Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.08.2014, Page 46

Fréttatíminn - 22.08.2014, Page 46
46 bílar Helgin 22.-24. ágúst 2014  ReynsluakstuR land RoveR discoveRy T Ú R I S T I Einfaldari lEit að ódýrum hótElum í útlöndum Leitaðu og berðu saman tilboð á hótElum út um aLLan heim og skoðaðu úrvaLið af sérvöLdum gististöðum, orLofsíbúðum og gistiheimiLum fyrir næstu utanLandsferð á túristi.is. Lesendur okkar fá einnig regLuLega sérkjör á gististöðum út í heimi. Leitið upplýsinga á auglýsingadeild Fréttatímans í síma 531 3310 eða á auglysingar@frettatiminn.is Fréttatímanum er dreift á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri auk lausadreifingar um land allt. Dreifing með Fréttatímanum á bæklingum og fylgiblöðum er hagkvæmur kostur. Ert þú að huga að dreifingu? É g hef alltaf elskað Land Rover. Það eru einfaldlega fallegustu bílar sögunnar. Það sem mér finnst vera sérstaklega töff við Land Rover, fyrir utan aug- ljósa fegurð hans og þá staðreynd að hann hefur frá upphafi verið handsmíðaður, er hversu illa hann nýtist til að skilgreina fólk. Land Rover hefur alltaf verið bíll allra, hvort sem það er íslenski afdalabóndinn, göngugarpur- inn eða Breta- drottning. Því allir eru flottir í Land Rover. Ég hef keypt mér einn bíl um ævina og það var Land Rover ‘64 módel, annars hef ég bara verið svo heppinn að fá afhenta bíla sem voru annars á leið í brotajárn, en sem hafa náð að deyja hægum dauðdaga í mínum höndum. Ég myndi einfaldlega aldrei kaupa mér annað merki en Land Rover. Afvegaleiddur lúxusjeppi Framleiðendur Land Rover hafa löngum verið þekktir fyrir að handsmíða eina fallegustu bíla heims, með gæði og notagildi að leiðarljósi. Bíla sem hæfa drottningum og bændum. Nú hefur því miður orðið breyting þar á. Land Rover Discovery Eyðsla, innanbæjar: 8.6 / 100 km. CO2 útblástur: 207 Vél: Dísil. 8 þrepa sjálfskipting. Start/Stopp ræsihnappur Hröðun: 0-100 km/klst. 10.7 sek. Verð: frá 11.390.000 Ég varð því fyrir miklu áfalli þegar ég hringdi í umboðið til að fá nýjan Land Rover til reynsluaksturs og komst að því að engir slíkir væru í boði þar sem fram- leiðslu hefði verið hætt og allir bílar upp- seldir. Mér bauðst í staðinn að reynslu- aka Land Rover Discovery, sportútgáfu af gömlu klassíkinni sem kom á markað árið 1999, sem er ástæða þess að Land Rover fékk nafnviðbótina Defender, til að skilgreina sig frá nýjum Discovery. Í upphafi framleiðslu sinnar var Disco- very-inn frekar töff, næstum jafn töff og forfaðirinn. Einföld og klassísk hönnun með notagildi og gæði í fyrirrúmi. Nú hefur hann hinsvegar villst af sinni upp- runalegu leið inn í einhverskonar lúxus- útgáfu af sjálfum sér og það eina sem minnir á forna frægð er vísisklukkan á mælaborðinu. Það fer honum einfaldlega ekki nógu vel að vera straumlínulaga lúxusjeppi, enda hafði Range Roverinn það hlutverk innan Land Rover fjölskyld- unnar. En þar sem ég var komin með bílinn í hendurnar fór ég með börnin að veiða. Því það er einhvernveginn það sem mað- ur gerir á sunnudagi á Discovery. Það var svo sem ekkert leiðinlegt að keyra hann í sandinum. Hann er þungur en kraftmik- ill og þægilegur að flestu leyti. En hann er samt enginn Defender. Þess skal þó getið, þótt söknuður minn eftir Land Rover Defender sé mikill, að ljósmyndarinn og annar blaðamaður sem prófuðu lúxusjeppann Land Rover Disco- very, fannst hann æðislegur. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Þar sem ég var komin á Discovery fór ég með börnin að veiða, því það er einhvernvegin það sem maður gerir á sunnudegi á Discovery. Ljósmynd/HH Það eina sem minnir á forna frægð er vísisklukkan á mælaborðinu, en helsti kostur Land Rover Discovery en risastórt farangursrýmið. Ljósmyndir/Hari Það eru allir töff í þessari fallegu handgerðu klassík, hvort sem það er ís- lenski bóndinn eða Bretadrottning.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.