Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2007, Page 37

Læknablaðið - 15.06.2007, Page 37
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BUGL Ólafur Ó. Guðmundsson yfirlœknir á BUGL. hratt og fólk sem þekkir stöðu barna er meðvitað um að vandamálunt þarf ekki að kyngja heldur er hægt að gera ýmislegt til bóta. Hlutverk BUGL hefur í rauninni aldrei verið skilgreint með hlið- sjón af þeirn þörfum og kröfum sem gerðar eru til deildarinnar í dag. Upphaflega var henni ætlað að sinna alvarlegum einhverfutilfellum og geðfötl- uðum og veita göngudeildarþjónustu að einhverju marki. Síðan hefur starfsemin orðið víðfeðmari, göngudeildarþjónustan þróast og legudeildir eru tvær, barnadeild og unglingadeild. Við leggjum einnig meiri áherslu á dagdeildarþjónustu en áður auk þess sem kennsla og þjálfun nema og fagfólks hefur aukist og eftirspurn eftir þjónustu og hand- leiðslu deildarinnar til ýmiss konar stofnana og ut- anaðkomandi aðila vaxið. I rauninni er starfsemin orðin miklu umfangsmeiri en öll umgjörð um hana er svipuð og hún var 1970. Að því frátöldu að við sameiningu spítalanna í Reykjavík árið 2000 var tekin miðlæg ákvörðun um að skipta faghópum á lækningaþættinum upp, ekki innan sérgreina eða deilda, heldur innan sviða, sem þýddi það að stjórnun varð flókin og ábyrgð óljós, þó formlega séð eigi hún að vera hjá yfirlækni deildarinn- ar. Stjórnunarlega er umgjörðinni því verulega ábótavant, ekki bara að mati okkar læknanna á BUGL, heldur hefur verið bent á þetta í skýrslum utanaðkomandi aðila. í stað þess að deildin sé rekin sem heild er henni skipt í miðstýrða þætti sem yfirlæknir á samt sem áður að bera ábyrgð á.“ Ertu að tala um að BUGL vœri betur sett sem sjálfstœð stofnun? „Fyrst þarf að ákveða hversu víðtækt hlut- verk BUGL á að vera, bæði á landsvísu og einnig fræðilega séð. Hversu langt á að ganga í útseldri þjónustu með samningum og hvernig kennsluhlut- verkinu verði fyrirkomið? Og einnig hversu stóran hlut af klínísku þjónustunni sé æskilegt að deildin veiti. Um þetta hefur verið allnokkur umræða og í þrengsta skilningi mætti hugsa sér að BUGL sinnti eingöngu bráðaþjónustu og legudeildum en öll göngudeildarþjónustan væri veitt utan spítalans. f>að er ein leið. Þá væri hægt að afmarka og ein- falda starfsemina ntjög mikið. Stjórn Landspítala hefur hins vegar sagt að framtíðin felist í dag- og göngudeildarþjónustu fremur en legudeildum og það gildi jafnt um barna- og unglingageðlækningar sem aðrar sérgreinar. Það má líka segja að það sé erfitt að vera kennslusjúkrahús nema hafa aðgang að göngudeildarþjónustu. Auðvitað mætti semja um slíkt við þá aðila sem tækju að sér rekstur göngudeildar. En ef menn vilja hafa göngudeildar- þjónustuna áfram innan spítalans og jafnvel í vax- andi mæli,þá þarf að finna henni eðilega umgjörð. Hún gengur ekki upp eins og hún er í dag. Vandi Læknablaðið 2007/93 497

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.