Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.06.2014, Qupperneq 59

Fréttatíminn - 20.06.2014, Qupperneq 59
PIPA R \TBW A • SÍA • 140076 Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is NÝR BÆKLINGUR STÚTFULLURAF SPENNANDI TÖLVUBÚNAÐI 4BLS SMELLTUÁ KÖRFUNANETBÆKLINGUR Á WWW.TOLVUTEK.IS MEÐ GAGNVIRKUM KÖRFUHNAPPAÐEINS 1.STK Á MANN :) SAMSUNG 34.900 Stórglæsileg Galaxy Tab 3 með ótrúlegum 10.1” fjöl- snertiskjá og ofur öflugum Dual Core örgjörva Gunnar Þórðarson Borgarlistamaður Reykjavíkur Dagur B. Eggertsson borgarstjóri útnefndi Gunnar Þórðarson tónlistarmann Borgar- listamann Reykjavíkur 2014 í Höfða á þjóðhátíðardaginn. „Gunnar Þórðarson er litríkt og afkasta- mikið tónskáld, snjall gítarleikari, hljóm- sveitarstjóri, útsetjari og upptökustjóri. Hann er einn afkastamesti tónlistarhöf- undur Íslendinga og hefur samið bæði dægurlög og sígilda tónlist – eftir hann liggja yfir 650 lög sem hafa verið gefin út á hljómplötum og auk þess hefur hann samið tónlist við kvikmyndir, söngleiki og leikverk,“ segir í tilkynningu borgarinnar. Gunnar var einn af stofnendum hljóm- sveitarinnar Hljóma og hljómsveitar- innar Trúbrot. Árið 1998 var hann einn af stofnendum „Guitar Islancio“, sem var valinn tónlistarhópur Reykjavíkur á menningarborgarárinu 2000. Á undan- förnum árum hefur Gunnar Þórðarson snúið sér í auknum mæli að tónsmíðum og útsetningum stærri verka. Hæst ber þar óperuna Ragnheiði sem Gunnar samdi við texta Friðriks Erlingssonar. Hún var frum- flutt í konsertformi í Skálholtskirkju fyrra og Íslenska óperan sýndi óperuna síðan fyrr á þessu ári við metaðsókn og fádæma lof áheyrenda og gagnrýnenda – jafnt inn- lendra sem erlendra. Uppsetning Íslensku óperunnar var út- nefnd til tíu Grímuverðlauna og í vikunni hlaut Ragnheiður þrjár grímur þar sem hún var meðal annars útnefnd sýning ársins og ópera Gunnars valin tónlist ársins 2014. Gunnar hlaut Fálkaorðuna fyrir störf sín í þágu íslenskrar tónlistar árið 2001. Jón Ólafs á Gljúfrasteini Jón Ólafsson tónlistarmaður kemur fram á stofutónleikum á Gljúfrasteini á sunnudag klukkan 16. Á tónleikunum leikur Jón á píanó Halldórs Laxness og syngur lög sín við íslensk ljóð. Meðal þeirra höfunda sem Jón hefur samið lög við ljóð eftir eru þeir Halldór Laxness, Jónas Guðlaugsson, Stefán Máni og Hall- grímur Helgason. Nokkuð langt er um liðið síðan Jón Ólafsson kom síðast fram einn síns liðs. Hann hefur gefið út tvær sólóplötur og er meðlimur í hinni dáðu sveit Nýdönsk. Miðaverð á tónleikana er 1.500 krónur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.