Fréttatíminn - 22.08.2014, Qupperneq 12
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg
Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@
frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
L
Langlundargeð íbúa á sunnanverðum Vest-
fjörðum vegna úrræðaleysis í samgöngu-
málum er á þrotum, eins og fram kemur í
bréfi frá formanni Patreksfirðingafélagsins
og formanni Arnfirðingafélagsins til allra
þingmanna. Bætist bréf þeirra við samþykkt-
ir sveitarfélaga á svæðinu og Fjórðungssam-
bands Vestfirðinga. Bent er á að nauðsyn-
legar samgöngubætur hafi setið á hakanum.
Þær séu komnar á sama stað og fyrir tólf
árum, á byrjunarreit. Þá er
átt við samgöngubætur sem
lengi hafa staðið til í Reykhóla-
hreppi í Austur-Barðastrandar-
sýslu, nánar til tekið í Gufu-
dalssveit. Þar eru mjóir og úr
sér gengnir malarvegir og
yfir tvo erfiða fjallvegi að fara,
Ódrjúgsháls og Hjallaháls, sem
taldir eru beinlínis hættulegir
að vetrarlagi. Vegurinn tengir
þéttbýlisstaði og aðra byggð
sunnanverðra Vestfjarða við
hringveginn.
„Samfélagið á sunnanverðum Vestfjörðum
hefur staðið veikt um árabil en með sam-
heldni, vestfirskum krafti og áræðni hefur
tekist að koma á viðsnúningi og nú ríkir að
mörgu leyti bjartsýni og trú á framtíðarhorfur
svæðisins. Útgerð hefur eflst, fiskeldisfyrir-
tæki haslað sér völl og styrkst í sessi, aðstaða
til móttöku ferðafólks hefur batnað, ferða-
mönnum fjölgað og svo mætti áfram telja.
En á sama tíma varpar vegakerfið löngum
skugga sínum yfir svæðið,“ segir í bréfi for-
manna fyrrgreindra félaga til þingmanna.
Þeir benda á að ekkert þokist og stjórn-
völd taki ekki af skarið og höggvi á hnútinn.
„Hér er horft til vegabóta í Gufudalssveit en
þar kasta á milli sín stofnanir ríkisins hug-
myndum sem allir, utan örfárra svokallaðra
umhverfissinna, eru sammála um að séu ekki
aðeins skynsamlegar heldur og bráðnauðsyn-
legar. Þessar vegabætur eru kjarninn í því
að viðhalda og efla samfélagið en örfáir og
háværir einstaklingar halda þeim í herkví
og ekkert gerist,“ segja formennirnir enn
fremur.
Um er að ræða langvarandi deilur og
málaþras vegna vegalagningar um Teigsskóg.
Eins og fram kom í Fréttatímanum í liðnum
mánuði ætlar Vegagerðin að reyna til þrautar
að koma veginum í gegnum skipulagsferli
en Skipulagsstofnun hafnaði á sínum tíma
veglíngu í gegnum birkiskóginn vegna um-
hverfisáhrifa. Vegagerðin hefur því óskað
eftir nýju umhverfismati miðað við breytta
veglínu.
Ástæða þess að stofnunin leggur áherslu
á veglagningu um Teigsskóg er tvíþætt.
Annars vegar það mat að vegur út norðan-
verðan Þorskafjörð og þverun Djúpafjarðar
og Gufufjarðar sé öruggasti vegurinn. Hins
vegar er það kostnaðarspursmál, að mati
vegamálastjóra, sem segir þessa veglínu vera
þremur milljörðum ódýrari en næsti kostur
sem kæmi þá upp á borðið. Það sé einfaldlega
ábyrgðarhluti að reyna ekki að koma málinu í
gegn á þessum forsendum enda hægt að gera
gífurlega mikið í samgöngumálum, þarna og
annarsstaðar, fyrir þrjá milljarða.
Undir þetta taka formenn Patreksfirð-
ingafélagsins og Arnfirðingafélagsins í bréfi
sínu til þingheims og segja: „Um er að ræða
jarðgöng í þessu samhengi, en við spyrjum;
vilja menn virkilega horfa á lausn sem kostar
3.000 milljónum króna meira og fer í ein-
hverja óskilgreinda biðröð jarðganga í stað
þess að ganga hreint til verks og framkvæma
hagkvæmustu lausnina.“ Þeir spyrja síðan:
„Hvar er fólkið og vegfarendurnir í breyt-
unni? Hvers virði er mannslífið og mannlífið
á Vestfjörðum? Erum við ekki hluti þeirrar
náttúru, þeirrar flóru sem þarf að vernda?
Hvers eigum við að gjalda að þurfa að aka
eftir vegum sem lagðir voru um miðja síð-
ustu öld og eru niðurgrafnir með 180 gráðu
beygjum þar sem bratti er meiri en framleið-
endur ökutækja í dag gera ráð fyrir að bílum
þeirra sé ekið?“
Málið er á borði Alþingis en ekki síst
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráð-
herra. Hún lýsti því raunar yfir, skömmu eftir
að hún tók við embætti, að hún væri hlynnt
vegalagningu um Teigsskóg. Það er því ráð-
herrans að sjá til þess að höggvið verði á
þann hnút sem í áraraðir hefur hindrað löngu
tímabærar samgöngubætur á svæðinu.
Langlundargeð íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum á þrotum
Höggva þarf á hnútinn
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Nærandi
nammigott
Engi
viðbæur
sykur!
Hamarshöfði 4 - sími 587-1960 - www.mosaik.is
Vönduð vinna
Stofnað 1952
Mikið úrval af
fylgihlutum
Steinsmiðjan Mosaik
Legsteinar
WWW.LEIKHUSID.IS
12 viðhorf Helgin 22.-24. ágúst 2014