Þjóðlíf - 01.09.1986, Blaðsíða 71
„Ég hef hugsað mér að kalla bókina
Blátt og rautt,“ segir Árni Bergmann, rit-
stjóri og rithöfundur, þegar spurt er tíð-
inda af væntanlegri bók sem kemur út
með haustinu hjá Máli og menningu.
„Hvort útgáfufyrirtækið samþykkir það
er svo annað mál."
Bók þá sem hér um ræðir skrifa þau
Árni og Lena Bergmann í sameiningu.
Hún segir frá uppvaxtarárum Árna í
Keflavík og Lenu í Rjazan og í Mið-Asíu.
skólaárum þeirra undir stjórn Bjarna
á Laugarvatni og Stalíns og í stuttu máli
því hvernig líf heillar kynslóðar mótaðist.
Árni kvað bókina sama eðlis og Mið-
vikudagar í Moskvu er út kom 1979 og
vera um tímann fyrir þá bók, eða þar til
Árni hélt utan til Moskvu. í bókinni segir
ekki aðeins af höfundum, heldur alls kyns
fólki er fyrir augun bar.
Aðspurður um hvort hér væri á ferð-
inni saga SÍA kynslóðarinnar innan Al-
þýðubaridalagsins, sem svo hefur verið
nefnd, kvað Árni svo vera á vissan hátt.
„Lífsvandamál þeirrar kynslóðar koma
þarna vissulega við sögu, enda ég einn af
henni," segir Árni. Parna verða tvær
ferðasögur, önnur um ferðina til Búka-
rest, en sá kafli var birtur í einu af fyrri
heftum ÞJOÐLÍFS.oghin um Fylkingar-
þingið á Akureyri 1952, sem var merki-
Árni Bergmann: Bókin m.a. um
skólavist hjá Bjarna á Laugarvatni og
Stalín. (Ljósmynd: Gunnar Elísson)
Blátt
ograutt
legt þing að sögn Árna. Pá var Guð-
mundur J. Guðmundsson formaður
Reykjavíkurdeildar Fylkingarinnar og
Kjartan Ólafsson fór fyrir norðanmönn-
um. Ingi R. Helgason var þá forseti sam-
takanna.
Þau Árni og Lena skrifa bókina í sam-
einingu, eins og áður sagði, en þó þannig
að Lena skrifar um sig og sína og Ámi um
sig og sína. Hlutur Lenu er fyrirferðar-
minni en Árna. Ekki vegna karlrembu-
frekju Árna, heldur vegna hins, að Árni
hefur geymt meira af pappírum í sínum
fórum en Lena og getur víðar leitað fanga
en hún. „En minnið er duttlungafullt,"
segir Árni. „Ég á mismikið af minnis-
blöðum og bréfum frá hinum ýmsu tím-
um og ég býst við að áherslurnar í bókinni
endurspegli það dálítið. Skemmtilegast
hefði auðvitað verið að skrifa hreina
skáldsögu, því þá hefði maður getað logið
svo miklu! En þessi bók er byggð á eins
hreinum staðreyndum og unnt er."
Petta verður fjórða bók Árna en fyrsta
bók Lenu. Áður hefur Árni sent frá sér
ofannefnda Miðvikudaga í Moskvu
1979, Geirfuglana 1982 og Með kveðju
frá Dublín 1984.
Notaðu hugmyndaflugið
Vertu skapandi
Til eru margar aðferðir við rétta lýsingu.
Farðu þínar eigin leiðir.
Liturinn á lampanum getur fallið að innbúinu.
Eða stungið í stúf.
Hönnunin getur verið sígild. Eða frumleg og ólík
öllu öðru!
Vellíðan er samsett úr mörgum þáttum, þar á
meðal góðri lýsingu. Og það á jafnt við í starfi
sem hvíld.
RAFBÚÐ
DOMUS MEDICA, EGILSGÖTU 3 101 REYKJAVÍK BOX 63
TELEX 2052 STEFÁN IS SÍM118022