Fréttatíminn - 22.08.2014, Qupperneq 41
grænn lífsstíll 41Helgin 22.-24. ágúst 2014
Sparnaður með réttri notkun
M eð því að nota raftæki skynsamlega er hægt að lækka heimilisútgjöldin
umtalsvert, auk þess að auka ending-
artíma raftækjanna. Að sögn Brynj-
ars Stefánssonar, forstöðumanns
sölu- og markaðsmála hjá Orku nátt-
úrunnar, er hægt að spara orkuna á
margvíslegan hátt. „Sem dæmi notar
þvottavélin helmingi minna rafmagn
ef hún þvær á 60°C hita í stað 90°C.
Frystikista þarf fimm prósent minna
rafmagn fyrir hverja gráðu sem hit-
inn er lægri í herberginu sem hún er
í. Því er skynsamlegt að hafa hana á
köldum stað,“ segir hann.
Einföld reiknivél
Á vef Orku náttúrunnar, www.on.is,
er reiknivél sem sýnir kostnað við
orkunotkun helstu heimilistækj-
anna. Á Mínum síðum – viðskipta-
mannavef ON geta viðskiptavinir
líka borið saman sína orkunotkun
við sambærileg heimili. Á einfaldan
hátt er hægt að nálgast nákvæmar
upplýsingar um það hversu hár
orkukostnaður hvers raftækis er á
ári, miðað við meðalnotkun á viku.
Ljósin slökkt á nóttunni
Ef kveikt er á fjórum 60w glóper-
um frá miðnætti til klukkan átta á
morgnana samsvarar það tæplega
10.000 krónum í orkukostnað á
ári og því er hægt að ná fram tölu-
verðum sparnaði með því hafa alltaf
slökkt á nóttunni. Rafmagnskostn-
aður fyrir meðal 100 fermetra íbúð í
fjölbýli, þar sem búa tveir fullorðnir
og tvö börn, er um 66.000 krónur ári
(miðað við 4.800 kWh notkun). Að
sögn Brynjars væri hægt að ná þess-
um kostnaði töluvert niður með því
að hafa einungis kveikt á ljósum þeg-
ar þörf er á og að nýta orkufrekustu
tækin á sem hagkvæmastan hátt.
Unnið í samstarfi við
Orku náttúrunnar
Prófaðu reiknivélina á www.on.is og sjáðu hvað spjaldtölvan,
leikjatölvan og sjónvarpið nota mikið rafmagn.
Við erum heppin að náttúran skuli sjá okkur fyrir meira en nóg
af orku til að létta okkur lífið svo um munar. Forsenda þess
að við getum farið vel með auðlindirnar og lækkað kostnað
er að vita hvað er í gangi og hversu mikla orku raftækin nota
að staðaldri. Á on.is er handhæg reiknivél sem auðveldar þér
að sundurliða orkunotkun heimilisins og meta kostnaðinn í
heild og við einstaka þætti.
Orka náttúrunnar framleiðir
og selur rafmagn til allra
landsmanna á samkeppnishæfu
verði. Við viljum nýta auðlindir
af ábyrgð og nærgætni og bæta
lífsgæðin í nútíð og framtíð.
ORKA NÁTTÚRUNNAR
Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is
HVAÐ FER MIKIL ORKA Í HEIMILISTÆKIN?
Með skynsamlegri notkun raftækja geta heimili sparað umtals-
vert. Á vef Orku náttúrunnar er reiknivél þar sem á einfaldan
hátt er hægt er að reikna út orkunotkun heimilistækjanna.
Góð sparnaðarráð
Orka náttúrunnar, eða ON, er dóttur-
félag Orkuveitu Reykjavíkur og tók
við framleiðslu og sölu á rafmagni
OR um síðustu áramót. ON fram-
leiðir og selur rafmagn til marga
heimila og fyrirtækja um allt land
og byggir á næstum hundrað ára
reynslu Orkuveitu Reykjavíkur og
forvera hennar. Nánari upplýsingar
má nálgast á vef ON, www.on.is
n Með því að
slökkva alltaf ljósin
á nóttunni er hægt
að spara umtals-
verða fjárhæð.
n Þegar þvegið
er á 60°C hita
notar þvottavélin
helmingi minni
orku en þegar
þvegið er á 90°C.
n Frystikista þarf
fimm prósent
minna rafmagn
fyrir hvert stig eftir
því sem umhverfis-
hitinn er lægri.
n Led ljósaperur
nota minni orku og
endast lengur en
aðrar gerðir.
Brynjar Stefánsson, forstöðumaður sölu- og markaðsmála hjá Orku náttúrunnar.
Á vef Orku náttúrunnar, www.on.is, er reiknivél sem sýnir kostnað við orkunotkun helstu heimilistækjanna. Þar er á einfaldan hátt
hægt að nálgast nákvæmar upplýsingar um það hversu hár orkukostnaður hvers raftækis er á ári, miðað við meðalnotkun á viku.