Þjóðlíf - 01.09.1986, Blaðsíða 68
Útgáfufyrirtækiö Svart á hvítu ræöst
ekki á garðinn þar sem hann er lægstur.
Borgarskráin kemur út hjá fyrirtækinu í
október og nýlega kom út annað bindi
íslendingasagna Svarts á hvítu.
Sú sem stýrir efnisöflun vegna Borgar-
skrárinnar heitir Ragnhildur Zöega. Hún
gaf okkur þær upplýsingar, aö skránni
veröi dreift inn á hvert heimili í landinu,
ekki aðeins í Reykjavík og nágrenni.
Skráin hefur að geyma upplýsingar um
fyrirtæki og stofnanir í höfuðborginni
ásamt tilvísun í kort. Fyrirtæki og
stofnanir verða einnig flokkuð eftir
starfssviði. Þannig ætti að fást nokkuð
heilleg mynd af þeirri þjónustu sem veitt
er í höfuðborginni ásamt þeim fyrirtækj-
um sem þar starfa. Að auki fylgja skránni
kort af öllu höfuðborgarsvæðinu,
Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði,
Garðabæ, Mosfeilssveit, Álftanesi og
Seltjarnamesi. í bókinni verður skrá yfir
allar götur á höfuðborgarsvæðinu í staf-
rófsröð og upplýsingar um hvar þær er að
finna á korti og einnig fylgja bókinni upp-
lýsingar um áhugaverða staði og bygging-
ar. I bókinni verður ýmislegt fleira nyt-
samlegt og áhugavert en það sem þegar
hefur verið upp talið. Má þar nefna ágrip
af sögu Reykjavíkur, upplýsingar um
borgarstofnanir og upplýsingar um
strætisvagnaleiðir, auk hins hefðbundna
leiðakorts.
Skráin er fjármögnuð af þeim fyrir-
tækjum og stofnunum sem vilja taka þátt í
þessu framtaki útgáfunnar og afmælis-
nefndar Reykjavíkur. Ragnhildur sagði,
að mjög vel hefði tekist til og fá fyrirtæki
eða stofnanir yrðu útundan.
íslendingasögurnar sem Svart á hvítu
68 ÞJÓÐLÍF
Örnólfur og Ragnhildur: Stýra
stórframkvæmdum hjá Svörtu á
hvítu. (Ljósmynd Einar Garibaldi)
Tvíhöfða
Þurshiá
Svörtu
áhvítu
hefur gefið út hafa hlotið mjög góðar
undirtektir, svo góðar raunar að aðstand-
endur útgáfunnar telja þær sýna best að
áhuginn á rótum íslenskrar menningar sé
hvergi nærri dauður. Örnólfur Thorsson
heitir einn ritstjóra útgáfunnar. Hann
segir að í síðara bindi sagnanna, sem kom
út ekki alls fyrir löngu, séu 26 sögur, 59
þættir eða stuttar sögur sem gjarnan segja
frá skiptum íslendinga og erlendra valds-
manna, og að auki kvæði Hauks Val-
dísarsonar, íslendingadrápa.
Þessi útgáfa sagnanna er að sögn Örn-
ólfs ítarleg, margar sögur og raunar þættir
líka í fleiri en einni gerð. Hvort bindi er
margra bóka maki en þó lögð áhersla á að
textinn sé vel læsilegur og letur ekki of
smátt. Blaðsíðufjöldi beggja binda vcröur
nærri 2400, síðara bindið um 1200 síður.
Fyrra bindi íslendingasagna í þessari
útgáfu Svarts á hvítu hefur selst í rúmlega
fjögur þúsund eintökum og margir áskrif-
endureru að síðara bindinu. Utgáfan telst
því standa bærilega. „Þetta er eins og tví-
höfða dreki hjá fyrirtækinu," segir Örn-
ólfur um umsvifin og hlær við.
íslendingasögur svarts á hvítu má fá á
ýmsu verði sem ætti að henta pyngju
hvers og eins. Dýrust er auðvitað inn-
bundin útgáfa í skinn, cn einnig má fá
bækurnar í venjulegu rex-bandi. Ódýrust
ersíðan kiljuútgáfan.