Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.06.2014, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 20.06.2014, Blaðsíða 12
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. H Hvalveiðibátar Hvals hf. hófu stórhvelaveiðar í vikubyrjun. Hvalveiðivertíð stendur næstu þrjá mánuði en fyrirtækið má veiða 154 langreyðar á þessu ári, samkvæmt ákvörðun stjórnvalda. Veið-arnar hófust í skugga þess að á sama tíma var Ís- lendingum, einni helstu fiskveiðiþjóð í Norður-Atl- antshafi, meinuð þátttaka í stórri hafráðstefnu sem utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna stóð fyrir, það er að segja á mánudag og þriðjudag. Ráðuneytið brást með þessum hætti við fyrirmælum Bandaríkjaforseta en í minnisblaði í apríl síðastliðnum hvatti forsetinn innanríkisráðherra landsins til að endurskoða tvíhliða samstarfsverk- efni Íslands og Bandaríkjanna og aðra erindreka sína til að beita sér gegn hvalveiðum með ýmsum hætti. Auður stóll Íslands er merki um útskúfun á ráðstefnu sérfræðinga sem Íslendingar sóttust eftir að sitja en fengu ekki. Ástæða útskúfunar- innar liggur fyrir. Óviðeigandi þótti að bjóða hvalveiðiþjóðinni á ráðstefnuna. Mark- mið alþjóðasamfélagsins er, að því er fram kom í tengslum við ráðstefnuna, að halda höfunum óspilltum fyrir komandi kynslóðir og verndun sjávarspendýra er hluti af því markmiði. Með að- gerðunum hvetja Bandaríkjamenn Íslendinga til að virða alþjóðlegt hvalveiðibann. Hvalveiðar hérlendis eru með tvennum hætti. Annars vegar fyrrnefndar stórhvelaveiðar – sem vægast sagt eru umdeildar. Þótt Íslendingar telji sig hafa fullan rétt til að nýta þessa auðlind er stuðningur við veiðarnar hverfandi á alþjóðavísu – megn andúð á þeim raunar ríkjandi. Víðast hvar er litið á dráp þessara risa hafsins sem villimennsku sem eigi ekki að viðgangast. Þótt Íslendingar telji veiðarnar sjálfbærar liggur það fyrir að langreyður er á lista CITES samningsins um dýr í útrýmingar- hættu en þeim samningi er ætlað að koma í veg fyrir viðskipti með afurðir dýra og plantna í útrým- ingarhættu. Því er langreyðadráp litið sömu augum og fíladráp vegna fílabeins, svo dæmi sé tekið. Þess utan getur dráp þessara stóru dýra með skutli verið kvalafullt og ekki í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til slátrunar dýra. Þá hefur ekki gengið andskotalaust að koma hvalkjöti á markað erlendis, eins og sást á frægri för flutningaskipsins Ölmu í vor en skipið flutti margra ára birgðir til frá Íslandi til Japans. Hinn hluti veiðanna er síðan hrefnuveiðarnar, veiðar sem stundaðar eru nær ströndum landsins. Þau dýr eru veidd með sama hætti og stórhvelin – en þess utan er hörð hagsmunabarátta í gangi milli þeirra sem veiða og annarra fyrirtækja sem gera út á ört vaxandi atvinnugrein, hvalaskoðun. Hrefnuveiðimenn telja sig í fullum rétti og stofninn standi vel undir veiðunum. Skoðunarfyrirtækin – studd af Samtökum ferðaþjónustunnar – segja á hinn bóginn að veiðar og skoðun fari ekki saman á sama svæði. Hvalaskoðun sé til dæmis stærsta afþreyingargrein ferðaþjónustunnar í Reykjavík og sú þriðja stærsta á landinu. Vakin er athygli á því að fjórði hver erlendur ferðamaður sem kemur til landsins fer í hvalaskoðun. Á síðasta ári nýttu rúm- lega 200 þúsund ferðamenn sér þessa þjónustu, þar af um 115 þúsund í ferðum frá Reykjavík. Hvala- skoðunin skilar því árlega um fjórum milljörðum króna í þjóðarbúið. Svo enn sé stuðst við dæmi frá Reykjavík benda hvalaskoðunarfyrirtækin á það að hrefnan sé mikilvægasta tegundin við hvalaskoðun þar. Forvitnustu dýrin séu þau mikilvægustu fyrir skoðunarskipin en jafnframt auðveldustu skotmörk hvalveiðimanna. Veiðar á þeim grafi því undan atvinnugreininni. Íslendingar geta ekki skellt skollaeyrum við áliti alþjóðasamfélagsins hvað stórhvelaveiðarnar varðar – og þegar að mati á hrefnuveiðum og hvala- skoðun kemur hljóta minni hagsmunir að víkja fyrir meiri. Það er því brýnt að endurmeta stöðuna. Þar má leggja til grundvallar þingsályktunartillögu átta þingmanna frá því mars síðastliðnum þess efn- is að fjármála- og efnahagsráðherra láti fara fram mat á heildarhagsmunum Íslands vegna hvalveiða í íslenskri lögsögu. Metnir verði fjárhagslegir og viðskiptalegir hagsmunir, hagsmunir sjávarútvegs og ferðaþjónustu sem og áhrif Íslands á alþjóðavett- vangi og á samskipti við einstök ríki. Kallað eftir hagsmunamati Endurmat á hvalveiðum Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Laugavegi 174 | Sími 590 5040 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16 Kíkið inná: heklanotadirbilar.is GÓÐIR, NÝLEGIR & TRAUSTIR GÆÐABÍLAR Á GÓÐU VERÐI Audi A1 Attraction 1,4 TFSI Árgerð 2011, bensín Ekinn 41.500 km sjálfskiptur Ásett verð 3.290.000 VW Touareg V6 TDI 245 hö. Árgerð 2013, dísil Ekinn 31.000 km, sjálfskiptur VW Golf Highline 1.4 TSI AT Árgerð 2011, bensín Ekinn 80.000 km, sjálfskiptur Fiat 500 Lounge Árgerð 2012, bensín Ekinn 17.000 km, beinskiptur Ásett verð: 9.890.000 Ásett verð: 2.690.000Ásett verð: 2.390.000 Ásett verð: 2.290.000 VW Jetta Highline 1,4 TSI Árgerð 2012, bensín Ekinn 25.000 km, sjálfskiptur Skoda Octavia Combi 1,9 TDI. Árgerð 2010, dísil Ekinn 118.000 km, beinskiptur Ásett verð: 3.290.000 VW Golf Trendl 1,6 TDI Árgerð 2012, dísil Ekinn 40.000 km, beinskiptur Skoda Rapid Amb. 1.4 TSI. Árgerð 2013, bensín Ekinn 27.000 km, sjálfskiptur Mercedes-Benz B180 CDI. Árgerð 2012, dísil Ekinn 15.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 3.050.000 Ásett verð: 3.350.000 Ásett verð: 4.980.000 Komdu og skoðaðu úrvalið! VW Tiguan Track&Style 2,0TDI. Árgerð 2012, dísil Ekinn 46.000 km, sjálfskiptur Ásett verð: 5.850.000 Helgin 20.-22. júní 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.