Fréttatíminn - 20.06.2014, Blaðsíða 20
Orkuríkur áfangastaður
Vatnsaflsstöðvar nota fallþunga vatns til að knýja hverfla sem vinna rafmagn.
Á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu er vatni til miðlunar safnað í uppistöðulón og
minni miðlunarmannvirki. Hvert lónið tekur við af öðru og á milli lónanna eru
sex aflstöðvar sem virkja orkuna sem býr í fallþunga vatnsins.
Búrfellsstöð er hluti af umfangsmiklu veitukerfi á svæðinu.
Þar er boðið upp á gagnvirka orkusýningu og skammt norður
af stöðinni eru fyrstu vindmyllur Landsvirkjunar.
Myndin sýnir þversnið af Kaplan
hverfli í Búðarhálsstöð, nýjustu
aflstöð Íslendinga. Í stöðinni
vinna tveir slíkir hverflar rafmagn
úr miklu vatnsmagni við fremur
lága fallhæð.
Gagnvirk orkusýning í Búrfellsstöð er opin alla daga kl. 10-17.
Einnig tekur starfsfólk á móti gestum við vindmyllurnar norðan Búrfells
alla laugardaga í júlí kl. 13-17.
Jarðvarmasýning í gestastofu Kröflu er skemmtilegur áfangastaður fyrir
norðan. Þar er opið alla daga kl. 10-17.
Við Kárahnjúkastíflu tekur leiðsögumaður á móti gestum alla miðvikudaga
og laugardaga kl. 14-17.
Velkomin í heimsókn í sumar!
www.landsvirkjun.is/heimsoknir
umræðan um kynferðisbrot verður mjög
hávær í samfélaginu.
„Eftir að ég varð veik brustu allar
mínar varnir gagnvart óuppgerðu kyn-
ferðisofbeldi sem ég varð fyrir sem
unglingur og ég fer að horfast í augu
við það,“ segir Inga Vala en um það leyti
sem hún var greind með krabbamein
frétti hún að maðurinn sem hafði brotið
á henni, þáverandi kennari hennar,
hafði í fyrsta sinn verið handtekinn fyrir
kynferðisbrot. Hann fékk síðar dóm.
„Ég var búin að vera að vinna í mínum
málum þegar Tinna kemur til okkar.
Ég starfa sem ljósmóðir og í gegnum
starf mitt með konum hef ég komist að
því hvað kynferðisofbeldi er gríðarlega
stórt vandamál. Þegar Tinna sýnir öll
merki þunglyndis og er mjög vansæl
förum við að rifja upp þessar myndbirt-
ingar og ræða þau áhrif sem þær höfðu
á hana. Ég sagði við hana að þunglyndið
hlyti að eiga sér skýringar, hún hefði
verið lögð í einelti sem barn og hún var
beitt ofbeldi sem unglingur. Við vorum
hér heima saman í nokkrar vikur og
gátum lokst rætt hlutina opinskátt. Ég
átti sjálf alltaf erfitt með að líta á mig
sem „fórnarlamb“ en ég gat litið á mig
sem „þolanda.“ Ég samsamaði mig ekki
með því að vera fórnarlamb því ég var
alltaf að reyna að vera sterk og dugleg,
og það var nákvæmlega það sama með
Tinnu. Hún leit alltaf á sig sem algjöran
nagla. Ég var bara komin lengra en hún
í þessari orðræðu sem skiptir svo miklu
máli. Hún var búin að ná sér vel á strik
þegar hún birti pistilinn en kannski var
hún samt ekki komin á þann stað að geta
kallað ofbeldið sínu rétta nafni.“
Í framhjáhlaupi nefnir Inga Vala að
maðurinn sem beitti hana kynferðisof-
beldi hafi sent henni samúðarskeyti eftir
að Tinna dó, nokkuð sem henni fannst
afar erfitt og óþægilegt. Ingólfur grípur
inn í: „Ég er búinn að henda því.“
Virk á Kynlegum athugasemdum
Upp frá þessu hreinskipta samtali þeirra
mæðgna fór Tinna markvisst að reyna
að vinna sig frá áhrifum ofbeldisins.
Hún fór aftur til Reykjavíkur og með
stuðningi frá kærastanum sínum,
Kristjáni Helga, fór hún aftur í nám –
nú í bókmenntafræði – og vann í sjálfri
sér. Mamma hennar segir að það hafi
haft mikil áhrif á hana að taka þátt í
umræðum á Facebook-síðunni „Kyn-
legar athugasemdir“ sem stofnuð var í
apríl þar sem fólk ræðir um atburði eða
reynslu sem sýnir misrétti kynjanna.
„Hún var mjög virk þar og umræðan
þar varð til þess að hún fór út í að skrifa
pistilinn. Hún vildi koma þessu frá sér.
Kristján Helgi, unnusti hennar, segir
að hún hafi verið öll á nálum, uppstökk
og kvíðin á meðan hún var að vinna
pistilinn. Það tók hana nokkurn tíma að
skrifa þetta en þegar hún var búin að
klára hann og setja hann á netið var eins
og hún fyndi fyrir svo mikilli ró. Það
var ekki aftur snúið. Hún fékk heldur
ekkert nema jákvæð viðbrögð,“ segir
mamma hennar. Efni pistilsins var tekið
upp á öllum helstu veffréttamiðlum auk
þess sem Tinna kom í viðtal í Íslandi í
dag þar sem hún sagði frá þessari erfiðu
reynslu. Tinna hafði sýnt það hugrekki
að hefja glímu við fortíðina. Hún var lögð
af stað í vegferð til styrkja sjálfa sig og
líða betur.
Foreldrar hennar voru afar stoltir af
henni og vissu ekki betur en að börnin
þeirra hefðu það notalegt saman á
meðan þau sjálf voru að hlaða batteríin á
Spáni. Þau segja það hafa verið afskap-
lega erfitt að vera í öðru landi þegar þau
fengu þær fregnir að Tinna væri látin
og flýttu þau sér heim með fyrsta flugi.
„Það var gríðarlega dýrmætt að við
vorum nýbúin að segja henni hvað við
værum stolt af henni. Hún var búin að
upplifa svartasta skammdegið en fékk
loksins að finna þennan mikla meðbyr,“
segir Inga Vala. Systkini Tinnu takast
síðan á við missinn hvert á sinn hátt.
„Ragnhildur er að verða sex ára. Hún
er ekki komin á þann aldur að hún geri
sér grein fyrir endanleikanum og hvað
dauðinn þýðir. Hún hefur ekki verið
sorgmædd. Þegar við komum loksins
var hún búin að finna hvað allir voru
Tinna fór í
MA og tók þar
þátt í leiklist,
söngvakeppn-
inni og lét
til sín taka í
pólitík.
Tinna með
eldri bróður
sinn, Steinar,
sem fæddist
1998.
Tinna
og Ingólfur,
pabbi hennar,
á góðri stundu
þegar hún
varð stúdent
árið 2011.
20 viðtal Helgin 20.-22. júní 2014