Fréttatíminn - 12.12.2014, Síða 77
Helgin 12.-14. desember 201478 tíska
Jólaförðun Lancôme
É g byrja á því að undirbúa húðina með La base pro pore eraser. Hann fyllir vel
upp í húðholur og fínar línur, auk
þess sem farðinn helst eins allan
daginn. Að mínu mati alveg nauð-
syn. Á augnlokin nota ég La base
augnprimer svo augnskugginn
verði fallegri og endingarbetri .
Á Báru valdi ég farðann Teint Mi-
racle númer 010. Hann gefur fal-
legan ljóma og góða þekju. Ég nota
alltaf farðaburstann frá Lancôme
þegar ég ber farðann á því áferðin
verður miklu fallegri. Teint Mi-
racle ljómapennann nota ég undir
augun og í kringum varir til að fá
fallegt endurkast. Ótrúlegt hvað
allt verður sléttara og bjartara.
Augu
Ég byrja að fylla aðeins upp í
augabrúnir með Sourcils pro
augabrúnablýantinum en hann er
mjög þægilegur í notkun og með
bursta svo það er auðvelt að móta
augabrúnirnar. Hypnôse palette
númer Dr 6 er falleg fimm augn-
skugga palletta. Í henni er allt sem
þú þarft til að gera fullkomin augu.
Ég byrja á ljósasta skugganum
yfir allt augnlokið, set því næst
dökkgráa litinn í glópuslínuna og
blanda vel að miðju. Silfurgráa
skuggann notaði ég frá innri augnkrók að miðju. Undir neðri
augnhárin nota ég fallega brúna
skuggann til að ramma augun vel
inn. Eyeliner er nauðsynlegur í
fallega förðun, Liner Plum er mjög
auðveldur í notkun og ég enda allt-
af á að nota hann því hann er bæði
auðveldur og fljótlegur. Maskarinn
sem ég valdi er Grandiôsa. Hann
gerir allt.
Varir
Á Báru valdi ég nýja Ĺ absole
númer 368. Fallegur djúpbleikur
litur. Hann er svo sparilegur og til-
valinn fyrir hana.
Kinnar
Kinnalitur Blush subtil númer 11.
Fallegur mildur brúntóna kinna-
litur rétt á epli kinnanna.
H úðvörurnar frá Ole Henriksen hafa skapað sér sess í snyrtivöruflóru
landsins og ekki að ástæðulausu
því vörurnar skera sig úr á margan
hátt. Sú ástríða sem eigandi
merkisins, Daninn Ole Henriksen,
gefur vörum sínum hefur skapað
honum nafn um allan heim og er
hann í uppáhaldi meðal viðskipta-
vina og fjölmiðlafólks víðs vegar
um heiminn. Hann er þekktur
fyrir glaðværan persónuleika og
má segja að litríkar pakkningar á
snyrtivörunum hans endurspegli
hans frjálslega fas.
Húðvörur úr náttúrulegum og
virkum efnum
Húðvörur Ole Henriksen eru
unnar úr náttúrulegum innihalds-
efnum og einkennast af einfald-
leika og skemmtilegri litadýrð og
eru efnin án parabena. Vörurnar
hafa ekki bara jákvæð áhrif á
húðina heldur ber sérhver vara
með sér sérstakan ilm sem gefur
umhirðu húðarinnar nýja upplifun.
Vörurnar eru allar unnar úr virk-
um efnum sem finnast í náttúrunni
og er það skoðun Ole Henriksen
að fegurðin eigi að vera náttúruleg
og án þjáninga. „Hann hefur það
að leiðarljósi við hönnun línunnar
að allir eigi að geta verið með
fallega húð en það þurfi rétt efni
fyrir hverja og eina húðgerð,“ segir
Málmfríður Einarsdóttir, eigandi
Carita snyrtingar í Hafnarfirði, en
þar er boðið upp á heildrænar Ole
Henriksen meðferðir.
Fjölbreytt vöruúrval
Ole hefur frá upphafi haft það að
leiðarljósi að allir geti verið með
fallega húð og því er vöruúrvalið
breitt svo allir geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi. Í Ole Henriksen
línunni er að finna andlitshreinsa,
andlitsvötn, serum, andlitskrem,
augnkrem, maska, kornakrem og
ýmsar vörur fyrir líkamann. Mikil
rannsóknarvinna og sérþekking
liggur að baki hverrar vöru sem
hver er hönnuð til að takast á við
eða meðhöndla ólík húðvandamál.
Sítrus er afgerandi innihaldsefni
hjá Ole Henriksen og áhrif efn-
anna eru upplífgandi vegna ilmsins
og áhrifarík á margan hátt fyrir
húðina vegna þeirra vítamína sem
þau innihalda.
Á Carita snyrtingu er boðið upp
á sérstaka ávaxtasýrumeðferð frá
Ole Henriksen. Meðferðin er köll-
uð „þriggja þrepa meðferðin“ og
hefst á djúphreinsun með hnetu-
kornakremi. Að henni lokinni er
ávaxtasýra látin liggja á húðinni,
en hún er unnin er úr sítrónum
og er einstaklega rakagefandi og
hreinsandi. Meðferðinni lýkur með
andlitsmaska sem inniheldur fræ
og olíu sem næra og mýkja húðina.
Unnið í samstarfi við
Arctic Trading Company
Litríkar húðvörur úr
náttúrulegum efnum
Förðun: Kristjana
Guðný Rúnars-
dóttir. Módel: Bára
Hafsteinsdóttir.
Unnið í samstarfi við
Lancôme
Fjarðagötu 13 • Í Firðinum Hafnarfirði • S. 555 4420
17.995,-
St. 36 - 41
einnig til í gráu
20.995,-
St. 36 - 41
19.995,-
St. 37 - 42
17.995,-
St. 36 - 41
Nýtt frá SixMix
Nýtt kortatímabil, sendum í póstkröfu
ÞÆGILEGAR
ÞEKJANDI
SOKKABUXUR
Lyfta upp rassi, grenna
maga, læri, mjaðmir.
Mjúk mittisteygja, skerst
ekki, situr vel, rúllar ekki.
Falleg áferð, atir
saumar, skrefbót úr bómull.
2.673 kr.
•
•
•
•
•
•
Síðumúli 34 · 108 RVK · S. 551 4884 · www.stillfashion.is
Þú færð jólakjólinn
í Stíl