Fréttatíminn - 12.12.2014, Blaðsíða 95
96 matur & vín Helgin 12.-14. desember 2014
Þetta er fljótleg og einföld upp-
skrift að súkkulaðibúðingi
sem tekur ekki nema nokkrar
mínútur að búa til, en þarf að
standa í kæli í nokkra klukku-
stundir áður en hann er borinn
fram. Því hentar að gera hann
að morgni eða jafnvel deginum
áður. Gott hráefni er lykilat-
riðið í uppskriftinni og því er
mikilvægt að nota góð egg og
gott smjör en fyrst of fremst
eins gott súkkulaði og völ er
á. Súkkulaðið á helst að vera
dökkt, á bilinu 60-80%.
Sígildur súkkulaðibúðingur
Leyndarmálið liggur í góðu súkkulaði.
Súkkulaðibúðingur
2 egg, við stofuhita
170 g dökkt gæða súkkulaði, saxað
4 msk vatn
4 msk strásykur
4 msk ósaltað smjör
fínmalað sjávarsalt
Eggjahvítur og eggjarauður eru
aðskildar. Eggjahvíturnar eru
stífþeyttar.
Súkkulaði, vatni, sykri og smjöri
og örlitlu af salti er blandað saman
í stálskál sem er sett yfir pott með
sjóðandi vatni. Hitinn á að vera
nægur til að súkkulaðið bráðni, en
það má ekki vera of mikill hiti.
Þegar súkkulaðið er bráðnað og öllu
hefur verið blandað vel saman þá er
skálin tekin af hitanum og eggjarauð-
unum blandað saman við. Eggjahvít-
unum er næst blandað varlega saman
við með sleikju þar til búðingurinn
hefur náð jafnri og sléttri áferð.
Búðingnum er hellt í glös eða skálar
sem eru settar í kæli, helst í nokkrar
klukkustundir.
Borðið fram kalt með
þeyttum rjóma.
N ípur eru hráefni sem fæstum dett-ur í hug að nota í
bakstri, en þær eru sætar
á bragðið einkum þegar
búið er að elda þær og
eru því tilvaldar í köku.
Nípukaka er skemmtileg
tilbreyting frá hefðbund-
inni gulrótarköku og góð
leið til að bæta grænmeti
í matinn. Þessi uppskrift
er jólaleg útgáfa af nípu-
köku þar sem grunnk-
ryddblanda sem finna má
í piparkökum er notuð.
Kakan er sæt og góð og
tilvalin sem eftirréttur
eða á kaffihlaðborðið.
Nípukaka
200 g spelt
2 msk maizena mjöl
2 tsk lyftiduft
1 tsk kanill
½ tsk vanilluduft
½ tsk engifer
negull á hnífsoddi
salt á hnífsoddi
225g (3 miðlungsstórar) nípur
1 appelsína, rifinn börkur
4 egg
160 ml hunang eða síróp
160 ml matarolía
Krem
200 g rjómaostur
1 msk hunang eða síróp
1 appelsína, safi og börkur
125 g ristaðar heslihnetur,
saxaðar
Hitaðu ofninn í 175°C og
smurðu djúpt kökumót með
lausum botni.
Sigtaðu saman þurrefnin og
kryddið. Flysjaðu nípurnar
og rífðu niður appelsínu-
börkinn.
Hrærðu eggin í stórri
skál þar til þau eru létt og
freyðandi. Bættu olíunni og
sírópinu við og hrærðu í eina
mínútu til viðbótar.
Blandaðu nípunum og
appelsínuberkinum saman
við og bættu þurrefnunum
varlega út í. Helltu deiginu
í kökumótið. Bakaðu í
miðjum ofninum í 45 mínútur
eða þar til kakan er gyllt á
lit. Stingdu prjóni í kökuna
til að kanna hvort hún sé
fullbökuð. Kakan þarf að
kólna áður en hún er tekin úr
mótinu.
Kremið er búið til með því að
hræra saman rjómaostinum,
hunganginu/sírópinu og
appelsínusafanum. Berðu
kremið á kökuna þegar hún
er orðin köld og skreyttu
með heslihnetum og rifnum
appelsínuberki.
Uppskrift GræNmetiskaka
Krydduð nípukaka
Rétt eins og gulrætur henta nípur vel í köku.
Nýtt tilboð
alla daga til jóla
TEYGJUR OG
SETT
ALLAR LOOM
35%afsláttur
AÐEINS
Í DAG
12.
DESEMBER
Fylgstu með nýjum tilboðum daglega á kronan.is og sparaðu stórt alla daga til jóla
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum er dreift á
heimili á höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk lausadreifingar
um land allt.
Dreifing með Fréttatímanum
á bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?