Læknablaðið - 15.06.2007, Page 22
FRÆÐIGREIN / GEISLAGERLABÓLGA
mitans, Eikenella corrodens, Enterbacteriaceae,
Fusobacterium, Bacteroides, Capnocytophaga,
staphylokokka og streptókokka í sýnum með
Actinomyces (9,10). Jordan og félagar sýndu fram
á að sýkingar urðu þrálátari þegar mýs voru smit-
aðar með A. actinomycetemcomitans og A. israelii
saman (11). Sami rannsóknarhópur sýndi einnig
fram á að meinvirkni Actinomyces virtist aukast
þegar E. corrodens var með í spilinu (12). Svo virð-
ist að sampil streptókokka og Actinomyces bakt-
ería auki viðnám þeirra síðarnefndu gegn ónæm-
iskerfinu (13). Lýst hefur verið sýkingum í mið-
taugakerfi þar Haemophilus paraphrophilus var í
för með Actinomyces (14). í rannsókn Pulverer og
félaga þar sem skoðuð voru sýni frá tæplega 2000
tilfellum af staðfestri geislagerlabólgu á höfði og
hálsi ræktaðist fjöldi annarra baktería, svo sem
staphýlokokkar, streptókokkar og fusobakteríur
auk fjölda annarra. í aðeins 4,5% tilvika rækt-
uðust einungis Actinomyces (4). Álitu þeir félagar
að geislagerlabólga væri nær alltaf blönduð sýking
(4).
Faraldsfræði geislagerlabólgu
Erfitt er að henda reiður á algengi sjúkdóms-
ins. Helstu ástæður þess eru fyrst og fremst þær
að Actinomyces tilheyra eðlilegri bakteríuflóru
mannsins. Einnig er geislagerlabólga ekki tilkynn-
ingarskyld til heilbrigðisyfirvalda og getur það
haft áhrif á mat manna á algengi hennar. Eldri
rannsóknir benda til að algengi sjúkdómsins sé
nálægt 1-2,5 tilfelli/100.000 íbúa (15,16). Þrátt fyrir
að faraldsfræðilegar upplýsingar séu að einhverju
leyti óáreiðanlegar virðist tíðnin hafa lækkað
mikið á undanförnum þremur til fjórum áratugum
og er talið að sú lækkun stafi af aukinni notkun á
sýklalyfjum og bættri tannheilsu (7).
Þekkt er að geislagerlabólga er algengari í
körlum (15) og er hlutfallið milli kynja 3:1 (7).
Áverkar á andlit og verri tannhirða er talin vera
ástæða þessa (7). Algengi sjúkdómsins hér á landi
er með öllu óþekkt. Áður hefur verið greint frá
geislagerlabólgu hérlendis, en þar var um að ræða
tilfellaröð frá Barnadeild Landakotsspítala frá
árinu 1968 sem birtist í Lœknablaðinu (8).
sýkinga eru léleg tannheilsa (15), nýlegar tann-
aðgerðir og þrálátar kokeitlabólgur (6). Einnig
er talið að áverkar á andlit kunni að auka hættu á
sýkingum (7). Oftast er um langvinna og hægfara
sýkingu að ræða (17), en einkenni geta einnig
verið bráð (6, 7). Birtingarmynd geislagerlabólgu
í andliti og hálsi getur verið bólga í mjúkvefjum,
ígerð eða verkjalaus fyrirferð (4,6,7).
Geislagerlabólga í brjóstholi
Actinomyces getur valdið sýkingum í lung-
um, fleiðru, miðmæti eða í brjóstvegg (6).
Lungnasýkingar eru um 15% af öllum sýkingum
af völdum þessara baktería (7). Sýking í lungum
kemur fyrir í öllum aldurshópum en er sjaldgæf í
börnum (18).
Talið er að aðalsýkingarleiðir séu ásvelging
frá munnholi eða maga (6). Fyrir tíma sýklalyfja
gat sýking náð til lungna með því að komast í
gegnum þind frá sýkingarstað í kviðarholi, til
dæmis framhjá þind eða aftan lífhimnu (retrope-
ritonealt) (6), en það er talið afar sjaldgæft í dag
(7). Jafnframt er mögulegt að sýkingin geti borist
beina leið um fellabrautir (fasciuplön) frá hálsi
niður í brjósthol (6).
Hærri tíðni sýkinga í lungum virðist vera hjá
þeim sem eru með lungnasjúkdóma eins og lang-
vinna lungnateppu eða berkjuskúlk (bronchiec-
tasis) (19, 20) og einnig meðal þeirra sem eiga
við áfengisvandamál að stríða (21). Actinomyces
sýking í gollurshúsi er alvarlegur en sjaldgæfur
sjúkdómur. Einungis hefur rúmlega 20 tilfellum
verið lýst síðan 1950 (22). Eitt slíkt tilfelli er þekkt
á Islandi en það var í átta ára gamalli stúlku sem
lagðist inn á Barnadeild Landakotsspítala (8).
Klínísk einkenni geislagerlabólgu í brjóstholi
eru gjarnan hósti, hitavella og þyngdartap, stund-
um með brjóstverkjum (20, 23). Sýking í lungum
getur einnig birst sem fyrirferð sem vex inn í
berkju (24). Sýkingu í lungum getur fylgt vökva-
söfnun í fleiðru (25), fleiðruholsígerð, skemmdir
á nærlægum rifjum eða bringubeini (26). Greining
getur verið snúin því einkenni eru oft ósértæk og
geta líkst fjölda annarra sjúkdóma (18).
Geislagerlabólga í andliti og hálsi
Sýkingar í andliti og hálsi eru algengastar af sýk-
ingum af völdum geislagerla (6) en talið er að 55%
sýkinga leggist á höfuð og háls (15). Actinomyces
finnast í miklu magni í kokeitlum og í tannholds- og
tannsprungum (gingivodental crevices) og er talið
að þetta skýri hvers vegna svo margar slíkar sýk-
ingar koma fram í munnholi. Helstu áhættuþættir
Geislagerlabólga í kviðarholi
Talið er að um 20% af öllum sýkingum með
Actinomyces komi fyrir í kviðarholi (7). Athygli
vekur að greining á sýkingum í grindar- og kvið-
arholi virðist færast í vöxt en tíðni sýkingarinnar
virðist vera á undanhaldi annars staðar (27).
Mánuðir og jafnvel ár geta liðið frá því sýkill nær
bólfestu í kviðarholi þar til fullnægjandi greining
liggur fyrir (17).
482 Læknablaðið 2007/93