Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.06.2014, Blaðsíða 54

Fréttatíminn - 20.06.2014, Blaðsíða 54
 TónlisT Mugison á leið Til ReykjavíkuR Til að kláRa nýja plöTu Miðaldra Mugison syngur um ástina og dauðann Þrjú ár eru síðan Mugison sendi frá sér plötuna Haglél sem seldist í 30 þúsund eintökum og náði til að mynda gullsölu á einni viku rétt fyrir jól. Nú er hann að leggja lokahönd á nýja plötu sem kemur út í haust. Platan er blanda af hans bestu verkum og er sungin á ensku. e ftir svona mikla velgengni þá gera menn alltaf lélega plötu. Ég er örugglega að reyna of mikið,“ segir tónlistarmaðurinn Örn Elías Guð- mundsson léttur í bragði. Örn, betur þekktur sem Mugison, er langt kominn við gerð nýrrar plötu og stefnir að því að hún komi út í haust. Þetta verður fyrsta plata Mugisons síðan Haglél kom út fyrir þremur árum en sem kunnugt er seldist hún í um þrjátíu þúsund eintökum. „Ég er kominn með tíu grunna og von- ast til að hoppa í bæinn í næstu viku. Þar ætla ég að hitta einhverja snillinga og setja rjómann á þetta. Ég vona bara að vinir mínir séu í bænum, mig dauðlangar að búa til eitthvað með þeim. Það eru til dæmis róleg lög þarna sem mig langar að gera fallegri með flottum útsetning- um,“ segir Mugison. Síðasta plata var róleg og þægileg kassagítarplata. Þar áður varstu í tudd- arokki og enn fyrr á kafi í rafpælingum. Hvað ætlarðu að bjóða upp á að þessu sinni? „Þetta er eiginlega best of-plata en allt ný lög. Það eru þarna rokklög í anda Mugiboogie, svo er kassagítargutl í anda Mugimama og Hagléls og svo eitthvað rafmagnsdrasl. Eina þemað er að vera ekki að hugsa þetta of mikið eins og mér hefur hætt til að gera.“ Stefnan er að nýja platan komi út fyrir jólin. „Ef allt gengur upp, það hefur svosem klikkað hjá mér áður enda er ég hlaðinn ranghugmyndum um að allt taki hálftíma. Ég veit alveg að ég gæti vaknað upp í ágúst og verið kominn með ógeð á þessum tíu lögum. En ég er mjög brattur þessa dagana.“ Nýja platan er sungin á ensku og Mug- ison kveðst vera búinn að semja helming textanna. Hvert er yrkisefnið á plötunni? „Ég er náttúrlega orðinn miðaldra þannig að sumt af þessu er svolítið ljúfsárt. Ef ég horfi á titlana sést alveg að maður er orðinn pínu meyr. Ég er meira að segja farinn að snyrta skeggið annað slagið. En ætli þetta sé ekki bara mið- aldra popprokk... eitthvað. Ég syng bara um dauðann, ástina og lífið. Það mætti halda að Jón Ársæll og Vala Matt hafi hjálpað mér að gera textana.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Mugison syngur á ensku á nýrri plötu í haust. Hann segir að platan sé best of plata með nýjum lögum. Ljósmynd/Hari Það mætti halda að Jón Ársæll og Vala Matt hafi hjálpað mér að gera text- ana. – fyrst og fre mst – fyrst og fre mst ódýr! 149 kr.kg Verð áður 268 kr. kg Vatnsmelónur, rauðar 44% afsláttur Nú í sumar standa yfir æfingar á nýju ís- lensku leikverki, eftir Hrund Ólafsdóttur. Leikritið heitir Róðarí og er sett upp af Auðlind - leiklistarsmiðju. Leikritið fjallar um fjögur systkini á miðjum aldri og móður þeirra sem er á tí- ræðisaldri. Engin persóna er undir fimm- tugu sem er nokkuð óvenjulegt í íslensku leikhúsi í dag. Söguþráðurinn fjallar um það þegar systkinin þurfa að hittast vegna þess að ein systirin veikist og þarf á hjálp að halda. Það reynist erfiðara viðfangs að eiga sam- skipti og ráða fram úr málum en þau hafa búist við. Spurningin um „hver á að gera það?“ reynist þarna þung á metunum í til- vist fjölskyldunnar en hvert og eitt þeirra hefur fundið sér stað, eða svo halda þau. Það sem er einna merkilegast við sýninguna er leikarahópurinn. Þar innan borðs eru leikkonur sem mörgum eru kunnar og eiga að baki langan og farsælan feril á leiksviðum landsins, en hafa ekki verið mikið í sviðsljósinu að undanförnu. Þær eru Margrét Guðmundsdóttir sem lék áratugum saman í Þjóðleikhúsinu hefur ekki stigið á sviðið í sjö ár. Anna Kristín Arngrímsdóttir lék sömuleiðis í áratugi í Þjóðleikhúsinu og leikur nú í Ferjunni í Borgarleikhúsinu. Guðbjörg Thoroddsen sem hefur ekki leikið á sviði síðan árið 2000 en hún var í mörg ár ein okkar besta leikkona og Halldóra Björnsdóttir, sem var ein helsta leikkona Þjóðleikhússins í mörg ár. Eini karlleikarinn í sýningunni er hinn ungi og efnilegi Kolbeinn Arn- björnsson. Leikstjóri sýningarinnar er Erling Jó- hannesson. Erling hefur verið afkasta- mikill leikari og leikstjóri í gegnum tíðina og var lengi dramatúrg Hafnarfjarðarleik- hússins sem sýndi eingöngu ný íslensk verk. Leikritið Róðarí verður frumsýnt í Tjarnarbíói í september. -hf  TjaRnaRbíó nýTT íslenskT leikRiT æfT í TjaRnaRbíói Reynsluboltar aftur á svið Leikarahópurinn er þrautreyndur. Opnað fyrir umsóknir í Myndlistarsjóð 22. júní Myndlistarsjóður Veittir verða Undirbúningsstyrkir og styrkir til minni sýningar verkefna allt að 500.000 Styrkir til stærri sýningar­ verkefna, útgáfu/rann sóknar­ styrkir og aðrir styrkir allt að 2.000.000 Umsóknarfrestur er 11. ágúst 2014 Upp lýsingar um myndlistarsjóð, um sóknar eyðublað, út hlutunar­ reglur og leið beiningar er að finna á vefsíðu myndlistarráðs www.myndlistarsjodur.is Úthlutað verður í september 54 menning Helgin 20.-22. júní 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.