Læknablaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 21
FRÆÐIGREIN / GEISLAGERLABÓLGA
Útskrifaðist sjúklingur á sjötta degi eftir aðgerð
við ágæta líðan. Konan fékk penicillín í sex mánuði
alls og þoldi meðferðina vel. Við skoðun hálfu ári
síðar hafði hún náð fullum bata.
Umræða og yfirlit
Geislagerlabólgu (Actinomycosis) í mönnum
var fyrst lýst árið 1878 (1) en 1891 var bakt-
erían einangruð með ræktun (2). Þessar bakt-
eríur voru í fyrstu ranglega taldar vera sveppir (3).
Actinomyces eru loftfælnar eða smáloftsæknar
og vaxa best þegar hlutþrýstingur koltvísýrings
er aukinn og eru jafnframt lítt krefjandi á næring-
arefni (4). Bakteríurnar litast gram-jákvæðar, eru
þráðlaga í smásjárskoðun, mynda ekki spora og
eru flokkaðar í fjölskyldu Actinomycetaceae (5).
Innan Actinomyces ættkvíslarinnar eru að minnsta
kosti 14 mismunandi tegundir og eru í það minnsta
sex þeirra þekktar af því að valda sjúkdómi í
mönnum (6).
Actinomyces tilheyra eðlilegri bakteríuflóru
mannsins og finnast í munnholi, ristli og leggöng-
um. Rof á slímhúð, til dæmis vegna tannviðgerða,
tannsýkinga, sarpsbólgu, botnlangabólgu, skurð-
aðgerða í kviðarholi eða vegna áverka (6), getur
valdið sýkingu í nánast hvar sem er í líkamanum.
Birtingarmynd þessa sjúkdóms er afar fjöl-
breytileg og helgast af þeim eiginleika sýkilsins að
geta lagst á alla vefi líkamans. Actinomyces valda
hægfara sýkingu sem veldur þéttum trafkenndum
vilsufylltum fyrirferðum sem dreifst geta samfellt
eftir yfirborði slímhúða eða brotist gegnum vefi,
oft með fistlamyndun út á húð eða inn í nærliggj-
andi hollíffæri (7). Sýkingin virðir engin vefjamörk
og getur einnig valdið fjarlægum meinvörpum
(8). Vegna þessara eiginleika bakteríunnar er
geislagerlabólgu oft ruglað saman við krabbamein Mynd 2.
og skýrir hvers vegna þessi sjúkdómur getur verið Eggjaleiðarabólga af
erfiður í greiningu. Einstaka sinnum má greina vijldum geislagerla (H&E
kornótta, gulleita útferð sem vellur úr fistlum og litun).
eru kornin gjarnan nefnd brennisteinskorn (sulfur
granules) (7). Brennisteinskorn eru samsöfn bakt-
eríunnar þar sem hún hefur safnast saman í þyrp-
ingar. Þau eru ekki sértæk fyrir geislagerlabólgu,
og geta einnig sést í nókardíusýki (nocardiosis) og
litmyglu (chromomycosis) (6).
Almennt er talið að aðrir sýklar séu meðvirk-
ir í sýkingum af völdum geislagerla (7). Sumir
höfundar telja að mismunandi birtingarmynd
sjúkdómsins helgist af því hvaða bakteríur séu
meðvirkandi í hverri sýkingu (4). Holm greindi
frá því um miðja seinustu öld að hann hefði greint
meðal annars Actinobacillus actinomycetemco-
Mynd 3. Geislagerlasamsafn (sulphur granule) með ígerð í legvöðva
(H&E litun)
Mynd 4. Gramslitun sýtúr greinóttar gram-jákvœðar bakteríur sem
samrýmast Actinomyces.
Læknablaðið 2007/93 481