Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.06.2007, Side 38

Læknablaðið - 15.06.2007, Side 38
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BUGL „Aðgerðir eins og húsbygging ogfjölgun starfsfólks eru nauðsynlegar en ekki nœgilegar,” segir Ólafur Ó. Guðmundsson yfirlœknir en framkvœmdir við viðbyggingu BUGL að Dalbraut í Reykjavík standa nú yfir. okkar er svipaður og á göngudeildum annarra deilda þar sem hvata vantar og hjá okkur verður þetta enn flóknara þar sem margir faghópar koma að hverju verkefni og þurfa að vinna náið saman.“ Börn með samsettan geðrænan vanda Er álagið á göngudeild BUGL ofmikið? „Það er miklu meira en göngudeildin ræður við. Fleira fagfólk vantar til starfa til að anna verkefnum og fyrirkomulag við rekstur og stjórn deildarinnar er ekki eins og það ætti að vera að mínu mati og margra annarra bæði innan og utan BUGL. Aðgerðir eins og húsbygging og fjölgun starfsfólks eru nauðsynlegar en ekki nægilegar. Það verður að endurskipuleggja starfsemina í samræmi við hversu stór hluti þeirrar þjónustu sem samfélagið kallar eftir í geðheilbrigðisþjónustu barna- og unglinga á að fara fram á vegum BUGL og hversu stóran hluta á að fela öðrum, einkaað- ilum og sveitarfélögum. Heilsugæslustöðvar þurfa einnig að koma markvissar inn í þessa þjónustu og búið er að taka ákveðin skref um myndun teymis innan nokkurra stöðva en það dugar engan veginn til og ef slíkar aðgerðir eiga að skila raunveruleg- um árangri verður að samstilla aðgerðir.“ Hvaða aðilar vísa helst til ykkar? „Þeir eru nokkuð margir. Barnalæknar eru stærsti hópurinn og síðan barnageðlæknar, heilsu- gæslulæknar, sálfræðiþjónustur og félagsþjónustur sveitarfélaganna. Að öllu jöfnu eru þessir aðilar búnir að meta vandann og reyna að taka á honum en meta hann það flókinn að hann þurfi úrlausnar við á sérfræðimiðstöð sem byggir á þverfaglegri þjónustu. Aldurshópurinn sem við fáum eru að- allega börn á grunnskólaaldri, frá 5-17 ára því oft koma vandamálin skýrar fram þegar börnin eru byrjuð í grunnskóla. Yfirleitt eru börnin sem til okkar er vísað með samsettan vanda. Það eru geðræn vandamál sem birtast í hegðun eða líðan, og ofan á bætast ýmis konar þroskavandamál, bæði sértæk og almenn. Þessi vandamál birtast með ýmsum hætti og þegar um frávik í félagslegu samspili er að ræða getur verið stutt yfir í einhverfurófið en það er mjög mikilvægt að greina þau börn snemma til þess að þau fái markvissa þjálfun og nauðsynlegan stuðn- ing. Aðstæður barnanna eru mjög misjafnar, bæði heima og í skólanum. Þetta gerir það að verkum að við þurfum að eiga mjög virka samvinnu við 498 Læknablaðið 2007/93

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.