Fréttatíminn - 22.08.2014, Síða 52
Helgin 22.-24. ágúst 2014
umfjöllunin er í boði SkjáSeinS
Fótbolti Ásgeir sigurvinsson telur að bayern Fari ekki eins létt gegnum þetta tímabil
þ að er gaman að boltinn sé að byrja að rúlla í Þýskalandi og maður reynir að sjá þessa leiki
sem eru sýndir. Ég tek þessa leiki fram
yfir þá ensku,“ segir Ásgeir Sigurvins-
son, að margra mati besti fótboltamað-
ur sem Ísland hefur átt.
Ásgeir lék með Bayern München og
svo Stuttgart á sínum tíma. Hann varð
þýskur meistari árið 1984 og var kjör-
inn besti leikmaður deildarinnar það ár.
Hann mun fylgjast spenntur með þegar
Robert Lewandowski, Thomas Müller,
Marco Reus og fleiri leikmenn þýsku
deildarinnar láta ljós sitt skína í vetur.
„Það er svakaleg stemning í Þýska-
landi núna og liðin hafa verið að styrkja
sig vel. Ég held samt að þetta endi í bar-
áttu milli tveggja liða, Bayern München
og Dortmund. Ég hef það á tilfinning-
unni að Bæjarar fari ekki eins létt í
gegnum þetta núna eins og þeir gerðu
í fyrra. Þeir eru samt óneitanlega gríð-
arlega sterkir og það verður erfitt að
taka þá úr hásætinu.“
Ásgeir sér fram á að Dortmund verði
eina liðið sem geti strítt Bayern en þeg-
ar þessi lið mættust í þýska Ofurbikarn-
um á dögunum unnu þeir gulu sigur.
„Það vantaði sterka leikmenn í Bayern
í þeim leik og landsliðsmennirnir voru
ekki klárir. Það var þó gaman að sjá
unga leikmenn fá tækifæri enda fullt af
efnilegum leikmönnum sem spennandi
verður að sjá,“ segir Ásgeir.
„Þýska deildin er sú mest sótta í
heiminum. Vellirnir þarna eru orðnir
mjög flottir og aðstæður hjá öllum lið-
um frábærar. Það er mikil upplifun að
fara á völlinn þarna. Nú þegar Þýska-
land er heimsmeistari er áhuginn enn
meiri og það verður pottþétt uppselt á
flesta leiki. Áhugi þjóðarinnar er gríð-
arlegur.“
Ásgeir var staddur í Þýskalandi þeg-
ar hluti heimsmeistaramótsins í Brasi-
líu fór fram. „Ég horfði á leiki með
fyrrum landsliðsmönnum Þýskalands
og stemningin í landinu nær til allra.
Enski boltinn er fast mótaður hjá Ís-
lendingum og það verður ekki breyting
á því en menn ættu klárlega að fylgjast
með þýska boltanum í auknum mæli
þegar færi gefst,“ segir Ásgeir Sigur-
vinsson.
-egm
Fótboltaáhuginn
í Þýskalandi
aldrei meiri
Ásgeir Sigurvinsson býst við harðri
baráttu milli Bayern München og
Dortmund í þýska boltanum í vetur.
Myndir/NordicPhotos/Getty
Ásgeir Sigurvinsson er
fyrrum landsliðsmaður
Íslands og tók síðar við
þjálfun liðsins.
Ásgeir (til hægri) í harðri baráttu í leik með Stuttgart.
Heimili heimsmeistaranna er á SkjáSport
Þýski boltinn (Bundesliga) byrjar að rúlla í dag og er mikil eftirvænting fyrir
komandi keppnistímabili. 17 leikmenn úr þýska landsliðinu eru í flestum liðum
deildarinnar, en þeir sigruðu á HM í fótbolta í sumar með eftirminnilegum
hætti. Í hverri viku mun SkjárSport sýna leik vikunnar með íslenskum þul í
nánu samstarfi við Fótbolti.net, sem verður heimahöfn þýsku deildarinnar
varðandi alla umfjöllun og upphitun fyrir hverja leikviku í vetur.
Vönduð umfjöllun verður síðan öll mánudagskvöld á SkjáSport í sérstökum
markaþætti þar sem flottustu mörk vikunnar eru rifjuð upp, farið yfir umdeild
atvik og spáð í spilin. Tryggðu þér áskrift að SkjáSport, Eurosport 1 + HD,
Eurosport 2 + HD, Sky News, MotorsTV, Extreme Sport Channel og Ginx fyrir
einungis 1.990 krónur á mánuði en 1.490 krónur á mánuði fyrir áskrifendur
SkjásEins.
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711
MONTY PYTHON LIVE (mostly) 7 - 31 ÁGÚST: 20.00
Kynntu þér siglingar á uu.is
Úrval Útsýn er í Hlíðasmára 19, Kópavogi.
Sími 585 4000 www.uu.is
Vestur Karíbahaf
Úr skammdeginu í 30° hita
31. OKTÓBER – 11. NÓVEMBER
Verð frá aðeins 352.900 kr.
Kemur næst
út 12. september
Nánari upplýsingar veitir
Gígja Þórðardóttir,
gigja@frettatiminn.is,
í síma 531-3312.
52 fótbolti