyndum og svo hef
ég fengið tvö aukahlut-
verk í myndum í fullri
lengd. Og svo þess -
ari auglýsingu,“ segir
Hreindís í símtali frá
London.
Nafnið Hreindís Ylva
Garðarsdóttir Holm er
sjálfsagt ekki þjált fyrir
Breta og því hefur leik-
konan tekið upp nýtt
nafn þar í landi, til að
koma sér á framfæri.
Hún kallar sig nú Ilva
Holmes. „Ég breytti
bara yfir í venjulegt i
svo það yrði borið rétt
fram. Og svo bætti ég aðeins við
Holm-nafnið. Skólinn mælti með
því fyrst ég var búinn að losa mig
við allan hreiminn að ég gerði
sjálfri mér greiða og breytti nafn-
inu.“
Ekki búin að festa ræturnar í
London
Guildford er lítill bær fyrir utan
London. Hreindís er ekki fyrsti Ís-
lendingurinn sem nemur þar leik-
list, Halla Vilhjálmsdóttir var þar
fyrir um áratug. „Ég kunni rosalega
vel við mig þarna. Við
fengum góða þjálfun
í kvikmyndaleik. Það
er alltaf að verða mik-
ilvægara en það eru
ekki allir skólar farnir
að taka inn mikla kvik-
myndakennslu,“ segir
Hreindís.
Hvar liggur áhuga-
svið þitt?
„Það er aðeins meira
í bíómyndum og sjón-
varpi, kannski af því ég
hef fengið skemmtileg
verkefni í þeim geira.
Ég hef auðvitað áhuga
á leikhúsinu líka en bíó-
ið heillar. Ég gerði líka
smá af því heima áður en
ég fór út,“ segir Hreindís
sem lék í kvikmyndinni
Óróa á sínum tíma.
Hreindís Ylva býst
við því að vera áfram
í London eins og áður
segir. Þar leigir hún í
austurhluta borgarinn-
ar með vinkonu sinni
sem er norsk. Hrein-
dís er einhleyp og því
er ekkert sem aftrar
henni að fara þangað
sem verkefnin bjóðast.
„Ég er ekkert endilega
búin að festa ræturnar
í London. Ef mér bjóð-
ast spennandi verkefni
í Ameríku eða annars
staðar í Evrópu tek ég þeim. Mér
finnst gaman að ferðast svo það
getur vel farið saman. Ég hef líka
alltaf sagt að ég er opin fyrir því að
koma heim og vinna. Það er mikið
af flottum verkefnum á Íslandi.“
Æðislegt verkefni fyrir unga
leikkonu
Icelandair-auglýsingin sem Hrein-
dís Ylva leikur í hefur vakið þó
nokkra eftirtekt. Hún var tekin upp
í Berlín og Hamborg. Það voru þeir
Gunnar Páll Ólafsson og Samúel
Bjarki Pétursson sem leikstýrðu,
Árni Páll Hansson framleiddi en
Ragnar Jónsson og Kári Sævars-
son á Íslensku auglýsingastofunni
skrifuðu handrit. „Þetta var ótrú-
lega skemmtilegt. Þetta voru langir
dagar en í mjög góðum félagsskap.
Handritið er fallegt og það var ekki
erfitt að setja sig í spor aðalpersón-
unnar,“ segir Hreindís.
Er þetta ekki vel borgað?
„Það var ekkert hægt að kvarta
yfir því, þetta var alveg kærkomið.
Fyrst og fremst var þetta samt æðis-
legt verkefni fyrir unga leikkonu –
þetta var eiginlega heilt „showreel“
fyrir mig.“
Hreindís kveðst hafa fengið mikið
af skilaboðum eftir að byrjað var að
sýna auglýsinguna. Margir spyrja
hvort hún komi heim um jólin.
„Jú, ég kem heim um jólin – ann-
að en Berglind. Ég kem 21. desem-
ber og fer bókstaflega beint á jóla-
tónleika Regínu Óskar. Ég missti af
þeim í fyrra en ætla ekki að missa
af þeim í ár.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm útskrifaðist í fyrra sem leik-
kona í Englandi og hefur unnið að því að koma sér á framfæri
síðan. Þar kallar hún sig Ilva Holmes. Hreindís Ilva birtist nú á
skjám landsmanna í nýrri auglýsingaherferð Icelandair. Stefnan
er tekin á að vinna í sjónvarpi og kvikmyndum – hvar í heim-
inum sem góð hlutverk bjóðast.
Hver er
Hreindís Ylva
Fædd 1. mars
1989.
Alin upp í Mos-
fellsdal og gekk í
Varmárskóla.
Stúdent frá MH.
Lærði við Söng-
skólann í Reykjavík
og Tónlistarskóla
FÍH.
Lærði við Guildford
School of Acting.
Yngvi Rafn bróðir
hennar er gítar-
leikari í hljómsveit-
inni Vio.
Hefur tvisvar tekið
þátt í undankeppni
Eurovision. Árið
2009 söng hún
lagið Vornótt sem
amma hennar
samdi. Í fyrra söng
hún Lífið snýst með
Svavari Knúti.
Gaf út plötuna Á
góðri stund árið
2011 þar sem hún
syngur bestu lög
Erlu Þorsteins.
?
Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm kallar
sig Ilvu Holmes. Mælt var með því að
hún breytti nafninu sínu ef hún ætlaði
að koma sér á framfæri sem leikkona í
Englandi.
Hreindís Ylva í hlutverk Berglindar í Icelandair-auglýsingunni.
60 viðtal Helgin 12.-14. desember 2014