Fréttatíminn - 12.12.2014, Page 87
88 heilsa Helgin 12.-14. desember 2014
Ráð til að ná
góðum nætursvefni:
Dragðu úr streitu.
Fáðu næga hreyfingu til að halda þér í
formi.
Fáðu andlega örvun daglega. Þeim sem
leiðist er hættara við svefnleysi þar sem
þeir eyða meira tíma í að kaupa inn,
hanga og horfa á sjónvarpið.
Borðaðu hollan og góðan mat.
Hættu að reykja.
Dragðu úr koffíndrykkju.
Forðastu að drekka áfengi þegar nálgast
fer háttatíma.
Farðu í heitt bað fyrir háttinn.
Hafðu svefnherbergið snyrtilegt og
notalegt.
Komdu á svefnrútínu, til dæmis að lesa
góða bók eða hvað það sem gæti fengið
þig til að gleyma áhyggjum.
Ekki horfa á sjónvarp eða vera í tölvu fyrir
háttinn, því rannsóknir hafa sýnt að það
örvar hugann og heldur manni vakandi
lengur.
Stundaðu heilbrigt kynlíf.
Forðastu truflun frá rúmfélaga. Maki sem
hrýtur eða á við svefnraskanir að stríða
gæti haldið fyrir þér vöku eða þú honum.
Athugaðu með gott rúm og eyrnatappa.
Forðastu að hleypa gæludýrum í svefn-
herbergið sem vekja þig.
Ef þú ert með lítil börn, leggðu á þig að
koma á góðum svefnvenjum svo barnið
sofi alla nóttina og trufli ekki þinn svefn.
Hreinsaðu hugann, ekki leyfa áhyggjun-
um að ná taki á þér og mundu að þú getur
ekki leyst vandann liggjandi í myrkrinu að
kvöldi til.
Prófaðu slökunaæfingar ef þú átt erfitt
með að slaka á.
Ekki reyna of mikið að sofna. Slakaðu á og
hugsaðu um eitthvað annað.
Notaðu tímann í rúminu til að sofa.
Ef þú átt í vandræðum með svefn, ekki
bíða með að leita ráða hjá lækni eða
svefnráðgjafa. Farðu strax.
Sofðu vel
G óður svefn er undir-staða þess
að takast á við
verkefni dagsins af
fullum krafti, vera í
góðu jafnvægi, vera
vel einbeitt/ur og
í góðu formi til að
beita gagnrýnni og
skapandi hugsun.
Í veröld þar sem
mikið er að gera
og úr mörgu að
velja þarf svefninn
oftar en ekki að láta
í minni pokann.
Enginn kemst af
án hans, en alltof
margir gera einmitt
það, komast af í stað
þess að sofa nógu
mikið og uppskera
góða heilsu, gott
lundarfar og betri
gáfur. Ef þú ert
ein/n af þeim sem
sofnar um leið og
þú leggst á koddann
eða situr í flugvél
þá ertu svefnvana.
Manneskja sem er
vel sofin er 15 til 20
mínútur að sofna.
Talið er að flest
okkar sofi að meðal-
tali klukkustund of
lítið á nóttu, sem
þýðir að svefn-
skuldin safnast upp.
En hvaða málið
skiptir það? Ef við
komumst upp með
það að sofa lítið og
náum samt að sinna
okkar verkefnum á
daginn, þurfum við
þá nokkuð að sofa
meira?
Svefnbankinn
veitir góða yfir-
dráttarheimilid, en
með tíð og tíma inn-
heimtir hann skuld-
ina ef ekki er lagt
nógu mikið inn af
svefni og það hefur
alvarleg áhrif á
heilsufar og andlega
vellíðan. Það er jafn-
mikilvægt að huga
að góðum svefni og
góðri næringu.
Rannsóknir sýna
að til að geta haft
fulla athygli og ver-
ið vel vakandi í sext-
án klukkustundir
þurfum við að sofa í
átta klukkustundir.
Ef við svíkjumst
um klukkustundar
svefn á nóttu, skuld-
um við 7 klukku-
stundir í svefn eftir
vikuna sem jafn-
gildir því að sleppa
því að sofa eina nótt
í viku. Til að byrja
með finnum við
kannski ekki svo
mikið fyrir því og
jafnvel margir svo
vanir því að sofa að-
eins of lítið þekkja
ekki það ástand að
vera raunverulega
vel sofinn.
P evaryl sveppalyf fæst án lyfseðils og er ætlað til sjálfs-meðhöndlunar á sveppasýkingum í leggöngum fyrir konur sem áður hafa verið greindar hjá lækni og þekkja ein-
kennin. Pevaryl inniheldur virka efnið econazol sem hefur breiða
sveppaeyðandi verkun. Econazol frásogast lítið og er því fyrst og
fremst um staðbundna verkun að ræða.
Að sögn Guðnýjar Traustadóttur, markaðstengils hjá Vistor,
er mikil reynsla komin á lyfið en Pevaryl hefur verið á markaði
hér á landi í 35 ár og verið notað af fjölda kvenna. Fjöldi kvenna á
barneignaraldri fær einhvern tímann sveppasýkingu í leggöng og
um það bil helmingur þeirra fá hana að minnsta kosti einu sinni
aftur. Sýkingin kemur frá smásæjum sveppi ”Candida Albicans“
sem almennt er til staðar í líkamanum en ef jafnvægi hans rask-
ast getur það valdið sveppasýkingu.
Sveppasýking þrífst best þar sem er rakt, hlýtt og þétt, svo sem
í leggöngum. Sveppasýking herjar oft á konur á barneignaraldri
þar sem þær hafa meira af hormóninu östrógeni, en það eykur
glúkósamagn í leggöngunum sem sveppurinn nærist á. Auk þess
kemur sveppasýking oft fram í tengslum við sýklalyfjameðferð.
