Fréttatíminn - 12.12.2014, Síða 111
Þetta er mjög góð Vís-
inda-Villa bók og hún
er mjög vel teiknuð.
Þetta er tilraunabók og
það er mjög skemmti-
legt að gera tilraunir.
Mér finnst skemmti-
legast að gera tilraunir
með pabba mínum, af
því að hann kann svo mikið
í tilraununum. Mér fannst
skemmtilegasta tilraunin
þegar við bjuggum til hljóð-
bylgjubyssu, af því að það var
svo flott hvernig hún hreyfði
hluti án þess að
koma við þá. Og svo
líka tilraunin með
leirbátinn, það var
geðveikt flott að láta
leir sem fyrst sökk,
fljóta. En skemmti-
legast var að geta
séð í gegnum hend-
ina á mér, það var geðveikt
skemmtilegt.
Svo hitti ég líka Vísinda-
Villa um daginn og það var
rosa skemmtilegt. Mig lang-
ar til að verða vísindamaður
þegar ég verð stór af því að
mér finnst það svo áhugavert
og maður er alltaf að læra eitt-
hvað nýtt. Vísinda-Villi sagði
mér um daginn að til þess að
verða vísindamaður þá verður
maður alltaf að vera forvitinn
og hissa því að heimurinn
er svo magnaður. Hann var
með rosa mikið gel í hárinu,
og mér finnst það mjög flott.
Bless og takk fyrir bókina.
Eldar Arnarsson,
næstum því 7 ára.
S káldsagan Þrír sneru aftur vekur athygli sem óhemju fagur prent-gripur. Jón Ásgeir Hreinsson
ber ábyrgð á hönnuninni, en bandið er
skreytt mynd af slípuðum fjörusteinum
í bláu mistri og kápan svört með þremur
rifum, svo kannski megi gægjast inn.
Heyrst hefur að „gamli, góði Guðberg-
ur“ sé kominn aftur í þessari skáldsögu.
Ég veit ekki hvort hann fór nokkurn tíma
burt, en það má til sanns vegar færa að
Þrír sneru aftur minnir sumpart á eldri
verk Guðbergs, Tangasögurnar svo-
nefndu.
Höfundur er á kunnuglegum slóðum í
þessari bók, á einangruðum stað suður
með sjó og þar er hvorki stuð né stemmn-
ing: „Mánuðum saman var við engu að
búast á þessum stað nema veðrið breyttist
en yfirleitt var skýjað.“ (9)
Innri tími sögunnar er næstum því heil
öld. Hún hefst í aðdraganda heimsstyrj-
aldar og henni lýkur ekki fyrr en Íslend-
ingar eru farnir að markaðssetja „nátt-
úruvæn hótel á mörkum hins byggilega
heims.“ Þrír sneru aftur er fjölskyldu-
saga og persónur innan fjölskyldunnar
bera ekki nöfn, heldur eru nefndar eftir
stöðu sinni: Gamla konan, gamli maður-
inn, strákurinn, sonurinn, systurnar og
dætur þeirra.
Sem oft áður lýsir Guðbergur Bergs-
son nöturlegum heimi, þar sem karlar
eru vondir við konur og konur niðurlægja
karla, foreldrar yfirgefa börn sín eða reka
þau af höndum sér og í staðinn verða
börnin vond við foreldra sína í ellinni.
Kvenfólkið er heldur óráðvant, fyrst „í
Bretanum“ svo „í Kananum“ og karlarnir
síðar „í Tæjunum“ (en þær eru „mátulega
þröngar“ og hafa víst samkvæmt einni af
persónum GB bjargað mörgum mönnum
frá því að verða barnaperrar).
Í þessari sögu er flest fólk heldur ill-
gjarnt og í besta falli ófullkomið. Sonur-
inn á bænum kallar m.a.s. sérstakan kvik-
indishátt „íslenskt innræti“ (166). Já og
Íslendingar selja sig, hafa alltaf selt sig
og munu vísast halda áfram að selja sig.
Þeir seldu sig Bretum, Könum og Nató.
Þeir eru ginnkeyptir fyrir hvers kyns ál-
og orkuverum en vilja engu að síður selja
sig áfram sem „náttúruparadísina Ísland“.
Og afkvæmin eru dæmd til þess að endur-
taka mistök forfeðranna.
Eiginlega er þessi sýn Guðbergs á þjóð
sína þannig að maður verður örmagna af
neikvæðninni, þótt maður kalli ekki allt
ömmu sína í þeim efnum. Fyndnin er þó
líka þarna í dágóðum skömmtum. Þessi
guðbergska fyndni, sem er einhvers kon-
ar vaðall með óvæntum snúningi, yfir-
leitt ljómandi ósmekklegum. Fyndnin
er stundum góðlátlega írónísk, en oftar
beisk og illgjörn, mun hráslagalegri en í
mörgum fyrri bókum höfundar.
Kona sem ég vinn með les ekki bækur
nema fullvissa sig um það áður að þær
endi vel. Hún vill ekki standa upp frá bók
með vonda tilfinningu í brjósti. Mikið hef
ég hlegið að henni fyrir þessa sérvisku,
en nú rennur mér blóðið til skyldunnar:
Kæra Anne Franziska! Varaðu þig á bók-
inni Þrír sneru aftur eftir Guðberg Bergs-
son. Manni líður ömurlega, bæði á meðan
maður les og líka eftir að maður klárar
hana, þótt hún sé bæði „vel skrifuð“ og
„góð“ eins og það er kallað.
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
RitdómuR VíSindabók Villa 2
Það er gaman að gera tilraunir
Vísindabók Villa 2
Vilhelm Anton Jónsson
JPV 2014, 97 s.
Eldar og
Vísinda-Villi.
RitdómuR ÞRíR SneRu aftuR
Þrír sneru aftur
Guðbergur Bergsson
JPV útgáfa 2014, 215 s.
Íslendingar eru
ömur legir, n-ti hluti
Guðbergur
Bergsson.
Eiginlega er þessi
sýn Guðbergs á þjóð
sína þannig að maður
verður örmagna af nei-
kvæðninni, þótt maður
kalli ekki allt ömmu
sína í þeim efnum ...
Fyndnin er stundum
góðlátlega írónísk, en
oftar beisk og illgjörn,
mun hráslagalegri en í
mörgum fyrri bókum
höfundar.
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Í fullkomnu
flæði
Sous Vide er matreiðsluaðferð sem felst í að sjóða
í lofttæmi við lágan og jafnan hitan. Með því að elda
við fullkomið hitastig - ekki of lengi og ekki of stutt -
er hægt að hámarka bragðgæði matarins. Með Sous
Vide-amboðinu frá Sansaire geta áhugamenn jafnt
sem atvinnumenn náð fullkomnu valdi á hitastiginu
og „súvídað“ í hvaða íláti sem er. Maður þarf ekki
einu sinni að eiga pott.
laugavegi 47, opið mán.- fös. 10-18, lau. 11-17 www.kokka.is kokka@kokka.is
112 bækur Helgin 12.-14. desember 2014