Fréttatíminn - 22.08.2014, Page 68
HELGARBLAÐ
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
ArnAr Snæberg JónSSon
Bakhliðin
Ljúfur
snillingur
Aldur: 37 ára.
Maki: Hildur Guðjónsdóttir.
Börn: Tómas Andri 16 ára, Brynjar
Freyr 12 ára og Egill 5 ára.
Menntun: Tómstunda- og félags-
málafræðingur.
Starf: Verkefnastjóri Breiðholts-
verkefnisins hjá Reykjavíkurborg og
rekur einsmanns pönk-hljómsveitina
Hemúlinn.
Fyrri störf: Tómstundafulltrúi í
Strandabyggð og framkvæmdastjóri
Sauðfjárseturs.
Áhugamál: Tónlist, fjölskyldan og
fjölbreytileiki mannlífsins.
Stjörnumerki: Ljón.
Stjörnuspá: Vinskapur skiptir þig
miklu máli. Besta leiðin til þess að
komast í gegnum félagslegt annríki
dagsins er að taka einn hlátur í einu.
Hann Arnar Snæberg er frábært eintak af mann-eskju,“ segir Óskar Dýr-
mundur Ólafsson, yfirmaður
Arnars. „Hann er hrókur alls
fagnaðar og ávallt tilbúinn til
að fylla í eyður í samkvæmum.
Hann er einstaklega ljúfur og
góður maður og sem yfirmaður
hans get ég sagt að hann er
afskaplega góður starfsmaður.
Hann skilar sínum verkefnum af
mikilli alúð og bætir yfirleitt við
þau umfram það sem honum er
falið. Hann er mikill snillingur.“
Arnar Snæberg Jónsson vakti athygli
í vikunni þegar hann sótti um vinnu á
Smartlandi í bundnu máli.
Hrósið...
... fá Martin Hermannsson
og félagar í íslenska karla-
landsliðinu í körfubolta sem
eru komnir með annan fótinn
á EM eftir sigur á Bretum í
vikunni.
Falleg
lesgleraugu
Laugavegur 45
Sími: 519 66 99
Vefverslun: www.myconceptstore.is
Verð 7.500,-