Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.10.2014, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 17.10.2014, Blaðsíða 18
Laugavegi 174 | Sími 590 5040 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16 Kíkið inná: heklanotadirbilar.is GÓÐIR, NÝLEGIR, TRAUSTIR GÆÐABÍLAR Á GÓÐU VERÐI VW Polo Comfl. 1.4 85 hö Árgerð 2013, bensín Ekinn 41.000 km, sjálfskiptur Hyundai i30 Comfort Wagon Árgerð 2009, bensín Ekinn 88.000 km, sjálfskiptur VW Tiguan Track&Sport 2.0 TDI. Árgerð 2012, dísil Ekinn 48.500 km, sjálfskiptur Ásett verð: 2.490.000 Ásett verð: 2.190.000 Ásett verð: 4.990.000 Skoda Rapid Amb. 1.2 105 hö. Árgerð 2013, bensín Ekinn 39.000 km, beinskiptur Ásett verð: 2.690.000 Skoda Superb Combi TDI 140 hö. Árgerð 2012, dísil Ekinn 98.000 km, sjálfskiptur Komdu og skoðaðu úrvalið! Kia Cee'd EX 1.6 New Árgerð 2013, dísil Ekinn 19.600 km, sjálfskiptur Ásett verð: 3.690.000 Audi A4 2.0 TDI 6 gíra Árgerð 2011, dísil Ekinn 60.000 km, beinskiptur Ásett verð: 3.890.000 VW Golf Trendline 1.6 TDI Árgerð 2011, dísil Ekinn 86.000 km, beinskiptur Ásett verð: 2.390.000 VW Passat Comfort 1.6 TDI DSG. Árgerð 2012, dísil Ekinn 42.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 4.150.000 Ásett verð: 3.570.000 Toyota Aygo Terra Árgerð 2013, bensín Ekinn 14.000 km, beinskiptur Ásett verð: 1.790.000 Ég vildi ekki bera áfram smit- sjúkdóminn ofbeldi. Ég hef aldrei meitt son minn eða neitt slíkt. Ég hef alltaf hugsað að hann eigi að búa við frelsi en þurfi líka á pabba sínum að halda. Honum var þó enginn greiði gerður með því að hafa pabba sinn veikan.“ Hugmyndafræðin sem hann varpar fram í bókinni hafði verið að gerjast með honum í nokk- urn tíma áður en hann byrjaði að skrifa, í apríl á síðasta ári. Hann sagði þá upp öruggri vinnu og lagðist í að rústa lífi sínu. „Ef ég væri í atvinnuviðtali og sendi þér ferilskrána mína hefði allt hljómað mjög vel út frá brengluðum sið- gæðis- og velferðarstöðlum sam- félagsins þar sem það skiptir máli í hvernig jakka þú gengur og hvaða tegund af marmelaði er í ísskápn- um. Ég var með góð laun, eitt- hvað af skuldum, hafði átt fallegar kærustur en var líka umdeildur því ég hef alltaf verið með aðra sýn á lífið og óhræddur við að prófa mig áfram þegar kemur að viðbrögðum samfélagsins. Almennt hafði ég það mjög gott en samt hafði ég það alls ekki gott.“ Í leit að eigin kjarna ákvað hann að fjarlægja sig frá öllu því sem hafði veitt honum öryggi og gera aðstæður sínar sem allra verstar. Hann flutti um tíma til Leipzig í Þýskalandi þar sem hann, staur- blankur, fékk að gista hjá vini sínum. Sævar neytti einnig ótæpi- lega af hugarbreytandi fíkniefnum á meðan hann var að skrifa bókina en hann var í mikilli neyslu sem unglingur. „Ég flutti að heiman 15 ára gamall og fór í mikla fíkniefna- neyslu. Ég ætlaði alltaf að snúa aftur og drepa stjúpa minn en það var öllum hlutaðeigandi að happi að ég var of dópaður til að gera nokkuð úr því.