Fréttatíminn - 22.08.2014, Qupperneq 34
Honum
finnst æðis-
legt að vera
í nælon-
sokka-
buxum, að
sjá þær og
koma við
þær.
Pantanir í síma: 588 8998
joifel@joifel.is
skírnartertur
að hætti Jóa Fel
– nýr stíll frá París
K lofvegahandbókin var vinnuheitið lengst af. Það er algjörlega stór-kostlegt orð sem kemur frá Maríu
Hjálmtýsdóttur, vinkonu minni og orða-
smið,“ segir Ragnheiður Haralds- og Ei-
ríksdóttir um nýju bókina sína „Kynlíf
– já, takk.“ Sá titill varð endanlega fyrir
valinu eftir kosningu á vef Ragnheiðar,
eða Röggu Eiríks, eins og hún er yfirleitt
kölluð, en hún segir hann sannarlega vera
í sínum „kynlífsjákvæða“ anda. „Hann er
skýr og fallegur. Markmiðið með mínum
skrifum hefur alltaf verið að reyna að efla
þekkingu og víðsýni, og aðstoða fólk við
að komast á jákvæðan og afslappaðan stað
gagnvart kynlífi,“ segir hún.
Ragga hefur skrifað um kynlíf með hlé-
um frá árinu 1999, eða í 15 ár. Hún fékk
nýverið þá hugmynd að nýta allt það efni
og þekkingu sem hún hefur aflað sér á
þessum tíma til að gera bók. Hún kynnti
hugmyndina fyrir Forlaginu og segir hún
að á þeim bænum hafi fólki þótt hugmynd-
in „sexí.“ Bókin skiptist í fjóra kafla eftir
áhersluefnum: Konur, Karlar, Saman og
Skapandi kynlíf. Þarna er því úrval af fyr-
irspurnum og svörum sem Ragga hefur
fengið í gegn um tíðina en einnig fræðslu-
kaflar sem einkennast af hispursleysi og
glettni, rétt eins og Ragga sjálf.
Sterku karlmennirnir standa eftir
Hún viðurkennir að í hinu daglega lífi er
fólk almennt mjög opið við hana um kyn-
líf. „Fólk er fljótt að fara á trúnó við mig,“
segir hún og hlær. Í raun býr hún yfir mjög
yfirgripsmikilli þekkingu þegar kemur
að kynlífi og hún segir það stundum gera
karlmenn feimna við hana. „Já, sumir
verða bara hræddir. Það er samt ágætis
sía. Þá standa eftir áhugaverðir og sterkir
karlmenn sem gaman er að hafa samskipti
við. Ég er því bara ánægð með þetta. Það
er auðvitað eðlilegt að sumir verði óör-
uggir en svo eru aðrir sem verða kannski
óeðlilega áhugasamir. Það er allur gangur
á þessu,“ segir hún.
Þrátt fyrir að hafa skrifað um kynlíf og
svarað spurningum fólks í fimmtán ár,
áður en notkun netsins varð almenn, segir
hún sama kjarnann vera í áhyggjum fólks
og vandamálum þegar kemur að kynlífi.
„Fólk leitar svara við því hvort það er öðru-
vísi en aðrir, hvort langanir þeirra séu eðli-
legar eða hvort það þurfi að hafa áhyggjur
af löngunum sínum. Fólk er óöruggt í sam-
bandi við útlit og óöruggt í samskiptum
um kynlíf. Þetta eru svipaðar tilfinningar
sem fólk upplifir en nánari smáatriði eru
gríðarlega fjölbreytileg,“ segir hún.
Kynferðislegt sjálfstyrkingarnám-
skeið
Ragga svarar enn spurningum á netinu,
bæði á Raggaeiriks.com og á Smartlandi,
og nýverið fékk hún afar skemmtilegt bréf
sem hún á reyndar eftir að svara. „Ég fékk
bréf frá manni sem hefur einlægan og mik-
inn áhuga á nælonsokkabuxum. Honum
finnst æðislegt að vera í nælonsokkabux-
um, að sjá þær og koma við þær. En hann
hafði engar áhyggjur af þessu blæti sínu
og skammaðist sín ekkert, sem gladdi mig
mjög. Hann vildi einfaldlega koma því á
framfæri að það væri of lítið fjallað um
nælonsokkabuxur og var í raun fullur af
jákvæðri spennu.“ Hún segir að eftir öll
þessi ár sé það fólk með munalosta, það
er fær kynferðislega örvun af óvenjulegum
aðstæðum eða hlutum, sem komi henni á
óvart. „Ég verð alltaf svo glöð að sjá alla
þessa fjölbreytni,“ segir hún.
Um ástæðu þess að hún ákvað að gefa
bókina út segir Ragga að það sé í fyrsta
lagi alltaf ástæða til að fjalla um kynlíf.
„Það er eftirspurn, það er áhugi og fólk
hefur verið frekar opið og tekið vel þeim
tóni sem ég hef í mínum skrifum, tónn
sem er hlýr en líka með smá húmor. Ég
reyni að af-dramatísera hlutina.“
Auk bókarinnar er Ragga að fara af stað
með kynferðisleg sjálfstyrkingarnámskeið
fyrir konur í samstarfi við Baðhúsið. „Ég
hef verið með vinsæl námskeið og er að
byrja með þau aftur í september. Þau eru
fyrir konur, yfir 18 ára, og er algjörlega
óháð samböndum þeirra við elskhuga eða
ástkonur, þetta snýst um samband kon-
unnar við sjálfa sig og um það að vera kona
og kynvera.“
Ragga hvetur fólk til að vera afslappað
þegar kemur að kynlífi og ekki hafa of
miklar áhyggjur. Kjarninn í boðskapnum
er í raun einfaldur: „Ef þú ert að uppfylla
óskir þínar og þarfir, og ekki að meiða
neinn – nema hann vilji það – þá er líklega
flest í góðu lagi.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Sumir karlmenn eru
hræddir við mig
Ragnheiður Haralds- og Eiríksdóttir hefur skrifað um kynlíf í 15 ár og nálgast hún viðfangsefnið af hlýju en jafnframt smá
húmor. Mynd/Hari
34 viðtal Helgin 22.-24. ágúst 2014