Fréttatíminn - 20.06.2014, Blaðsíða 4
25%
NÝTT
®
afsláttur
af öllum styrkleikum
og pakkningastærðum
Íslenskir vísindamenn meðal þeirra áhrifamestu
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
SnýSt í nV-átt, rigning framan af, en
birtir upp undir kVöld V-til.
HöfuðborgarSVæðið: Súld um morgun-
inn, en SéSt til Sólar SÍðdegiS.
Heldur SValara Veður og Smá rigning n-
og na-landS. léttSk. S-til.
HöfuðborgarSVæðið: Bjart með köflum
og trúlega þurrt. Hafgola.
Hlýnar aftur. ÞokuSuddi na-til, en
annarS úrkomlauSt og birtir upp.
HöfuðborgarSVæðið: léttir til þegar
lÍður á daginn. Hafgola.
fremur svalur laugardag-
ur, en hlýnar síðan aftur
Heldur svalara loft nær til okkar í dag og
á morgun. rignir lítilsháttar um mikinn
hluta landsins, en rofar til síðdegis V-til.
Væta áfram á morgun norðan- og einkum
norðaustanlands. eins og gjarnan
við þessar aðstæður verður veður
hvað best suðaustanlands, en á
Suðurlandi er hætt við síðdegis-
skúrum á morgun. á sunnudag
er hlýrra loft að nýju og sólin
ætti að skína, þó svo að enn
verði líkur á sudda na-lands.
11
10 9
10
11
11
8 7 9
14
13
12 8 10
16
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Þrjú börn drukknað
í sundi á níu árum
Starfsfólk sundlauga hefur ekki heimild til að hindra að foreldrar fari í sund með fleiri en tvö
ósynd börn. Samkvæmt reglugerð er öðrum en foreldrum og forsjáraðilum ekki heimilt að taka
fleiri en tvö börn, yngri en tíu ára með sér í sund. Á síðustu níu árum hafa þrjú börn drukknað í
sundlaugum hér á landi.
e ngin takmörk eru á því hversu mörg börn foreldrum eða forsjáraðilum er heimilt að taka
með sér í sund, samkvæmt
reglugerð um hollustuhætti á
sund- og baðstöðum. Í reglu-
gerðinni er aftur á móti kveð-
ið á um að öðrum en foreldr-
um, 15 ára eða eldri, sé ekki
heimilt að hafa með sér fleiri
en tvö börn. Kjósi foreldri að
fara með þrjú eða fleiri ósynd
börn með sér í sund getur
starfsfólk sundlauga ekki
hindrað það. Að sögn Jakobs
Þorsteinssonar, forstöðu-
manns Sundlaugar Kópavogs,
ber starfsfólki sundlauga að
fara eftir reglugerðinni og
getur því ekki komið í veg
fyrir að foreldrar fari með
mörg ósynd börn í sund. „Það
eina sem við getum gert er að
hafa auga með þeim,“ segir
hann.
Á síðustu níu árum hafa þrjú
börn undir sautján ára aldri
drukknað í sundlaugum hér á
landi. Átta börn undir tíu ára
aldri hafa fengið svokallaða
nærdrukknun en þá fara þau
í hjarta- og öndunarstopp og
eru endurlífguð og lifa slysið
af, annað hvort heilbrigð eða
með skemmdir á heila sökum
súrefnisskorts. Börnin átta hlutu þó ekki
heilaskaða. Í maí síðastliðnum var viðtal í
Fréttatímanum við ömmu og móður fimm
ára gamals drengs sem drukknaði í sund-
laug Selfoss árið 2011.
Að sögn Herdísar Storgaard,
verkefnisstjóra slysavarna barna
hjá Miðstöð slysavarna barna,
er mikilvægt að foreldrar láti
skynsemina ráða þegar þeir
meta hversu mörgum ósyndum
börnum þeir geti borið ábyrgð á í
sundi. Hún bendir á að í Bretlandi
séu reglurnar þannig að einu for-
eldri sé ekki heimilt að fara með
fleiri en tvö ósynd börn með sér
í sund. Herdís hvetur foreldra til
að fá annan fullorðinn með sér
þegar farið er í sund með ósynd
börn. „Sundlaugaverðir eru á
tánum í sínum störfum en það
er ekki möguleiki að þeir getið
tekið ábyrgð á börnum annarra.
