Fréttatíminn - 22.08.2014, Síða 26
versku og pabbi hans svarar honum
hlýlega á íslensku, og þó hvorugur
hafi væntanlega hugmynd um hvað
hinn er að segja fara þeir saman inn
í eldhús og sækja vatn og seríós.
Arnar Ze kann að segja mamma,
pabbi og kaka, sem merkir Carol.
Hann kann líka að segja kúka, ban-
ani og sitja.“
Vilja frekar fisk en pítsu
„Stefanía Carol kom með okkur út að
sækja hann. Við höldum að það hafi
hjálpað honum að tengjast okkur. Þau
mynduðu strax náin tengsl,“ segir Að-
alheiður. Þau fengu dagsplan Arnars
Ze frá munaðarleysingjaheimilinu
með upplýsingum um hvenær hann
svaf og hvað hann borðaði. „Hann
fékk mjólkurduft og grauta. Það er
matur sem er ódýr og auðvelt að fæða
marga með. Við keyptum mjólkurduft
en hann vildi ekki sjá það og var mun
hrifnari af drykkjarjógúrtinu sem við
vorum með. Þau eru bæði mjög dug-
leg að borða og þau vilja alvöru mat.
Þau eru hrifin af fiski og þó Stefanía
Carol hafi fyrst bara viljað egg vill
hún núna íslenskan mat. Við kom-
umst ekkert upp með að hafa snarl í
matinn. Þau eru ekki hrifin af brauði
og þau vilja ekki pítsu. Slátur er í
uppáhaldi og Arnar Ze bókstaflega
hámar það í sig. Það er það besta sem
hann fær,“ segir Guðfinnur.
Systkinunum lyndir vel þó þau
rífist stundum um leikföngin, svona
eins og gengur. „Um daginn hast-
aði ég aðeins á Stefaníu Carol og
þá gerði Arnar Ze sig líklegan til að
verja hana,“ segir Aðalheiður um
samband þeirra. Arnar Ze situr enn
hjá okkur og matar foreldra sína á
seríósi. Ég rétti hendina að honum
eins og til að biðja um seríós en hann
bregst illa við og réttir handlegginn
upp eins og hann sé að gera sig lík-
legan til að slá frá sér. Mamma hans
ýtir handleggnum blíðlega niður og
segir það arf frá munaðarleysingja-
heimilinu að berjast fyrir sínu.
Undir allt búin
Fjölskyldan kom frá Kína þann
16. júlí og skömmu eftir heimkom-
una fór Arnar Ze í læknisskoðun.
„Þá átti að meta hjartagallann en
það fannst enginn hjartagalli. Það
virðist sem hann hafi læknað sig
sjálfur,“ segir Aðalheiður um þess-
ar ánægjulegu en óvæntu fregnir.
„Maður hefur heyrt ýmsar sögur
frá munaðarleysingjaheimilum í
Kína og vissum ekki alveg hverju
við áttum von á. Arnar Ze var síðan
vel nærður, með fallegar tennur og
þegar við sýndum honum greiðu
vissi hann alveg hvað átti að gera
við hana. En þetta getur verið mikið
happdrætti,“ segir Aðalheiður.
Það eru miklar breytingar sem
átt hafa sér stað hjá fjölskyldunni
á undanförnum árum og þau hjón-
in segjast sannarlega ánægð með
að hafa tekið þá ákvörðun að ætt-
leiða börn. „Þetta er auðvitað bara
stórkostlegt. Rétt eins og aðrir for-
eldrar sem eru að eignast börn þá
erum við í skýjunum. Að eiga tvö
heilbrigð börn er eins og að hafa
fengið fimm rétta í lottóinu,“ segir
Aðalheiður. Enn og aftur horfa þau
brosandi hvort á annað og Guð-
finnur bætir við: „Ég var alltaf
að bíða eftir lottóvinningnum en
ég held að hann sé kominn núna.
Tvisvar!“
Þegar komið er að kveðjustund
lætur Arnar Ze sér ekki nægja að
segja „bæbæ“ við mig heldur bætir
hann við með kínverskum hreim
„Sjáumst!“. Og þegar ég held að
hann geti ekki orðið meira krútt
setur hann stút á munninn og
mamma hans skýrir málið: „Hann
vill kyssa þig.“ Aðalheiður og Guð-
finnur einsettu sér að ala upp þessi
börn og veita þeim betri lífsgæði
en þau hefðu annars haft. Væri ég
félagsráðgjafi myndi ég gefa þeim
toppeinkunn eftir þennan stutta
fund.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Ferskt lambagúllas
úr íslenskum lambaframparti
Ferskt lambagúllas er frábært í íslenska
kjötsúpu, pottrétti og alla gúllasrétti.
Veldu gæði - veldu Kjarnafæði.
Kjarnafæði framleiðir flestar þær afurðir úr íslensku gæðakjöti sem í boði eru á íslenskum
neytendamarkaði. Höfuðáherslur Kjarnafæðis eru á vöruvöndun og gæði framleiðslunnar og því er
markvisst stefnt að aukinni hollustu, unnið að fækkun aukefna og ofnæmisvalda. Kjötiðnaðarmeistarar
fyrirtækisins hafa hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir færni sína.
Kjarnafæði hf.
601 Akureyri
Sími 460 7400
kjarnafaedi.is
Nýbúin að fá Arnar Ze á hóteli í
Changsha í Kína.
Skoðuðum skemmtigarð í Bogota
Kólumbíu.
Alsæl systkin nýlent á Keflavíkur-
flugvelli.
Síðasta kvöldið í Peking í Kína.Guðfinnur með Stefaníu Carol fyrir utan
ættleiðingaskrifstofuna í Cali Kólumbíu.
26 viðtal Helgin 22.-24. ágúst 2014