Fréttatíminn - 12.12.2014, Qupperneq 119
Í takt við tÍmann Ólafur Ásgeirsson
Mamma hélt ég væri hommi þegar ég horfði á Sex and the City
Ólafur Ásgeirsson er 24 ára leiklistarnemi sem vakið hefur athygli í Steinda-þáttunum og auglýsingum fyrir Orville Redenbacher örbylgjupopp.
Hann má reyndar helst ekki borða popp því hann er í tannréttingum. Ólafur og félagar í Nemendaleikhúsinu eru með síðustu sýningu á trúða-
sýningunni Clown Oddity í gamla dómshúsinu við Lindargötu í kvöld, föstudagskvöld, klukkan 20. Frítt er inn og allir velkomnir.
Staðalbúnaður
Ég kaupi mér föt þegar ég
sé eitthvað sem mig langar
virkilega í en það gerist ekki
mjög oft. Ég veit heldur ekki
hvaða fatastíl ég tilheyri –
ætli það sé ekki smá MH-
lykt af honum, ég á til dæmis
fimm lopapeysur. Upp á síð-
kastið finnst mér allt sem er
dökkblátt flott. Ég vil meina
að ég hafi startað þess-
ari Barbour-tísku á Íslandi
þegar ég mætti í Barbour-
jakka á busaball í MH árið
2006. Þá skammaðist ég mín
fyrir jakkann en nú eru allir
í þessu.
samsam
SamSam
Meira en krúttlegar
Systurnar Hólmfríður og
Gréta Samúelsdætur, sem
kalla sig SamSam, hafa á
undanförnum árum sent
frá sér stöku lag og á
þessu ári tóku þær þátt í
Söngvakeppni Sjónvarpsins
með lagið Eftir eitt lag, sem
náði miklum vinsældum,
sérstaklega meðal yngstu
kynslóðarinnar. Þær hafa
nú sent frá sér sína fyrstu
plötu með frumsömdu efni.
Þessi plata kom mér á óvart
satt að segja. Ég bjóst við
efni í ætt við Júróvisjónlagið
ágæta, en platan er töluvert
áhugaverðari. Öll lögin á
plötunni eru eftir Hólmfríði
(fyrir utan smá undan-
tekningu í aukalögum) og það
verður að segjast að þar á
ferð er efnilegur lagasmiður.
Þær syngja báðar á plötunni
þó erfitt sé að greina á milli
hver syngur hvað, raddirnar
eru mjög líkar. Það er margt
á þessari plötu sem er gott
og þær systur sýna fram á
það að þær eiga heilmikið
erindi á íslenskan tónlistar-
markað. Öll lögin eru á ensku
og eru textarnir margir
hverjir hreint ágætir. Allur
hljóðfæraleikur er góður og
umslagið er skemmtilegt.
Það er greinilegt að það er
meira í þær spunnið en bara
krúttlegt yfirbragðið, sem er
vel. Það verður fróðlegt að
fylgjast með framhaldinu.
Bestu lögin eru Someday, I
love you I og My Goodbye.
Úlfur
Todmobile
Tímalaus Todmobile
Todmobile þarf ekki að
kynna fyrir neinum tón-
listarunnanda á Íslandi. Í
gegnum feril sem spannar
um aldarfjórðung hefur
Todmobile alltaf farið sína
eigin leið í tónlistar-
sköpun sinni. Á nýjustu
plötu sveitarinnar, Úlfur,
er engin breyting á. Eins
og svo oft áður fer sveitin
um víðan völl og lætur
sér fátt óviðkomandi. Það
sem heyrir til nýbreytni á
Úlfi er það að söngvarinn,
Eyþór Ingi, tekur þátt í
lagasmíðunum og er fyrir-
ferðarmikill á plötunni. Það
er eins og þau Þorvaldur
og Andrea hafi verið að
bíða eftir Eyþóri í nokkur
ár, því hann smellpassar
í þennan geðklofa sem
Todmobile sýnir fram á í
hvert sinn sem plata kemur
frá hópnum. Eins er sam-
starf við þá Jon Anderson
og Steve Hackett í tveimur
lögum á þessari plötu. Að
mínu mati hafa þeir ágætu
menn engu við að bæta í
breiða flóru Todmobile sem
var fyrir. Ég hef gaman af
þessari plötu. Todmobile
nær alltaf að koma mér
á óvart. Það er leitun að
öðrum eins söngvurum eins
og Andreu og Eyþóri og þau
passa saman eins og Malt
og Appelsín.
Bestu lögin eru Úlfur,
Við bíðum við bakkann,
Drottning drauma og Ég
sakna þín.
Batnar Útsýnið
Valdimar
Glæsileg frammistaða
Þriðja breiðskífa hljóm-
sveitarinnar Valdimar,
Batnar útsýnið, er frábær
plata. Í rauninni gæti ég
bara látið þar við sitja en
það væri kjánalegt.
Valdimar hefur seiðandi
yfirbragð og það er
ekki hægt annað en að
sökkva sér í heyrnartólin
þegar maður leggur við
hlustir. Hljóðfæraleikarar
sveitarinnar eiga allir stór-
leik á plötunni þar sem út-
setningarnar eru til mikillar
fyrirmyndar. Frumlegar,
snyrtilegar og hógværar í
kringum aðalatriðið, sem
er rödd Valdimars Guð-
mundssonar. Valdimar er
einn besti söngvari sem
landið hefur alið af sér og
það er hrein unun að hlýða
á. Textarnir á plötunni eru
mjög góðir og er ég afar
hrifinn af orðavali og fram-
burði Valdimars. Það er svo
oft sem maður skilur ekki
hvað íslenskir söngvarar
eru að syngja sökum lin-
mælsku, en íslenskunördinn
í manni kætist allur við það
að hlusta á Valdimar. Ein af
plötum ársins, klárlega.