Foreldrar verða að fylgjast með
börnum sínum allan tímann.“
Að sögn Guðrúnar Valgerðar
Ásgeirsdóttur, formanns Íþrótta-
og heilsufræðifélags Íslands,
áður Íþróttakennarafélags Ís-
lands, á drukknun sér stað á
ótrúlega stuttum tíma. „Ef mik-
ill fjöldi er í laugum er erfitt að
sjá hvort barn fari á botninn svo
foreldrar verða að hafa augun á
börnum sínum allan tímann. Það
þarf ekki meira til en að barn
missi annan handakútinn og þá
er það í hættu,“ segir hún.
dagný Hulda erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Það þarf ekki
meira til en
að barn missi
annan handa-
kútinn og þá
er það í hættu.
Herdís Storgaard,
verkefnisstjóri
slysavarna barna
hjá Miðstöð
slysavarna barna.
3 börn hafa drukkn-að í sundlaugum á Íslandi á síðustu 9
árum.
börn, 10 ára og
yngri, hafa fengið
nærdrukknun á
Íslandi á síðustu 9
árum.
8
algengustu ástæður
drukknunar barna á
íslandi
n Börn fara ein í klefa
og laumast aftur út í
laug á meðan foreldri
er í hinum klefanum.
n fullorðnir treysta því
að börnin haldi sig í
grunnu lauginni og
fara einir í sólbað eða
í heita pottinn.
n margir fullorðnir
fara saman í sund og
gleyma sér á spjalli
og fylgjast ekki með
börnunum.
næst algengasta ástæða drukknunar eða nærdrukknunar barna á Íslandi er þegar forsjáraðilar fara einir í sólbað eða í heita
pottinn og segja börnum sínum að halda sig í grunnu lauginni. „Oft líða ekki nema nokkrar mínútur þangað til börnin eru komin
í djúpu laugina. Við þessar aðstæður hafa börn drukknað,“ segir Herdís Storgaard. Ljósmynd/NordicPhoto/GettyImages.
temeistari á sumarsólstöðum
Sólarhringslöng te-athöfn fer fram í Viðey
um helgina í tilefni af sumarsólstöðum.
Athöfnin er í umsjón temeistarans Adam
Wojcinski sem hefur 16 ára reynslu af
því að halda te-athafnir víða um heim en
hann rekur teskóla í Ástralíu. Te-athöfnin
hefst klukkan 22 á föstudagskvöldið en
gestir geta komið með Viðeyjarferju
strax morguninn eftir. adam býður þá
upp á japanskt te sem hellt er upp á eftir
kúnstarinnar reglum. auk hans verða 7
aðrir temeistarar í eyjunni.
Þá verður árleg sólstöðuganga
reykjavíkur haldin í fjórða sinn í Viðey. þór
Jakobsson veðurfræðingur leiðir gönguna
en hann er mikill viskubrunnur um söguna
og fræðin á bak við þann merka viðburð
sem sólstöður eru. Hann segir frá sól-
stöðumínútunni sem í ár er klukkan 10.51
á laugardag og þeim hátíðum og hefðum
sem sumarsólstöðum fylgja. Hin árlega
sólstöðuganga hér á landi hefur verið
kölluð „meðmælaganga með lífinu og
menningunni“. Þá hvíla menn sig á deilu-
málum og ganga saman í friði og spekt um
fallega náttúru. -eh
adam
Wojcinski
hefur í 16
ár haldið
teathafn-
ir víða
um heim
og um
helgina
verður
hann í
Viðey.
Íslenskir vísindamenn
eru á lista thomson
Reuters yfir áhrifamestu
vísindamenn samtímans.
Vísindamennirnir eru þor-
steinn loftsson, prófessor
við lyfjafræðideild Háskóla
Íslands, kári Stefánsson,
forstjóri Íslenskrar erfða-
greiningar og prófessor
við læknadeild Háskóla Ís-
lands, daníel f. guðbjarts-
son og unnur þorsteins-
dóttir, vísindamenn við Íe
og rannsóknaprófessorar
við læknadeild Háskóla
Íslands. augustine kong,
guðmar þorleifsson, g.
Bragi Walters, Hreinn
Stefánsson, jeffrey r.
gulcher, Patrick Sulem og
Valgerður Steinþórsdóttir,
vísindamenn hjá Íslenskri
erfðagreiningu, eru einnig
á listanum.
Vísindamennirnir eru
á lista thomson reuters
með heitinu the World's
Most Influential Scientific
Minds 2014. Á listan-
um eru rúmlega 3000
vísindamenn sem að
mati thomson reuters
hafa mest áhrif á sínu
vísindasviði í heiminum í
dag. listinn nær til allra
greina vísinda og fræða,
að hugvísindum undan-
skildum.
öryggi barna – Mikilvægt að Foreldrar láti skynseMina ráða
4 fréttir Helgin 20.-22. júní 2014