“ Árin liðu þar sem Sævar var í vímu og því fannst honum nauðsynlegt að neyta fíkniefna til að rifja þessa tíma upp á sem raunverulegastan hátt. „Hlutverk penna er ekki að mynda skoðanir eða varpa fram heilögum sann- leika. Það sem pennar og rithöf- undar gera er að segja sögu. Þú þarft að brjótast eins mikið og þú getur frá hugmyndum þínum um sjálfan þig til að komast að kjarnanum. Aðeins þannig getur myndin sem þú dregur upp í huga lesenda orðið sem næst því að vera í þessum sporum í alvörunni. Þér á að líða eins og mér leið þegar ég upplifði þessa hluti þegar þú lest bókina. Bókin fjallar að hluta um ævi mína sem vímuefnanotandi þar sem ég var bókstaflega í sjálfs- morðsleiðangri. Ég skal alveg viðurkenna að þessi skipulagði botn var ekkert í samanburði við þann raunverulega.“ Hann gerir sér grein fyrir að hann er að gefa færi á sér með því að segjast hafa verið undir áhrifum vímuefna við skrifin. „Ég ætla ekki að réttlæta þetta fyrir neinum. Þetta er eitthvað sem ég gerði og það virkaði,“ segir Sævar en hann hefur verið edrú frá því síðasti kaflinn var skrifaður. „Auð- vitað. Ég hef verið edrú síðan. Það var alltaf planið.“ Smitsjúkdómurinn ofbeldi Sævar fór í meðferð eftir mikla neyslu unglingsáranna, varð edrú og gaf út rappplötu. Það var þá sem hann varð þekktur undir nafninu Poetrix en meðal annars gaf hann út lagið „Vegur- inn til glötunar“ með Bubba Morthens. Sævar segist ekki hafa náð að finna réttu röddina í rapp- inu, en það taki ef til við eftir bókina. Á næstu árum ætli hann samt að ein- beita sér að skrifum. „Ég ætlaði alltaf að verða rithöfundur og skrifaði sögur sem barn. Ég man eftir einni sem ég skrifaði um dreng sem fluttist með fjölskyldu sinni frá Noregi á land- námstímanum, bar- áttu hans við vonda menn á skipinu hingað og lífsbaráttu í nýju landi. Ég er hrifinn af þessu list- formi og ætla að þróa mig áfram á þessu sviði. Hann er í engu sambandi við móður sína og stjúpa en segist í raun ekki bera kala til þeirra. „Hvernig get ég borið kala til þeirra eftir allt sem ég hef gert sjálfur? Ég held að þau hafi verið svo afskaplega þjáð að þau hafi ekki haft stjórn á gjörðum sínum. Ég held að þau hafi réttlætt þetta fyrir sér og séð alls konar púka og djöfla sem voru ekki til staðar. Það er enginn vondur að upplagi heldur förum við að búa til vont í kringum okkur til að við getum séð okkur sem góð. Ofbeldi smit- ast og heilu kynslóðirnar smitast af ofbeldi, vanlíðan og geðveiki.“ Sævar segist hafa frétt af því að undanfarin ár hafi móðir hans reynt að snúa til baka. „Hún segist stundum vera full af eftirsjá og ég vona að hún hafi lagt af stað í þann slag að snúa til baka. Þó ég kalli hana ekki móður mína væri ég stoltur af slíkri breytingu. Ef hún ætlar sér alla leið til baka er mikilvægt að hún mæti ekki út- skúfun því það er ýmislegt sem fólk eins og hún gæti kennt þessu samfélagi.“ Spurður hvort hann sé trúaður hefur Sævar einfalt svar: „Við erum öll trúuð, það er bara mis- munandi hvað við köllum það sem við trúum á. Fyrir sumum er rækt- in guð en þeir kalla hana það samt ekki. Trú er bara orð og orð eru merkjakerfi sem við notum til að sýna öðrum hvað við trúum á. Við höfum öll skilgreint hvað okkur þykir heilagt og hvað ekki. Ég trúi því að það sé enginn endanlegur sannleikur. Það eina sem skiptir máli er að meiða ekki.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Sævar Poetrix lítur á ofbeldi sem smitsjúkdóm sem geti lagt heilu kynslóðirnar ef ekki er gripið inn í. Hann lagðist í algjört uppgjör á lífi sínu í því skyni að frelsa sig. Mynd/Hari Helgin 17.-19. október 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.