Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.10.2014, Blaðsíða 38

Fréttatíminn - 17.10.2014, Blaðsíða 38
Ég segi bara eins og Ragna Foss- berg hefur sagt, ef hrukkukrem myndu virka þá væri enginn með hrukkur.fonix.is • Hátúni 6a • 105 Reykjavík • S. 552 4420 HEIMILISTÆKJADAGAR Í 20% AFSLÁTTUR Rakel Garðarsdóttir og Margrét Mar- teinsdóttir gefa á næstunni út bókina Vakandi veröld. Í bókinni er til dæmis að finna uppskriftir að snyrtivörum sem fólk getur framleitt sjálft og heimagerð- um hreinsiefnum. Ljósmynd/Hari Neysla okkar er farin úr böndunum Rakel Garðarsdóttir og Mar- grét Marteinsdóttir hafa tekið höndum saman og skrifað bókina Vakandi veröld. Í bókinni miðla þær eigin reynslu en báðar tóku þær upp nýja lífshætti fyrir nokkru. Nú eru skilaboðin þau að við eigum ekki að henda mat, við eigum að flokka rusl og hugsa um hvar fötin okkar eru fram- leidd. Það sem við gerum mun nefnilega hafa áhrif á afkom- endur okkar. M ikilvægast er að vera með-vitaður um það sem mað-ur gerir. Ef þú hugsar til dæmis áður en þú kaupir inn þá ertu í miklu betri málum,“ segir Rakel Garðarsdóttir framleiðandi. Rakel er annar höfunda bókarinn- ar Vakandi veröld sem kemur út um næstu mánaðamót. Bókina skrifaði hún með Margréti Marteinsdóttur, fyrrum fréttakonu og núverandi vert á Kaffihúsi Vesturbæjar. Báðar hafa þær á síðustu árum tekið upp nýja lífshætti sem þær vilja meina að bæti eigin heilsu og takmarki um leið umhverfisspjöll. Í bókinni miðla þær af reynslu sinni og hvetja aðra til að tileinka sér nýja siði. Í inngangi bókarinnar segjast þær, eins og flestir, hafa sóað mat í stórum stíl, keypt föt frá framleið- endum sem ekki standast kröfur um lágmarks siðferði gagnvart starfsfólki sínu, og notað snyrti- vörur með kemískum og heilsuspill- andi efnum. Auðvelt sé að tileinka sér nýja og betri siði. Hendum einum þriðja af inn- kaupunum Rakel hefur látið til sín taka í um- ræðum um matarsóun og er stofn- andi samtakanna Vakandi. „Þetta hefur verið mikið áhugamál hjá mér. Neysla mannsins er farin úr böndunum. Við erum að henda ein- um þriðja af því sem við kaupum inn. Það er borðleggjandi að hætta að henda mat. Jarðarbúar eru sjö milljarðar í dag og verða orðnir níu milljarðar árið 2050. Ef við höldum þessu áfram mun jörðin ekki ráða við okkur. Það er ekki langt í þetta. Það er jafn langt í 2050 og það er síðan 1986 var,“ segir hún. Yfirvöld ekki með á nótunum Rakel segir að eftir hún fór að pæla í þessum hlutum sé auðvelt að sjá hluti sem hún sá ekki áður. „Í mínu tilviki fannst mér merkilegt að uppgötva markaðs- setningu fyrirtækja. Hvernig það er alltaf verið að telja manni trú um að maður verði að eignast eitt- hvað þegar mann vantar í raun ekkert. Það átti að heita að hér væri kreppa en samt var maður enda- laust að kaupa eitthvað. Þetta á til að mynda við um snyrtivörur, þar er ein mesta sóunin. Það er mark- aður sem veltir endalaust af peningum. Ég segi bara eins og Ragna Fossberg hefur sagt, ef hrukkukrem myndu virka þá væri enginn með hrukkur. Húðin er stærsta líffærið okkar og það er ekkert sniðugt að setja eitthvað á húðina sem ekki er hægt að borða. Það er vel hægt að nota náttúrulegar snyrtivörur.“ Í bókinni er einmitt kafli um hvernig fólk geti búið sjálft til náttúrulegar snyrtivörur og heima- gerð hreinsiefni. Þá eru kaflar um föt, plast og flokkun sorps, svo eitthvað sé nefnt. Hvað með flokkun á sorpi? Manni virðist að Ís- lendingar hafi tekið nokkrum framförum þar und- anfarin ár. „Já, í flokkun á pappír. En við eigum enn langt í land á öðrum sviðum. Það er til dæmis bara ein ruslatunna í almenningsrýmum. Ef þú labbar nið- ur Laugaveginn þá eru bara venjulegar tunnur en ættu að vera rauðar og grænar líka. Ríki og borg eru mjög aftarlega í þessum málum. Þetta var gert fyrir mörgum áratugum annars staðar í Evrópu.“ Lítill leiðarvísir um vitundarvakningu „Ég er alls ekki heilög. Þetta snýst bara um þessi litlu skref sem við getum öll tekið. Þegar þau hafa verið tekin verður allt miklu ljúfar fyrir vikið. Mað- ur hugar að umhverfinu, buddunni og framtíðinni,“ segir Rakel sem segir að bók þeirra Margrétar sé góður upphafspunktur fyrir alla. „Þetta er engin predikun, þetta er bara lítill leið- arvísir um vitundarvakningu um betri lífsvenjur. Hvernig við getum öll hugað að framtíðinni. Fram- tíðin er nefnilega í okkar höndum og það sem við gerum mun hafa áhrif á afkomendur okkar.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is 38 viðtal Helgin 17.-19. október 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.