Fréttatíminn - 22.08.2014, Qupperneq 36
Helgin 22.-24. ágúst 2014
Námskeið PersóNulegur fatastíll í Námsflokkum HafNarfjarðar
Ég er engin tískulögga
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 108 • Reykjavík • Sími 560 1010 www.heilsuborg.is
Þarfnastu meiri orku
til daglegra starfa?
Orkulausnir
henta þeim sem glíma við orkuleysi, þrekleysi,
verki eða svefnvanda. Hentar vel þeim sem
vilja byggja upp orku vegna vefjagigtar eða eftir
veikindi.
• Hefst 26. ágúst- 8 vikur
• Þri. og fim. kl. 10:00 og 15:00
• Framhaldsnámskeið sömu daga kl. 14:00
• Einstaklingsviðtal við hjúkrunarfræðing
• Þjálfari: Linda Gunnarsdóttir, sjúkraþjálfari
Upplýsingar í síma 560 1010 eða á mottaka@heilsuborg.is
WWW.LEIKHUSID.IS WWW.LEIKHUSID.IS
Hildur Inga Björns-
dóttir mun að-
stoða fólk við að
finna sinn pers-
ónulega fatastíl
í Námsflokkum
Hafnarfjarðar í
vetur. Hildur segir
liti og snið henta
fólki misvel og að
rétt valin föt geti
veitt fólki aukið
sjálfstraust og
vellíðan. Nám-
skeiðið er fyrir 16
ára og eldri, karla
og konur.
Þ etta námskeið er góður val-kostur fyrir fólk sem er í vandræðum með að finna
sinn eigin stíl en líka fyrir fólk sem
hefur áhuga á fötum,“ segir hönn-
uðurinn Hildur Inga Björnsdóttir,
en hún verður með námskeið í
Námsflokkum Hafnarfjarðar
í vetur. Þar mun hún leið-
beina fólki og aðstoða við
að finna sinn eigin fatastíl
og finna hvaða litir og snið
klæða það best. „Þetta eru
alls engar predikanir um
það í hverju þú eigir að
vera, ég er alls engin tísku-
lögga og er á móti því að
segja fólki hvað það
á og á ekki að gera.
Þetta er frekar hugs-
að til að leiðbeina
fólki út frá þess
eigin forsendum.“
Föt geta gefið
sjálfstraust
Hildur Inga lærði
t ískuhönnun í
Mílanó og starf-
aði í mörg ár sem
stílisti hjá Nýju
Lífi. Hún segist
alltaf hafa haf t
mikinn áhuga á föt-
um og þá sérstak-
lega hvernig þau virka
sem tjáningarmáti.
Hún segir mikilvægt
að föt láti þá sem
þeim klæðast líða
vel. „Fólk verður svo
auðveldlega tísku-
fórnarlömb og fer
bara í eitthvað sem
klæðir það alls ekki
og gerir sér engan
veginn grein fyrir
því hvað fer þeim
og hvað ekki. Litir
og snið klæða fólk
misvel og láta fólki
líka liða misvel.
Þetta snýst á end-
anum um að hjálpa
fólki við að velja föt
sem láta þeim líða
betur og að kenna
fólki að vera óhrætt
við að klæðast þeim
fatnaði sem það lang-
ar til. Ef maður veit
hvað klæðir mann þá
eykst sjálfstraustið.“
Mikil tískupressa í
samfélaginu
Hildur Inga
segir Íslend-
inga almennt
frekar óörugga í klæðaburði og
gjarna á að elta tískustrauma. „Ég
held að flestir séu mjög mótaðir af
því samfélagi sem þeir búa í. Ég
bjó lengi í Danmörku og mér finnst
Danir mun óhræddari við að klæða
sig á persónulegan hátt.
Persónulega hef ég
sérstaklega gaman af
því að blanda litum
og munstrum sam-
an. Það skiptir mig
mjög miklu máli
að fötin séu þægi-
leg og helst vel ég
glaðlega liti. Sjálf
horfi ég á fatnað
sem ákveð-
inn miðil
og leið til
tjáskipta.
Þú segir
mikið um
það hver
þú er t
með því
hverju
þú
klæð-
ist en
marg-
ir eru
að ein-
hverju
leyti
hræddir
við að tjá sig
með klæðn-
aði. Það er
svo mikil
pressa í
samfé-
laginu
um það
hvað er í
t ísku og
hvernig
maður á
að klæða
sig. En
Íslendingar
eru að verða opn-
ari og litir eru
farnir að vera
meira áberandi
á Íslandi. Það er
t il dæmis orðið
algengara að sjá
karlmenn í litum.
En margir eru samt
ennþá hræddir um að
verða sér til skammar,
fylgi þeir ekki straumn-
um.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is