Að sögn Guðnýjar getur það verið kostur að nota staðbundið lyf
eins og Pevaryl við sveppasýkingum í leggöngum þar sem frásog
þess er lítið.
Pevaryl – sveppalyf fyrir konur
Vistor kynnir:
Pevaryl
skeiðarstíla
og Pevaryl
krem til
staðbundinn-
ar notkunar
við sveppa-
sýkingum í
leggöngum.
Pevaryl er mjúkur egglaga stíll. Pevaryl stíll og krem fæst án lyfseðils í apótekum.
Einkenni sveppasýkingar
Helstu einkenni sveppasýkingar eru
kláði í og utan við leggöng, hvítleit og
jafnvel kornkennd útferð. Slímhúðin
getur auk þess verið sár, þurr og með
sviða.
Pakkningar Pevaryl:
1 Depot forðastíll og krem (samsett
meðferð)
3 skeiðarstílar og krem (samsett
meðferð)
1 Pevaryl depot forðastíll (eins dags
meðferð)
Setjið skeiðarstílinn hátt í leggöng
að kvöldi fyrir svefn. Berið kremið á
og í kringum leggangaop og/eða á
skapabarmana 2-3 sinnum á dag þar
til óþægindin eru horfin og í þrjá daga
til viðbótar. Þegar keyptur er pakki
með 3 stílum er mjög mikilvægt að
klára meðferðina þ.e. 3 kvöld í röð.
Pevaryl má nota á öðrum og síðasta
þriðjungi meðgöngu en ekki skal nota
Pevaryl á fyrsta þriðjungi meðgöngu
nema samkvæmt læknisráði.
Pevaryl fæst án lyfseðils í næsta
apóteki.
Pevaryl 150 mg skeiðarstíll, Pevaryl Depot
150 mg skeiðarstíll og Pevaryl 1% krem
(í samsettum pakkningum) (innihalda
econazolnítrat) eru breiðvirk sveppalyf
við sveppasýkingum í leggöngum
(leggangabólga og skapabólga af völdum
gersveppa). Skammtar: Einn skeiðarstíll
hátt í leggöng að kvöldi fyrir svefn, 3
daga í röð (Pevaryl skeiðarstíll) eða einu
sinni (Pevaryl Depot skeiðarstíll). Krem:
Berist á svæðið í kringum leggangaop
og endaþarmsop 2-3 á dag. Meðferð á
að vara í 3 daga eftir að óþægindi eru
horfin. Meðhöndlun maka: Þvoið reður
og forhúð og berið kremið á tvisvar á
dag þar til óþægindi hverfa og í 3 daga
eftir það. Þungaðar konur ættu að þvo
hendur vandlega fyrir notkun skeiðar-
stíla. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka
efninu eða einhverju hjálparefnanna.
Varnaðarorð: Pevaryl og Pevaryl Depot
má ekki nota samhliða annarri meðferð í
eða á kynfærum. Ef fram koma merki um
ertingu eða ofnæmi skal hætta meðferð.
Pevaryl krem inniheldur bensósýru sem
getur haft væg ertandi áhrif á húð, augu
og slímhúðir og bútýlhýdroxýanisól sem
getur valdið staðbundnum aukaverkunum
í húð (snertiexemi) eða haft ertandi áhrif
á augu og slímhúð. Pevaryl skeiðarstílar
innihalda efni í olíugrunni sem getur haft
áhrif á og dregið úr öryggi latexhetta
og latexverja. Ekki skal nota lyfin
samtímis slíkum verjum. Þeir sem
nota sæðisdrepandi lyf skulu
ráðfæra sig við lækni, þar sem
staðbundin meðferð í leggöngum
getur gert sæðisdrepandi lyf
óvirkt. Meðganga / brjóstagjöf:
Pevaryl má ekki nota á fyrsta
þriðjungi meðgöngu nema
skv. læknisráði. Nota má
Pevaryl á öðrum og síðasta
þriðjungi meðgöngu ef
hugsanlegur ávinningur
fyrir móður vegur þyngra
en möguleg hætta
fyrir fóstrið. Ekki er þekkt
hvort econazolnítrat
berst í brjóstamjólk. Gæta
skal varúðar við notkun
Pevaryl hjá konum með
barn á brjósti. Lesið allan
fylgiseðilinn vandlega
áður en byrjað er að nota
lyfið. Markaðsleyfis-
hafi: McNeil Sweden AB.
Umboð á Íslandi: Vistor
hf., sími: 535-7000
Unnið í
samstarfi við
istor
Þú þarf vekjaraklukku til
að vakna á morgnana.
Það er erfitt fyrir
þig að fara fram úr á
morgnana.
Þú finnur fyrir þreytu,
pirringi og streitu alla
vikuna.
Átt erfitt með að
einbeita þér.
Átt erfitt með að muna
hluti.
Átt erfitt með gagn-
rýna hugsun, að leysa
vandamál og skapandi
hugsun.
Sofnar oft fyrir framan
sjónvarpið.
Sofnar oft á leiðinlegum
fundum eða kennslu-
stundum eða í heitum
herbergjum.
Sofnar oft eftir stóra
máltíð eða eitt glas af
áfengi.
Sofnar oft þegar þú
slakar á eftir kvöldmat-
inn.
Sofnar á innan við fimm
mínútum eftir að þú
leggst á koddann.
Finnur oft til syfju við
akstur.
Sefur fram eftir um
helgar.
Þarft að leggja þig til
að komast í gegnum
daginn.
Ert með bauga.
Þú ert í svefnskuld ef: