Fréttatíminn - 12.12.2014, Qupperneq 73
Helgin 12.-14. desember 201474 tíska
Íslensk
hönnun
framleidd
í Tógó
Bergþóra Guðnadóttir hannar kjól fyrir
samtökin Tau í Tógó. Allur ágóði rennur til
heimilis fyrir munaðarlaus börn í Tógó.
Bergþóra:
Bergþóra
Guðnadóttir,
hönnuður
og stofnandi
Farmers Mar-
ket, hannar
kjóla sem
eru saumaðir
í Tógó, til
styrktar
heimili fyrir
munaðarlaus
börn.
Kjól arn ir eru all ir
með þrykkt um afr-
ísk um munstr um.
Litagleðin ræður ríkjum
þegar kemur að efnisvali.
Hver kjóll kem ur með slæðu sem
hægt er að nota á ýmsa vegu.
F armers Market og Tau frá Tógó hafa efnt til samstarfs um hönnun og sölu á kjól sem er hannaður af Bergþóru Guðnadóttur, hönn
uði og stofnanda Farmers Market og saumaður
á saumastofu Divine Providence, sem er heimili
fyrir munaðarlaus börn í Aneho, Tógó. „For svars
kona sam tak anna Tau í Tógó, Guðný Ein ars dótt ir,
kom að máli við mig og vildi kanna hvort ég væri
til í að hanna fyr ir þau flík sem yrði svo fram leidd
á sauma stof unni Aneho í Tógó. Mér fannst þetta
svo fallegt verkefni að ég gat ekki skorast undan
því að taka þátt,“ seg ir Bergþóra.
Saumastofan er tekjulind heimilisins
Tau frá Tógó kaupir vörur af
saumastofunni og selur á Ís
landi, í Danmörku og Frakk
landi. Saumastofan er tekjulind
heimilisins og er um leið nokk
urs konar iðnskóli fyrir elstu
börnin. Allur ágóði af sölu Tau
frá Tógó fer aftur til heimilisins.
Helmingur fer í að panta fleiri
vörur og skapa þannig verkefni
fyrir stofuna og helmingur fer í
menntunarsjóð fyrir börnin.
Etnískir heimar mætast í
hönnuninni
„Ég lagðist undir feld og bjó
til kjól sem er frekar einfaldur,
í einni stærð og hentar því flest
um. Efnin fá fyrst og fremst að njóta sín en þau
eru mjög glaðleg með afrískum mynstrum,“ segir
Bergþóra, sem valdi þó efnin ekki sjálf, heldur sjá
starfsmenn saumastofunnar um það. „Þau fóru
á markaði í Tógó og völdu ýmis konar bómullar
efni sem eru öll mjög ólík og því eru engir tveir
kjólar eins.“ Efnin eru etnísk sem Bergþóru finnst
áhugavert í ljósi þess að hún hefur einnig verið
að vinna á etnískum nótum við hönnun sína fyrir
Farmers Market, en þá í norrænum stíl. „Mér
fannst þessir etnísku heimar speglast skemmti
lega saman,“ segir Bergþóra.
Farmers Market sem og aðrir aðilar sem hafa
lagt sitt að mörkum gefa alla vinnu í tengslum
við verkefnið. Kjólarnir eru gerðir í takmörkuðu
upplagi og eru til sölu í verslun Farmers Market,
Hólmaslóð 2, frá og með 9. desember.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Opnunartími: Virka daga kl. 11-18 Laugard. kl. 10-16
Laugavegi 178 l S. 555 1516 l Kíktu á síðuna okkar
Nýtt kortatímabil
"Kryddaðu fataskápinn”
Afmælisafsláttur
Verslunin er 2ja ára og af
því tilefni ætlum við að gefa
af öllum vörum verslunarinnar í dag og
á morgun laugardag.
FALLEGIR KJÓLAR
OG SKEMMTILEG
JÓLA-TILBOÐ
Pantaðu á www.curvy.is
eða komdu við í Fákafen 9
Afgreiðslutímar
Mán-Fös frá kl. 11-18
Laug. frá kl. 11-18
Sun. frá 13-17
STÆRÐIR 42-56
Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
Grensásvegi 8 • S. 553 7300
Opið mán-mm12-18,fös 12-19,lau 12-17
Jóla verð
sprengjan
er han
50% afsláttur
AF ÖLLU Gríptu tækifærið og gerðu dúndur kaup fyrir jólin