Þjóðlíf - 01.09.1986, Blaðsíða 66
FRETTIR
Meðal jólabókanna í ár verður ný
skáldsaga eftir Thor Vilhjálmsson
sem bæjartungur kunnugar á bók-
menntamarkaðnum segja að eigi eftir
að vekja verulega athygli, bæði fyrir
efni og stfl, en bókin sé töluvert frá-
brugðin því sem áður hafi komið frá
höfundi.
Thor neitar því ekki aðspurður að
bókin sé óvenjuleg frá hans hendi.
„Ég hugsa að ýmsum bregði í brún
því hún stingur í stúf við það sem
áður hefur komið frá mér,“ segir
hann. „Ýmsir hafa verið að ólundast
yfir því að ég hef ekki haldið mig við
íslenskt efni — hvað sem það nú er.
Við erum kannski dálítið klofnir ís-
lendingar; erum í senn eins og
gengnir út úr fornsögunum í nánu
tilfinningasambandi við náttúruna og
hins vegar nútímafólk, sem býr við
ítrustu þægindi og tækni og rekst um
allan heim að gá í kringum sig.“
Hvert er efnið?
„Ég er óskaplega ónýtur að rekja
efnisþráðinn í verkinu þegar svo mik-
ið hefur gengið á að koma því saman.
Ég er rétt nýbúinn að ljúka við bók-
ina og ef ég ætti að rekja efnið yrði ég
að í marga daga. Viltu það?“ segir
Thor og hlær við. „Er ekki bara
vænna að bíða þangað til bókin kem-
ur út?“
Thor segir þó, að vissir atburðir
norður í landi handan við síðustu
aldamót hafi sumpart orðið sér inn-
blástur. „Þetta er skáldsaga," segir
66 ÞJÓÐLÍF
Thor Vilhjálmsson: Mörgum mun
bregða í brún. (Ljósmynd: Þorvarður
Árnason)
Bók sem
keinur
áóvart
hann, „kannski nær hefðbundinni
skáldsögu en ýmsar mínar fyrri
bækur. Þær eru nú kallaðar skáld-
sögur líka, sumar hverjar, þó þær séu
æði frábrugðnar því sem maður kall-
ar hefðbundna skáldsögu. Menn hafa
ýmsar skoðanir á því hvað eru skáld-
sögur. Mér er sama hvað þeir kalla
skáldsögu eða hvort þeir nota ein-
hver önnur orð, þeir sem hafa vald
og þekkingu á að skilgreina þessa
hluti. Mitt er að finna rétt form fyrir
það sem er að brjótast um í mér
hverju sinni. Þeir sem fjalla um verk-
ið mega kalla það þeim nöfnum sem
þeir vilja. Ég er ánægður ef verkið
stenst samkvæmt sínum lögmálum.“
Thor segir, að langt sé síðan hann
fór að hugsa um þetta efni. „Það tók
mig tíma að átta mig á sviðinu og
hvernig ég ætti að taka á þessu,“ segir
hann. „Bókin hefur því verið alllengi
í smíðum, en ég hef reyndar hlaupið í
annað á milli og sumt stór verkefni,
eins og Nafn Rósarinnar, Hlutskipti
manns eftir Malraux og Dagleiðina
löngu eftir Eugene O'Neill fyrir Þjóð-
leikhúsið. Efnið reyndist ekki auð-
velt viðfangs."
Nafn bókarinnar nýju?
„Ja, þar komstu nú að tómum kof-
unum hjá mér,“ segir Thor og strýkur
um hár sér. „Nafnið er ekki komið
enn, en ég þarf nú að fara að skila
því. Það kemur alltaf síðast hjá mér
og er stundum jafnvel komið í ein-
daga og útgefandinn farinn að ham-
ast við að berja út úr mér nafnið. En
það kemur, það kemur.“