Þjóðlíf - 01.09.1986, Blaðsíða 72
MATARLIF
Hér hefur göngu sína nýr þáttur í ÞJÓÐLÍFI,
sem við höfum gefið nafnið MATARLÍF. Á allra
síðustu árum hefur áhugi íslendinga á matar-
gerð farið mjög vaxandi og sömuleiðis hefur hún
breyst. Hefðbundin íslensk/dönsk matargerð
með velsteiktu kjöti, brúnuðum kartöflum og
matarmiklum og þykkum sósum er að vísu að
flestra mati enn fullboðleg, en hentar kannski
ekki nútíma lifnaðarháttum eða þeim kröfum
sem gerðar eru til einfaldleikans. Og það er
einmitt einfaldleikinn sem einkennir þær upp-
skriftir sem hér hafa verið valdar af kostgæfni.
72 ÞJÓÐLÍF
Fjallalambið (það er íslenskt og
segir me!) er eitt hið albesta lamba-
kjöt sem finnst í víðri veröld — ef það
er rétt meðhöndlað, en oft vill skorta
á að svo sé hér á landi. Þótt nýtt kjöt
sé ávallt best, þarf frysting ekki að
skemma fyrir ef fólk kann að með-
höndla kjötið rétt. Hér eru nokkrar
ábendingar.
Kaupið kjötið nokkrum dögum
áður en þið ætlið að neyta þess og
geymið í ísskáp til síðasta dags. Þótt
kjöt sé ekki látið hanga nægilega fyrir
frystingu ætti þessi meðferð að bæta
nokkuð úr. Kjötið verður miklu
meyrara á eftir. Enn meyrara verður
það þó ef það er marinerað með jóg-
úrt, en önnur uppskrifta okkar kenn-
ir ykkur þá meðferð. Saltið aldrei
kjöt fyrr en það er komið á diskana;
saltið dregur safann úr kjötinu og það
verður því þurrt fyrir vikið. Réttur
steikingartími er einnig atriði, en oft
vill brenna við að fólk steiki kjöt allt
of lengi. Hentugast er auðvitað að
nota góðan kjötmæli og hafa auga
með honum.
LAMBALÆRI MEÐ
MYNTU
Falleg skreyting með þessu eru
tómatahelmingar steiktir stutta stund