Læknablaðið - 15.09.2007, Side 13
FRÆÐIGREINAR / FÓSTURKÖFNUN
út frá venjubundinni 19 vikna ómskoðun. Apgar
stig <6 fintm mínútum eftir fæðingu og að barnið
hefði fengið ICD-10 greininguna fósturköfnun
með greiningarnúmerum P21.0, P21.1 eða P21.9.
Klínískar upplýsingar
Upplýsingum var safnað um meðgönguna, fæð-
inguna og atburði eftir fæðingu úr mæðraskrám og
úr sjúkraskrám barnanna.
Upplýsingar um meðgöngu voru aldur og
reykingar móður, meðgöngulengd og sjúkdóm-
ar móður, svo sem meðgöngueitrun, sykursýki,
háþrýstingur fyrir meðgöngu, meðgönguháþrýst-
ingur, magn legvatns og hvort um einbura eða
fjölbura var að ræða. Skráð var hvort fæðing var
framkölluð, hríðaörvun notuð og þá hvorl of
miklir samdrættir væru í legvöðva (oförvun; e.
hyperstimulation), skilgreint sem meira en fimm
samdrættir á 10 mínútum í meira en 20 mínútur
samfleytt (9) og litur legvatnsins flokkaður í tært,
grænt þunnt eða grænt þykkt. Lesið var úr fóst-
urhjartsláttarritum allra fóstranna rneð tilliti til
þess hvort dýfur voru í ritinu, hraður hjartsláttur,
hægur hjartsláttur eða óeðlilegur breytileiki (10)
(tafla I). Þá voru ritin flokkuð í óeðlileg sam-
kvæmt eftirfarandi: 1) <30 mínútur fyrir fæðingu,
2) 30-60 mínútur fyrir fæðingu, 3) >60 mínútur
fyrir fæðingu eða 4) óeðlilegt rit frá komu á fæð-
ingardeild. Rit flokkuð sem óeðlileg voru með of
hægan eða hraðan hjartslátt í >10 mínútur, seinar
og breytilegar dýfur eða snemmdýfur sem stóðu
>1 klukkustund, jafnvel þó samdrættir væru tíðir.
Rit með minnkuðum breytileika var einnig talið
óeðlilegt. Ótúlkanlegt rit, það er að segja rit þar
sem hraði hjartsláttar sveiflaðist svo mikið að ekki
var hægt að greina grunntíðni þar sem skráning á
samdráttum kom ekki fram eða þar sem blekið
hafði dofnað fóru í sérstakan flokk. Við úrlestur
ritanna var stuðst við lýsingu í sjúkraskrá sem
skrifuð var af þeim fæðingarlækni sem tók á móti
viðkomandi barni. Öll rit sem erfitt var að túlka
voru yfirfarin að auki af einum höfunda (HH).
Niðurstaða blóðsýnis úr kolli barns í fæðingu var
skráð, ef það hafði verið tekið. Fæðingarinngrip
voru flokkuð í fæðingu með sogklukku, töng
eða bráðakeisaraskurði (keisaraskurður ákveðinn
eftir að fæðing hefst).
Eftir fæðingu var Apgar stigun við eina,
fimm og tíu mínútur skráð. Flokkun Sarnat og
Sarnat var notuð til að skilgreina hvaða börn
fengu HIE og aðgreina þau í þrjú stig. Fyrsta stig
einkennist af ofurertanleika, líflegum taugavið-
brögðum, auknum einkennum frá semjuhluta
sjálfvirka taugakerfisins og einkenni vara skemur
en 24 klukkustundir. Annað stig einkennist af
vöðvaslekju, kreppum í fjarlægari liðamótum og
Tafla II. Óeðlilegt FHR (fósturhjartsláttarrit) í fæðingu, merki um álag á fóstur með
fósturköfnun, með og án heilakvilla af völdum súrefnisþurrðar (hypoxic ischemic
encephatopathy).
Hjartsláttarmynstur í FHR* Tilfelli (n=127) Nýburar með HIE (n=19) Nýburar án HIE (n=108)
Óeðlilegt FHR 84 (66%) 15 (79%) 69 (64%)
Hraður hjartsláttur 35 (28%) 4 (21%) 31 (29%)
Hasgur hjartsláttur 24 (19%) 5 (26%) 19 (18%)
Seinar dýfur 46 (36%) 6 (32%) 40 (37%)
Snemmkomnar dýfur 25 (20%) 3 (16%) 22(20%)
Breytilegar dýfur 16 (13%) 3 (16%) 13 (12%)
Dýfur >60 mín fyrir fæðingu** 54 (43%) 6 (32%) 48 (44%)
Minnkaður breytileiki 19 (15%) 5 (26%) 14 (13%)
*FHR = fósturhjartsláttarrit
**Hvaóa tegund dýfa sem er í meira en 60 mínútur fyrir fasðingu
Tafla III. Fæðingar með inngripum og tvíburafæðingar.
Tegund inngripa Rannsóknar- hópur (n=127) Tíðni Aðrar fæðingar LSH (n=14090) Tíðni p-gildi
Framkölluö fæðing 31 24% 1851 13,1% 0,001
Fasðing með sogklukku 28 22% 955 6,8% <0,001
Bráöakeisaraskuröur 25 19,7% 1601 11,4% 0,008
Fæðing með fæðingartöng 8 6,3% 145 1,03% <0,001
Tvíburafæðing 11 8,7% 321 2,28% <0,001
flogum sem eiga upptök á fleiri en einum stað í
heila. Priðja stig einkennist af meðvitundarleysi
og viðbragðaleysi hjá nýburanum (11). Stuðst var
við upplýsingar úr sjúkraskrá og greiningin end-
urmetin í öllum tilvikum af tveimur höfunda (AD
og PP).
Tölfrœði og úrvinnsla
Við úrvinnslu var notað eftir því sem við
átti Mann-Whitney próf, t-próf, kíkvaðrats- og
Anovapróf í tölfræðiforritinu SPSS. Leyfi fyrir
rannsókninni voru fengin frá Persónuvernd og
Siðanefnd Landspítala. Leyfi til athugana á sjúkra-
skrám voru fengin hjá vörslumönnum sjúkra-
skráa á Kvennasviði Landspítala og Barnaspítala
Hringsins.
Nidurstöður
Á rannsóknartímabilinu var heildarfjöldi fæddra
barna á Kvennasviði Landspítala 14.217 þar af
13.495 fullburða (>37 vikna meðganga). Á þessum
tíma fengu 248 börn greininguna fósturköfnun
og 132 samræmdust inntökuskilyrðunum. í fimm
tilvikum voru upplýsingar ófullnægjandi og því
voru 127 börn í rannsóknarhópnum. Hin 116 voru
ýmist fyrirburar, fædd á öðrum sjúkrahúsum eða
höfðu fengið fleiri en sex Apgar stig við fimm mín-
útna aldur. Nítján börn voru með HIE (mynd 1).
Læknablaðið 2007/93 597