Bestu lögin eru Á miðri leið,
Út úr þögninni, Hindranir
og Ryðgaður dans.
Plötuhorn hannesar
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
Hugbúnaður
Skólinn tekur mikinn tíma hjá mér og maður keyrir sig
út við að setja upp sýningar. Við í bekknum eru líka rosa
mikið saman og það flæðir yfir í félagslífið. Þar fyrir utan
sér maður glitta í fjölskyldu og aðra vini af og til. Mér finnst
gaman að fara í bíó og leikhús og ég horfi mikið á sjónvarps-
efni þó ég horfi ekki á sjónvarp. Ég horfi á House of Cards,
Mad Men, Fargo, Game of Thrones, True Detective, Sher-
lock, The Wire, Breaking Bad, Nathan For You og South
Park. Ég veit að þetta eru allt strákaþættir en ég horfði alltaf
á Sex and the City með mömmu þegar ég var 13 ára. Þegar
ég var búinn að horfa á nokkra í röð spurði hún mig hvort
ég væri samkynhneigður. Mér fannst bara gaman að horfa á
fullorðinsþætti.
Vélbúnaður
Ég er með iPhone og Macbook Pro. Ég er tiltölulega nýbyrj-
aður á Instagram og finnst það eiginlega skemmtilegasti
miðillinn. Twitter kemur líka sterkur inn en ég kann ekki
alveg á hann. Facebook er orðið svolítið þreytt. Ég er líka
óvirkur Candy Crush notandi, búinn að vera „clean“ í eitt og
hálft ár. Svo nota ég Kindle heilmikið, það er snilldargræja.
Aukabúnaður
Ég reyni að elda þegar ég get og er til dæmis góður í að elda
kjúkling. Ég bjó á Ítalíu í eitt ár og lærði ýmsar uppskriftir
af stelpu frá Sardiníu. Því miður hef ég ekki haft mikinn
tíma til að elda undanfarið. Í staðinn höfum við farið svolítið
á Bergsson. Búllan er líka alltaf klassísk, Gló er fínt og líka
Núðluskálin. Á djamminu fer ég á Kaffibarinn, Prikið, Dollý,
Paloma eða Húrra – allt eftir því með hverjum maður er og
í hvernig stuði. Á barnum panta ég mér bjór. Uppáhalds-
staðirnir mínir eru sumarbústaður við Þingvallavatn, París,
Berlín og Bologna.
From the writings
of an Icelandic humourist
Thórbergur Thórdarson
Translated by
Hallberg Hallmundsson and
Julian meldon d’arcy
“Long esteemed as a leading stylist and
humorist, Thórdarson is a peculiar
mixture of paradoxical traits: a clear and
keen intellect and a singularly gullible
nature. He was an avowed Communist,
but inasmuch as he accepted the concept
of life after death, he denied materialism.
Above all, he was a firm believer in
ghosts, which he ‘felt’ everywhere around
him. For a time, he became a theosophist,
practiced yoga, and even wrote a book
on the subject. In addition, he remained
one of the most ardent Esperantists in
Iceland. Through all his diverse interests
could be seen a man who was, basically,
an honest seeker after truth, although,
politically, he seemed to have found it
once and for all.
Thórdarson wrote essays, biographies,
poetry and autobiographical works. His
eccentricity, crowned with a brilliant
style and an ever present humor, which
he frequently pointed at himself, resulted
in some of the most original and unique
works of modern Icelandic literature.”
Hallberg Hallmundsson
From An Anthology of
ScAndinAviAn literAture
ISBN 978-9935-9118-2-7
9 789935 911827
An Anthology of the Writings of the Novelist, Essayist, and Humorist
Thórbergur Thórdarson
Translated by HALLBERG HALLMUNDSSON
and JULIAN MELDON D’ARCy
Of Icelandic Nobles
& Idiot Savants
Reykjavík 2014
O
f Icelandic N
obles &
Idiot Savants Translated by: H
. H
allm
undsson and Julian M
. D
’A
rcy
2014
Also published by BRÚ:
The funniest chapters from the writ
ings of Mr. Thórdarson, along with
the most daring, as for example his
letter to a Nazi from the year 1933.
The Poetry of Egill Skallagrímsson,
Hallgrímur Pét urs son, Jónas Hall
grímsson, Stephan G. Stephans
son, Einar Benediksson, Davíð
Stefánsson, Tómas Guðmundsson,
Jón Dan, Kristján frá Djúpalæk,
Jón úr Vör, Einar Bragi, Ragnar Ingi
Aðalsteinsson, Sigurður Pálsson,
Steinunn Sigurðardóttir, Ísak
Harðarson, Jónas Þorbjarnarson
and many more.
Of Icelandic Nobles is 217 pages
and Potpourri is 243 pages
Translations and
biographies by
Hallberg Hallmundsson
Of Icelandic
Nobles & Idiot
Savants
An Anthology of the
Writings of the Novelist,
Essayist, and Humorist
Thórbergur
Thórdarson
Translated by
Hallberg Hallmundsson
and Julian Meldon D'Arcy
Distributed by Forlagið – JPV. The books are available in all of the bigger bookshops
A Potpourri of
Icelandic Poetry
Through Eleven Hundred Years
120 dægurmál Helgin 12.-14. desember 2014