Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.10.2014, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 17.10.2014, Blaðsíða 30
NEW YORK’S FUNNIEST RICKY VELEZ · JAMES ADOMIA N ANDREW SCHULZ KERRY GODLIMAN HANNAH ÚR GAMAN- ÞÁTTUNUM DEREK BBC PRESENTS: BEST OF FEST ROB DEERING · HARRIET KEMSLEY  JOEL DOMMETT · SEAN MCLOUGHLIN JIM BREUER EINN AF 100 BESTU Í HEIMI, SAMKVÆMT COMEDY CENTRAL STEPHEN MERCHANT MEÐHÖFUNDUR THE OFFICE ÁSAMT F YNDNASTA FÓLKI ÍSL ANDS ARI ELDJÁRN · DÓRI DNA · SAGA GARÐARS · ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON MIÐASALA Í FULLUM GANGI! WWW.RCF.IS OG WWW.SENA.IS/RCF MIÐASALA Á MIÐI.IS, HARPA.IS, Í MIÐASÖLU HÖRPU OG Í SÍMA 528-5050 LÉTTÖL ALÞJÓÐLEG GRÍNHÁTÍÐ Á HEIMSMÆLIKVARÐA 24. - 26. OKTÓBER Í HÖRPU Þ að er sérstaður í helvíti fyrir þá sem misnota sameiginleg svæði eins og almenningsgarða, klósett og útivistarsvæði. Hundaeigendur sem taka ekki upp saur gæludýra sinna eiga svo sérstað inni á sérstaðnum þarna niðri. Þeir hins vegar sem eiga sérmerkta stóla við háborðið við hliðina á skrattanum eru svo þeir sem fokka í sameiginlegum hlutum á líkamræktarstöðum. Hér eru boðorðin tíu til að reyna að forðast þetta sérstaka svæði í neðra. Flest þeirra eiga líka við um sundferðir. Og já, sorrí, þetta eru aðallega reglur fyrir karlmenn. Greinarhöfundur þekkir ekki til í kvennaklefanum eða til kvenna yfir höfuð sem þurfa að kynna sér þessar reglur sérstaklega. 1. Ekki þurrka pungsekkinn og eða rassinn með sameiginlegri hár- þurrku í sundi eða á líkamsræktarstöðvunum. Sköllóttir eldri herra- menn með loðna búka þurfa annað hvort að mæta með sína eigin þurrku eða kaupa betra handklæði. Þetta er ekki PUNGÞURRKA! 2. Ekki henda tyggjóinu þínu í vatnshanann, á sturtugólfið, klessa því undir bekk eða annarstaðar þar sem er ekki er ruslafata. Það vill enginn fá tyggjóið þitt, þó smá bragð hafi verið eftir af því. 3. Handklæðin sem þú færð í boði hússins, þessi til að þurrka svitann af enninu og tækjunum eftir notkun, eru ekki til að: a) þerra á þér punginn, b) standa á í klefanum og þurrka á þér tærnar og þau eru svo sannarlega ekki, c) til að setjast á með berann bossann á bekkinn. Farðu í brókina. 4. Sturta eftir æfingu er góð hugmynd og í raun alveg nauð- synleg til að vera ekki illa lyktandi. En ekki mæta í sturtuna og standa við hliðina á næsta manni og skvetta eftirbununni (það sem skvettist af þínum sveitta líkama) yfir á næsta mann. Helst skal nota aðra hverja sturtu sé það möguleiki eða láta einfaldlega eftirbununa skvettast á vegginn fyrir aftan. 5. Ekki pissa í sturtunni, ekki einu sinni til að spara vatn. Það get- ur verið freistandi að láta vaða og einstaka sinnum ef þú ert aleinn í klefanum getur verið ótrúlega frelsandi að láta það eftir sér og þá er líka eins gott að þú sért með niðurfall. 6. Rakstur hvurskonar á ekki endilega heima í sameiginlegu rými. Kall- ar að raka á sér skallann er eitthvað sem ætti helst að fara fram innan veggja heimilisins en ef það er ekki í boði þarf að passa að allt fari í vask- inn og svo að þarf að skola þessu öllu niður og þrífa þennan sama vask. Hvað punghárasnyrtingu varðar – ekki raka á þér punginn í gymminu. 7. Ekki hrækja í sturtu, ekki hrækja í vatnshanann, ekki hrækja í vask- inn og ekki hrækja í ruslafötur. Hræktu í klósettið. 8. Þurrkaðu af tækjunum þegar þú klárar sveitt sessjón. Það gerir kannski ekki mikið, svona heilsufarslega en fyrir næsta mann, að þurfa ekki að grípa í sveitt handföng eða setjast á rassblautt sætið, gerir það heilmikið. 9. Ekki vera gæinn sem skilur æfingatöskuna eftir á bekknum á meðan farið er í sturtu. Það þurfa aðrir að nota þessa bekki. Svo á ekki að færa töskur annara sem eru opnar og augljóslega í notkun bara af því að end- inn á bekknum er besta svæðið og þú vilt vera þar. 10. Hugsaðu vel um tærnar. Þær þarf að þurrka vandlega svo það byrji ekki að vaxa á þeim sveppir. Ekki vera sveppagæinn í sturtunni og ef þú ert sveppagæinn, farðu þá í sturtuskó. Það vill enginn fá þessa sveppi þína og haltu tánum á þér frá sameiginlega hárblásaranum. Haraldur Jónasson hari@frettatiminn.is Þetta er ekki pungþurrka Hárblásararnir eru þarna til að blása hár og svona á að gera það. Þegar á að blása er rúlluburs- tinn (já það þarf rúllubursta) settur inn í lubbann og blásið utan um burstann u.þ.b. tvo þriðju úr hring. Halda hitanum á í smá stund. Fjarlægja svo blásarann en halda burstanum á sínum stað í nokkr- ar sekúndur á meðan hárið kólnar. Þá helst sveigjan. Passa bara að ganga ekki of langt. Til að enda ekki eins og gömul kona með vel túperað fjólublátt hár. Að blæstri loknum er um að gera að strjúka geli, vaxi, eða blöndu beggja í allt hárið og muna eftir hnakkanum líka. Gott að fara svo í lokin aðeins yfir kollinn með blásarann á kaldasta. Svona til að losna við þetta ný- greidda lúkk. Blásturinn 30 líkamsrækt Helgin 17.-19. október 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.