Þjóðlíf - 01.09.1986, Blaðsíða 36
Sólveig Arnardóttir og Gestur E.
Jónasson (efst) leika feðgin; Jan
Pehrson (til vinstri) kvikmynda-
tökumaður kannar Ijósmagnið í
Kjósinni; sveitakonurnar, leiknar
af Bríet Héðinsdóttur og Hönnu
Maríu Karlsdóttur eru greinilega
ekkert yfir sig hrifnar að þeirri
dönsku „ílandi dræsu“ sem Ása
Svavarsdóttir leikur (hér að
neðan); Salómon hinum sænska
(Ladda) þykir undarlegt að Stella
skuli sí og æ vera að sulla í
brennivíni (neðst), er hann ekki í
meðferð eða hvað?
munur á að vinna við þær eða í leik-
húsunum. Par ríkir miklu sterkari
hefð. Þetta er í sjálfu sér ekkert
óeðlilegt því reynslan þarf að erfast
milli kynslóða áður en hægt er að
búast við of góðu.
En miðað við núverandi ástand í
fjármögnun kvikmyndagerðar er
ekki auðvelt að sjá hvernig safnast á í
reynslusjóðinn. Það eru takmörk
fyrir því hvað fólk veðsetur aleiguna
oft! Og ef hver „ný kynslóð" stendur
ein og óstudd og úr tengslum við þá
sem á undan gengur er hætt við að
hægt miði. Það að plægja, sá og upp-
skera fellur ekki alltaf í hlut sömu
kynslóðar, en samhengið má ekki
vanta.“
„Það er svolítið leiðinlegt að þurfa
alltaf að kalla til nýtt fólk,“ segir
Guðný. „Það kemur í veg fyrir að
hægt sé að skipuleggja nokkurn hlut.
Oftast er það svo í íslenskri kvik-
myndagerð að einn aðili tekur áhætt-
una og það segir sig sjálft að sama
fólkið getur ekki tekið hana aftur og
aftur. Enda virðist enginn af þeim
sem gerðu fyrstu myndirnar æstur í
að gera fleiri myndir hér á landi.
Ég finn það líka að það hafa orðið
lygilegar breytingar síðan við gerðum
Skilaboð til Söndru um árið. Þá mætti
maður ótrúlegri greiðasemi en nú er
hún fokin út í veður og vind. Nú vilja
allir fá borgað upp í topp fyrir allt.
Svo er greinilegt að áhorfendur eru
ekki lengur sérlega spenntir fyrir ís-
lenskum kvikmyndum, það er allt
nýjabrum farið af þeim.“
Aðalhlutverkin í Stellu í orlofi eru í
höndum Eddu Björgvinsdóttur, Gests
E. Jónassonar, Ladda og þriggja
barna, þeirra Sólveigar og Porleifs
Arnarsbarna og Unnar Berglindar .
Auk þeirra fara margir leikarar með
minni rullur og statistar skipta hundr-
uðum. „Þetta er mikið fjölmenni.
Þarna koma við sögu heilt
fimmtugsafmæli, hópur flugmanna,
læonsklúbburinn Kiddi og farmur af
flugfarþegum ásamt ýmsum öðrum."
Bak við kvikmyndavélina er svíi,
Jan Pehrson tökumaður og vinur Lár-
usar Ýmis Óskarssonar. Hljóðkonan
er líka útlend, Martien Coucke frá
Belgíu. Porsteinn Jónsson er aðstoð-
arleikstjóri og myndstjóri, Ingibjörg
Briem er framkvæmdastjóri, Halldór
Porgeirsson sér um leikmynd, Karl
Júlíusson gerði búninga og Kristín
Pálsdóttir klippir.
36 ÞJÓÐLÍF